Þjóðminjasafnið ræður kynningarstjóra til að auka hagræði

Ráðning kynn­ing­ar­stjóra er liður í þeim hag­ræð­ing­ar­að­gerðum sem standa yfir á Þjóð­minja­safn­inu að sögn þjóð­minja­varðar. Þremur forn­leifa­fræð­ingum var sagt upp hjá safn­inu í byrjun mán­aðar. Hlutverk kynn­ing­ar­stjóra er meðal ann­ars að styrkja ímynd Þjóð­minja­safns­ins.

Þjóðminjasafnið ræður kynningarstjóra til að auka hagræði
Harpa Þórs­dóttir var sett þjóð­minja­vörður árið 2022. Þá var gagn­rýnt að staðan hefði ekki verið aug­lýst. Mynd: Stjórnarráðið

Þjóð­minja­safnið aug­lýsti nýverið eftir kynn­ing­ar­stjóra og stendur ráðn­ing­ar­ferli yfir. „Starfið felst í að efla sýni­leika safns­ins, styrkja ímynd þess, ann­ast mark­aðs­setn­ingu og miðla starf­sem­inni á lif­andi og aðgengi­legan hátt til almenn­ings. Kynn­ing­ar­stjóri ber jafn­framt ábyrgð á vef­síðu safns­ins og öðrum staf­rænum miðlum þess,“ segir í aug­lýs­ing­unni sem var birt vegna starfs­ins en umsókn­ar­frestur rann út þann 14. apríl. 

Aðhaldskrafa og samdráttur

RÚV greindi frá því þann 7. maí að fjórum starfs­mönnum Þjóð­minja­safns­ins hafi verið sagt upp dag­inn áður, þar af þremur forn­leifa­fræð­ingum. Þessu til við­bótar hafi staða ræsti­tæknis verið lögð niður en ekki hefur verið fastur starfs­maður í ræst­ingum hjá Þjóð­minja­safn­inu í nokkurn tíma. Harpa Þórs­dóttir þjóð­minja­vörður sagði þá að vegna hag­ræð­ing­ar­kröfu þurfi að fækka starfs­fólki, og hún ítrekar það í svari til Heim­ild­ar­innar. 

„Nýaf­staðnar breyt­ingar eru til komnar vegna breyttrar verk­efna­stöðu hjá Þjóð­minja­safn­inu sam­hliða kröfum stjórn­valda um aðhald í rík­is­rekstri, auknum útgjöldum vegna nýs stofn­ana­samn­ings og …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JL
    Jón Logi skrifaði
    Út með fornleifafræðingana og inn með kynningarstjórann, þá ætti reksturinn að batna.
    Forstjórinn er greinilega alveg með þetta.
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár