„Assad er í hópi þeirra sem eiga flesta óvini í veröldinni“

Bashar al-Assad átti ekki margra kosta völ þegar upp­reisn­ar­menn voru um það bil að taka völdin í Sýrlandi fyrir skömmu. Íran og Rússland voru nefnd sem hugs­an­legir áfanga­staðir hans og svo fór að Vladimír Pútín bauð ein­ræð­is­herr­anum og nán­ustu fjöl­skyldu hans að dvelj­ast í Rúss­landi, af mann­úð­ar­á­stæðum.

Þegar sýr­lenskir upp­reisn­ar­menn nálg­uð­ust höf­uð­borg­ina Damaskus og Bashar al-Assad, þáver­andi for­seti Sýrlands, sá að dagar hans sem ein­ræð­is­herra væru senn taldir lagði hann á flótta. Þetta gerð­ist 8. des­em­ber og 54 ára valda­tíð Assad-fjöl­skyld­unnar í Sýrlandi var lokið. Í miklum skyndi yfir­gaf Assad for­seta­höll­ina og fór um borð í flug­vél sem stað­sett var í rúss­neskri her­stöð með til­heyr­andi flug­velli. Vélin hvarf af rat­sjám skömmu eftir flug­tak en síðar kom í ljós að för­inni hafði verið heitið til Moskvu en eig­in­konan, Asmar, og börn þeirra þrjú voru þegar komin þangað. Frá skrif­stofu Pútíns barst til­kynn­ing um að Assad-hjónin, Bashar og Asmar, ásamt börnum sínum þremur, hefðu fengið land­vist­ar­leyfi í Rúss­landi. Af mann­úð­ar­á­stæðum sagði í til­kynn­ing­unni.

Barvikha, heilsuhæli og glæsihallir

Þótt ekki hafi neitt verið upp­lýst um hvar Assad-fjöl­skyldan haldi sig í Rúss­landi er næsta víst að dval­ar­stað­ur­inn sé smá­bær­inn Barvikha skammt fyrir vestan Moskvu. Í Barvikha er stórt hress­ingar- og heilsu­hæli, reyndar heilt þorp. Hress­ingar- og heilsu­hælið, oft­ast bara kallað Barvikha, var tekið í notkun árið 1935 og var frá upp­hafi ætlað leið­togum og æðstu ráða­mönnum Sov­ét­ríkj­anna og gestum sem gætu dvalið þar sér til hress­ingar og heilsu­bótar. Í þeim hópi var Georgi Dimitrov, leið­togi Búlgaríu, sem lést í Barvikha árið 1949. Orðrómur var lengi á kreiki um að honum hefði verið byrlað eitur að und­ir­lagi Stalíns en það var aldrei sannað. Boris Yeltsin, for­seti Rúss­lands frá 1991 til 1999, dvaldi löngum í Barvikha sér til heilsu­bótar.

Á tíunda ára­tug síð­ustu aldar byggðu margir efn­aðir Rússar sér íbúð­ar­hús í Barvikha, í nágrenni við heilsu- og hress­ing­ar­hælið. Þessum húsum fjölg­aði tals­vert á fyrsta ára­tug þess­arar aldar, við mis­jafna hrifn­ingu margra bæj­ar­búa, sem lifðu – og lifa enn – við minni efni.

Flóttamannabúðir þjóðarleiðtoga

Eftir fall Berlín­ar­múrs­ins í nóv­em­ber 1989 leit­aði Erich Honecker ásjár Rússa. Honecker sem verið hafði leið­togi Austur-Þýska­lands, frá árinu 1971 þangað til skömmu fyrir fall múrs­ins, var vísað frá Rúss­landi, eftir að Sov­ét­ríkin lið­uð­ust í sundur. Það var ekki fyrr en síðar að þjóð­ar­leið­togar á hrak­hólum og flótta gátu leitað skjóls, þá í Rúss­landi Pútíns.

Um það leyti sem Slobodan Milosevic var hand­tek­inn haustið 2000 flúði eig­in­kona hans, Mira Markovic, ásamt Marko syni þeirra hjóna, til Rúss­lands og fékk inni í Barvikha. Talið var að Milosevic hafi verið að und­ir­búa Rúss­lands­för þegar hann var hand­tek­inn. Hann var síðar fluttur til Haag í Hollandi þar sem réttað var yfir honum við Alþjóð­lega stríðs­glæpa­dóm­stól­inn. Rétt­ar­höldin tóku langan tíma og Milosevic lést í fang­els­inu í Haag 11. mars árið 2006, áður en dæmt hafði verið í máli hans. Eig­in­konan, Mira Marovic, lést í Barvikha árið 2019 þar sem hún hafði búið frá síð­ustu alda­mótum, í glæsi­villu. Sonurinn Marko býr enn í sinni villu í Barvikha ásamt rúss­neskri eig­in­konu sinni. Þau Mira og Marko gátu ekki farið úr landi þar sem alþjóða hand­töku­skipun hafði verið gefin út á hendur þeim en voru að öðru leyti frjáls ferða sinna.

Aslan Abasjidze, Askar Akajev og Viktor Janukovytj

Árið 2004 var Aslan Abasidsje, for­seta sjálf­stjórn­ar­svæð­is­ins Adjarien, sem er hluti af Georgíu, steypt af stóli. Abasidsje var hlynntur Rússum og þegar útséð var hvert stefndi sendi Jurij Luzjikov, borg­ar­stjóri Moskvu, einka­þotu eftir honum sem flutti hann til Moskvu og Abasidsje sett­ist að í Barvikha. Heima í Georgíu var hann dæmdur í 15 ára fang­elsi fyrir að draga sér stórfé, jafn­gildi millj­arða íslenskra króna, úr rík­is­kass­anum. Abasidsje er 86 ára og býr í glæsi­villu í Barvikha.

Askar Akajev er einn þeirra fyrr­ver­andi þjóð­ar­leið­toga sem búa í Barvikha. Akajev var for­seti Kirgisistan eftir fall Sov­ét­ríkj­anna, frá 1991 til 2005, en þá var honum velt úr sessi í túlíp­ana­bylt­ing­unni svo­nefndu. Þegar and­stæð­ingar hans voru farnir að brjóta rúður í for­seta­höll­inni sá Akajev sitt óvænna og fjöl­skyldan kom sér á brott, fyrst til Kazakhstan en skömmu síðar bauð Pútín honum og fjöl­skyld­unni land­vist í Rúss­landi. Akajev er enn að berj­ast fyrir, án árang­urs, að verða á ný titl­aður „fyrsti for­seti Kirgisistan“ en hann var sviptur titl­inum árið 2005. Hann hefur árum saman verið pró­fessor við Rík­is­há­skól­ann í Moskvu. Hann ku eiga sér þann draum að geta aftur flutt heim til Kirgisist­ans og hefur form­lega óskað eftir því við þing lands­ins en það leyfi hefur hann ekki fengið.

Þekkt­astur íbú­anna í glæsi­vill­unum í Barvikha, fyrir utan Assad, er Viktor Janu­kovytj, fyrr­ver­andi for­seti Úkraínu. Janu­kovytj, sem er fæddur 1950, var um ára­bil áber­andi í úkra­ínskum stjórn­málum og var for­seti lands­ins frá árinu 2010. Hann var hallur undir Rússa og árið 2013 ákvað hann að hefja ekki sam­vinnu­við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið. Sú ákvörðun mætti miklum mót­mælum í Úkraínu, nán­ast borg­ara­styrj­öld. Tugir þús­unda mót­mæltu vikum saman og fjöl­margir létu lífið í átökum stjórn­ar­sinna og stjórn­ar­and­stæð­inga, átökin voru kennd við Majdan-torgið í Kiev. Eftir að samið var um frið flúði Janu­kovytj árið 2014 til Rúss­lands en vel hafði farið á með honum og Pútín. Hann var sviptur for­seta­titl­inum og árið 2019 dæmdur til 13 ára fang­els­is­vistar, in absentia eins og það heitir, fyrir föð­ur­lands­svik.

Janu­kovytj kom ekki tóm­hentur til Rúss­lands, keypti veg­legt ein­býl­is­hús sem kost­aði jafn­virði sjö millj­arða íslenskra króna í Barvikha og á auk þess hús í Suður-Rúss­landi, nálægt Rostov.

Assad

Eins og nefnt var framar í þessum pistli er ekki með vissu vitað hvar Assad heldur sig en telja verður lík­legt að hann setj­ist að í Barvikha. Reyndar ættu þau hjónin ekki að verða í hús­næð­is­vand­ræðum því talið er að þau eigi 20 íbúðir í Moskvu og ekki þarf að taka fram að það eru ekki neinar kjall­ara­holur. Elsti sonur hjón­anna hefur um ára­bil stundað nám í Moskvu og hefur nýlega lokið dokt­ors­prófi í stærð­fræði frá Rík­is­há­skól­anum í Moskvu. Assad-hjónin eru ekki á nástrái því í skjölum banda­ríska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins má lesa að þau eigi jafn­virði 280 millj­arða íslenskra króna á banka­bókum í vel völdum skatta­skjólum.

Líf í sús og dús en þó í stöðugum ótta

Þótt Assad-fjöl­skyldan þurfi ekki að hafa fjár­hags­á­hyggjur er ekki þar með sagt að hennar bíði áhyggju­laust líf. Fyrr á þessu ári sendi þýski stjórn­mála­fræð­ing­ur­inn Marcel Dirsus frá sér bók sem vakið hefur mikla athygli. Svo mikla að tíma­ritið The Economist hefur sett hana á lista sinn yfir merk­ustu bækur árs­ins. Í bók­inni, sem heitir Hvernig ein­ræð­is­herrar falla, kemur fram að á árunum 1950 til 2012 end­uðu 69 pró­sent ein­ræð­is­herra, sem hraktir voru frá völdum, í fang­elsi, í útlegð eða voru drepnir. Í 13 ára borg­ara­styrj­öld hefur meira en hálf milljón Sýr­lend­inga lát­ist í átökum, millj­ónir hafa lagt á flótta, tug­þús­undir teknar af lífi, fang­els­aðar eða pynt­aðar. 

„Assad á marga óvini, og þótt hann sé nú undir vernd­ar­væng Pútíns er aldrei að vita hvað ger­ist,“ sagði Marcel Dirsus í við­tali við blaða­mann Politi­ken. „Því fleiri óvini sem þú átt, þeim mun lík­legra er að þú verðir drep­inn og Assad er í hópi þeirra sem eiga flesta óvini í ver­öld­inni.“ Marcel Dirsus benti á að Pútín er 13 árum eldri en Assad og eng­inn veit hvað tekur við að Pútín gengnum. Nýir vald­hafar í Kreml gætu ákveðið að það þjóni ekki þeirra til­gangi að halda vernd­ar­hendi yfir Assad. „Þótt Assad geti lifað í ára­tugi verður það líf í stöð­ugum ótta,“ sagði Marcel Dirsus.

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þorkell Egilsson skrifaði
    Að lifa eins og kjölturakki undir grimmum fyllibyttum er lélegt gaman…
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár