Bóhemalíf í Prag

„Ásgeirs H. Ing­ólfs­sonar, bóhems­ins, sígaun­ans, norð­lend­ings og southererranian, verður sárt saknað, og tím­inn rann út svo alltof hratt,“ skrifar Valur Gunn­ars­son í minn­ingu um Ásgeir sem var náinn vinur hans.

Bóhemalíf í Prag
Ásgeir uppi á þaki í Prag að lesa úr bók. Mynd: Aðsend

Það hefur löngum verið vitað að eina leiðin til að lifa af íslenskum menn­ing­ar­skrifum er að flytja á brott frá Íslandi. Þar sem um það bil alls staðar er ódýr­ara að lifa koma flestir borgir heims til greina, utan kannski Tókýó, Ósló og Genf. Auk þess að sækj­ast eftir ódýru fæði og hús­næði vill hinn íslenski menn­ing­ar­skríbent hafa menn­ingu í kringum sig, og Prag er ein helsta menn­ing­ar­borg álf­unnar. Einmitt þangað sótti einn okkar allra besti maður, Ásgeir H. Ing­ólfs­son, sem nýlega er fall­inn frá. Og þangað heim­sótti ég hann oft.

Eftir lok kalda stríðs­ins virt­ust um tíma sem Prag yrði mið­punktur Evrópu. Sumir vildu jafn­vel færa höf­uð­stöðvar Evr­ópu­sam­bands­ins þangað því ljóst var að það myndi brátt stækka til aust­urs og þá yrði Brussel ansi langt frá miðju þess.

Tugir þús­unda ungra Banda­ríkja­manna flykkt­ust til borg­ar­innar í von um að verða hinn nýi Hemingway eða F. Scott Fitzgerald, Prag átti nú að verða það sem París hafði verið eftir lok fyrri heims­styrj­aldar. Líklega komu margir jafn­framt til að kynn­ast tékk­neskum konum sem voru víst for­vitnar um útlend­inga. Ein kvik­mynd tíma­bils­ins sýnir Banda­ríkja­mann „óvart“ missa pass­ann fyrir fram þar­lenda, svo ekki færi á milli mála hvaðan hann sé.

En bók­mennta­verkin létu á sér standa. Helsta skáldsagan um banda­ríska expata í Mið-Evrópu var eftir Arthur Phillips og birt­ist árið 2002. Nefndist hún Prague: A Novel en brand­ar­inn var sá að hún gerð­ist að öllu leyti í Búdapest, þar sem aðfluttir Banda­ríkja­menn láta sig dreyma um hin björtu ljós Prag og ímynda sér partíin þar vera betri.

Kúlið færð­ist smám saman til Berlínar, þaðan sem það hafði lík­lega aldrei farið til að byrja með, og þar sem nú búa ótal lista­menn, ekki síst frá Íslandi. En hvað varð af expöt­unum í Prag? Margir héldu lík­lega heim þegar pen­ing­arnir klár­uð­ust og inn­blást­ur­inn og ástin létu á sér standa, enda voru þeir stundum kall­aðir „trustafari­ans“ til háð­ungar, efri mið­stétt­ar­krakkar sem áttu sjóði að sækja í. En sumir búa þar enn og lifa hinu full­komna bóhema­lífi.

Uppruni bóhema

Og hug­takið bóhem er einmitt upp­runnið héðan. Tvö helstu héruð Tékk­lands nefn­ast Bæheimur og Mæri á íslensku en á ensku Bohemia og Moravia og er hið fyrr­nefnda komið úr Latínu, en sjálfir kalla Tékkar hér­aðið Čechy þaðan sem nafn lands­ins er fengið. Síðast þegar ég var staddur í Tékk­landi spurði ég um tengslin á milli hins meinta bóhema­lífs og Tékk­lands og fékk það svar að þar sem kaþ­ólikkar litu á Tékka sem villu­trú­ar­menn allt frá dögum Jans Húss sem var brenndur á báli á 15. öld hafi menn talið Bæheim­inga óþjóða­lýð hinn mesta og í stöðugri upp­reisn við páfann. Þetta hafi svo færst yfir á þá Bóhema sem við þekkjum í dag.

Og hvað er svo bóhem? Tja, maður þekkir hann þegar maður sér hann. Bóheminn er rót­laus og gjarnan blankur, illa við að binda sig nokkru ver­ald­legu og hneigður til víns og lista, svo eitt­hvað sé nefnt. Wikipedia gefur reyndar aðra útskýr­ingu á heit­inu. Ofantaldir eig­in­leikar hafa lengi verið tengdir við sígauna. Í Frakk­landi á 19. öld voru sígaunar taldir hafa komið til lands­ins í gegnum Bóhemíu 400 árum fyrr, eitt­hvað sem lík­lega stenst ekki en nafnið fest­ist við þá sem þóttu lifa hálf­gerðum sígauna­lífs­stíl. Frá frönsku rataði hug­takið inn í ensku, og um miðja 19. öld var farið að tala um bóhema sem bók­mennta­lega sígauna sem höfðu sagt skilið við hefð­bundin við­horf í lífi og listum, hvar svo sem þeir væru staddir í heim­inum.

Höf­uð­staður bóhema á 19. öld var Mont­martre-hverfi Parísar, eins og sjá má í óper­unni La Boheme eftir Puccini eða söng­leiknum Moulin Rouge í seinni tíð. París var enn höf­uð­staður bóhema á milli­stríðs­ár­unum en undir lok aldar hafði bóhemastemn­ingin flutt til Bóhemíu sjálfrar, til borg­ar­innar Prag.

Einhent skáld og svefn­samir Tékkar

Og þar eymir enn eftir af henni. Ljóð­skáldin eru ekki lengur ungir Banda­ríkja­menn heldur komnir vel á miðjan aldur. Þótt mark­miðið sé varla lengur að slá í gegn, eða einu sinni að kynn­ast tékk­neskum konum sem fyrir löngu eru búnar að venj­ast erlendum karl­mönnum, una þeir hag sínum vel í borg­inni. Í hverri viku koma þeir saman á einum af börum borg­ar­innar, drekka hinn dýr­indis tékk­neska bjór og lesa upp ljóð sín. Aðrir útlend­ingar og stöku Tékkar slæð­ast með. Skipu­leggj­and­inn Marco er franskur og giftur tveggja barna faðir, er annt um ljóð­list­ina en ekki jafn gef­inn fyrir bóhema­lífið, drekkur bjór en ekki Becherovka með og fer heim um mið­nætti.

Tékkum er annt um svefn­frið sinn. Á skilti á lest­ar­stöð­inni og aftur í mið­bænum er áréttað að nágrann­arnir vilji fá að sofa og því bannað að vera með læti eftir klukkan tíu á kvöldin. Nágrann­arnir ku fylgja þessu eftir og á uppi­stands­kvöldum þarf tón­list­ar­at­riðum að vera lokið fyrir tíu þótt enn megi lesa upp. Ef til vill eru þetta við­brögð við gengd­ar­lausu partístandi níunnar en ágætis til­breyt­ing frá Íslandi þar sem partíin hefj­ast sjaldn­ast fyrr en um mið­nætti og svefn­friður nágranna virtur að vettugi.

Ásgeir þekkir hér alla, líkt og hann gerir í Berlín og í Búdapest, þótt partíin þar séu ekki jafn góð. Hann var hér upp­runa­lega skiptinemi í kringum alda­mótin en sneri aftur fyrir um það bil tíu árum. Til að safna fyrir flutn­ingnum þreif hann eitt sumar sund­laugar við Mývatn en starf­aði svo við þýð­ingar og greina­skrif og orti ljóð þess á milli, í Prag var hægt að lifa á launum sem varla höfðu náð upp í hálf lág­marks­laun heima fyrir. Öllu var fórnað fyrir list­ina.

Ásgeir átti það til að tala mikið, enda að norðan, og svo vina­legur að um hann söfn­uð­ust vina­hópar. Lucien er ein­hent skáld frá Banda­ríkj­unum, eng­inn veit hvernig hann missti hönd­ina en hann gefur sen­unni tals­verðan lit fyrir því. Oxana með alpa­húf­una er frá Úkraínu. Hún segir mér frá því að fjöl­skylda hennar hafi hafnað henni þar sem hún neiti að taka bólu­efni.

Annar seg­ist afkom­andi Tékka sem flúðu til Kanada eftir vorið í Prag 1968 sem kveðið var niður af rúss­neskum skrið­drekum. Þannig end­aði síð­asta til­raunin til að skapa komm­ún­isma með mann­legt and­lit. Leik­rita­skáldið Václav Havel var einn þeirra sem hélt and­stöð­unni áfram í heima­land­inu, var bann­aður og stundum fang­els­aður, en varð svo for­seti lands­ins árið 1989. Eftir að hann lét af emb­ætti árið 2003 átti hann það til að heim­sækja Ísland og man ég eftir að hafa séð hann á vappi á Aust­ur­velli.

Kafka, róbótar og góðir dátar

Havel er ekki eini Prag­verj­inn til að setja mark sitt á bók­mennta­sög­una. Á þriðja ára­tug ald­ar­innar má segja að Tékkar hafi svo gott sem fundið upp nútíma­bók­menntir. Jaroslav Hasek skrif­aði hina bráð­skemmti­legu bók um Góða dát­ann Svejk. Karol Capek skrif­aði um upp­reisn vél­menna fyrstur manna og fann í leið­inni upp hug­takið „Róbot,“ komið af „rabota,“ að vinna.

Ofar öllum trónir Franz Kafka, sem skrif­aði á þýsku en bjó mest­alla tíð í Prag. Tvær styttur af skáld­inu eru í borg­inni og ég arka yfir Karls­brúnna í leit að Kafka brúnni. Við and­dyrið stendur að miðar fáist í minja­gripa­búð­inni. Í minja­gripa­búð­inni er hins vegar sagt að þeir fáist í and­dyr­inu. Þá er safn­inu lokað klukkan fimm þótt það segi sex á heima­síð­unni og hún er orðin korter í. Allt virð­ist þetta heldur kaf­ka­ískt, en kannski hef ég bara ekki lagað mig að siðum heima­manna.  

Um kvöldið les ég upp við góðar und­ir­tektir. Hér eru allir vel­komnir. Síðar höldum við til České Budějovice í suð­ur­hluta lands­ins, þaðan sem Budvar bjór­inn er upp­runinn. Ásgeir er á eftir mér á svið­inu, hefur rifið litla miða sem hann gengur um og dreifir yfir sal­inn. Ég er ekki alveg viss um hvað þetta á að fyr­ir­stilla en það er áhrifa­ríkt. Hann er orðin frá­bær upp­les­ari, enda hefur hér kom­ist í æfingu. Minnst er á óhefð­bund­inn upp­lestr­ar­stíl hans í bók­inni Southerranians, sem ljóða­kollek­tí­við gaf út og er nefnt í höf­uðið á upp­á­halds upp­lestr­ar­barnum sem nefn­ist South.

Laug­ar­dag­inn 2. febr­úar komu þessir Sunn­lend­ingar svo saman í íbúð Ásgeirs og lásu upp honum til heið­urs, ljóð eftir hann og ljóð um hann. Var því streymt hingað norður í Bíó Paradís þar sem annar vina­hópur kom saman.

Ásgeirs H. Ing­ólfs­sonar, bóhems­ins, sígaun­ans, norð­lend­ings og southererranian, verður sárt saknað, og tím­inn rann út svo alltof hratt. En við höfum enn Fram­tíð­ina, ljóða­bók hans sem kom út fyrir nokkrum árum. Orð Ásgeirs munu lifa með okkur um langa fram­tíð enn.   

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár