Hunda- og kattahald í fjöleignarhúsum á dagskrá þingsins

Hunda- og katta­hald í fjöl­eign­ar­húsum verður ekki lengur háð sam­þykki ann­arra eig­enda, ef frum­varp sem er á dag­skrá Alþingis í dag nær fram að ganga. Inga Sæland, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, leggur frum­varpið fram.

Hunda- og kattahald í fjöleignarhúsum á dagskrá þingsins
Inga Sæland þegar þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar var kynnt. Mynd: Golli

Frumvarp um breyt­ingar á lögum um hunda- og katta­hald í fjöl­eign­ar­húsum er á dag­skrá Alþingis í dag. Samkvæmt frum­varp­inu verður hunda- og katta­hald í fjöl­eign­ar­húsi „ekki háð sam­þykki ann­arra eig­enda.“ 

Inga Sæland, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, leggur frum­varpið fram en það er samið í ráðu­neyt­inu. Efn­is­lega sam­bæri­legt frum­varp hefur fjórum sinnum verið lagt fram sem þing­manna­frum­varp af núver­andi félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra ásamt fleiri þing­mönnum en náði ekki fram að ganga. Frum­varpið var á þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar sem kynnt var í byrjun febr­úar en þar kom fram að áætlað væri að ráð­herra legði frum­varpið fram í mars­mán­uði. 

Með frum­varp­inu er lagt til að hunda- og katta­hald verði fram­vegis ekki háð sam­þykki ann­arra eig­enda. Engu að síður geti hús­fé­lag sett reglur um gælu­dýra­hald, enda séu þær eðli­legar, mál­efna­legar og á jafn­ræði reistar. Þannig geti eig­endur sam­mælst um fyr­ir­komu­lag gælu­dýra­halds, svo sem um umgengni og afnot á ein­stökum hlutum sam­eignar, en girt er fyrir að slíkar reglur gangi svo langt að þær úti­loki í raun gælu­dýra­hald. Þá verði hús­fé­lögum áfram heim­ilt að leggja bann við dýra­haldi til­tek­ins eig­anda ef það veldur öðrum íbúum veru­legum ama, ónæði og trufl­unum og eig­andi dýrs ræður ekki bót þar á, en lagt er til í því sam­bandi að leita þurfi sam­þykkis 2 /3 hluta eig­enda, bæði miðað við fjölda og eign­ar­hluta, í stað ein­falds meiri­hluta. Hið sama gildi brjóti eig­andi dýrs veru­lega eða ítrekað gegn skyldum sínum þrátt fyrir áminn­ingar hús­fé­lags. 

Lögin helsta hindrun hunda- og kattaeigenda 

„Ein helsta hindr­unin í vegi hunda- og katta­eig­enda á Íslandi eru ákvæði laga um fjöl­eign­ar­hús um hunda- og katta­hald í fjöl­býli. Samkvæmt lög­unum er nauð­syn­legt að afla sam­þykkis auk­ins meiri hluta eig­enda ann­arra eign­ar­hluta fyrir hunda- og katta­haldi. Lengst af voru skil­yrðin strang­ari og þurfti sam­þykki allra eig­enda,“ segir í inn­gangi grein­ar­gerðar með frum­varp­inu.

Í kafl­anum um mat á áhrifum frum­varps­ins segir að verði frum­varpið að lögum mun það auka jafn­ræði gælu­dýra­eig­enda hvað varðar val á hús­næði ásamt því að stuðla að meira hús­næð­is­ör­yggi þeirra.

„Þannig er gælu­dýra­eign almennt talin draga úr félags­legri ein­angrun og ein­mana­leika ásamt því að geta átt þátt í að draga úr streitu, kvíða og þung­lyndi“
Úr grein­ar­gerð með frum­varp­inu

„Und­an­farin miss­eri hafa þau jákvæðu áhrif sem gælu­dýr hafa á fólk og sam­fé­lag þess orðið sífellt ljós­ari. Gælu­dýra­hald getur leitt til auk­innar hreyf­ingar, úti­veru og sam­skipta við annað fólk. Þannig er gælu­dýra­eign almennt talin draga úr félags­legri ein­angrun og ein­mana­leika ásamt því að geta átt þátt í að draga úr streitu, kvíða og þung­lyndi. Er því mik­il­vægt að stuðla að jákvæðri umgjörð um hunda- og katta­hald í fjöl­eign­ar­húsum,“ segir í grein­ar­gerð um til­efni og nauð­syn laga­setn­ingar. 

Ísland sker sig úr

Þar segir einnig að dýra­hald í fjöl­eigna­húsum er mun sveigj­an­legra í nágranna­löndum. „Þar er reglan almennt sú að dýra­hald sé heim­ilt nema sér­stakar ástæður rétt­læti bann eða tak­mark­anir. Í Danmörku er dýra­hald heim­ilt nema reglur hús­fé­laga kveði á um annað. Í Noregi geta hús­fé­lög einnig sett reglur um dýra­hald, en meg­in­reglan er að dýra­hald er leyft nema sér­stakar ástæður, svo sem ofnæmi íbúa eða veru­legt ónæði af dýr­inu, rétt­læti bann. Í Svíþjóð og Finn­landi gildir það sama, þ.e. dýra­hald í fjöl­eign­ar­húsum er almennt heim­ilt en hús­fé­lög geta sett eig­endum ákveðnar skorður ef mál­efna­leg rök liggja að baki slíkum tak­mörk­unum. Ísland sker sig úr með því að gera kröfu um að hunda- og katta­hald sé háð sam­þykki auk­ins meiri hluta eig­enda ef um sam­eig­in­legan inn­gang eða stiga­gang er að ræða. End­ur­skoða þarf gild­andi reglur um sam­þykki ann­arra eig­enda fyrir hunda- og katta­haldi í fjöl­eign­ar­húsum með það að mark­miði að tryggja betur rétt bæði hunda- og katta­eig­enda í fjöl­eign­ar­húsum án þess þó að gengið sé um of á rétt ann­arra eig­enda til að tak­marka slíkt dýra­hald ef fyrir því eru mál­efna­legar ástæður,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár