Lifi leikskáldið!

Leik­skáld tala beint til sam­tíma okkar, en til að þau geti vaxið og blómstrað þurfa þau fjár­stuðn­ing og tíma. Hér hefur við­var­andi skortur á því skapað vanda fyrir leik­húsin. Þrátt fyrir það hófst hér gósentíð í apríl.

Lifi leikskáldið!

Nýlega hélt Félag leik­skálda og hand­rits­höf­unda opinn fund undir nafn­inu „Þarf alltaf að vera lík?“ sem er ekki bara hnytt­inn tit­ill heldur vís­bend­ing um ástandið í brans­anum. Krimmar tröll­ríða bók­mennta- og sjón­varps­heim­inum um þessar mundir en leik­húsið glímir við ann­ars konar höf­und­ar­vanda sem má skipta í tvo liði: Við­var­andi skort á fjár­stuðn­ingi til leik­skálda og fjöl­þætt pláss­leysi fyrir ný íslensk leik­rit. 

Leikritið er skrýtin skrúfa

Þess ber að geta áður en lengra er haldið að aðlag­anir á skáld­sögum fyrir leik­svið falla utan efn­istaka þessa pistils enda er þar um að ræða ann­ars konar list og ann­ars konar hæfni. Einnig er mik­il­vægt að nefna að pistla­höf­undur er ekki að til­kynna dauða íslenska leik­rits­ins enda lifir það ágætis lífi í fjöl­breyttum formum.

Ekkert lát er á vin­sældum íslenskra gam­an­leik­rita og söng­leikja. Eltum veðrið gengur enn þá fyrir fullu húsi í Þjóð­leik­hús­inu en margir höf­undar komu þar við sögu líkt …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár