Þessi sápukúla mun springa

Nýverið leik­stýrði Dagur Kári Pét­urs­son dönsku kvik­mynd­inni Hygge! – end­ur­gerð á ítölsku kvik­mynd­inni Perfetti Sconoscuti (Perfect Strangers). Hún hefur verið end­ur­gerð næstum þrjá­tíu sinnum í hinum ýmsu löndum, þar á meðal á Íslandi sem kvik­myndin Villi­bráð eftir Elsu Maríu Jak­obs­dóttur. Hún er nú sýnd í Bíó Paradís og Dagur féllst á við­tal.

Þessi sápukúla mun springa
Dagur Kári skrif­aði hand­ritið að Hygge! á sex vikum og ferlið ein­kennd­ist af létt­leika og leik – sem honum fannst hressandi. Mynd: Golli

Það er ákveðin nostal­gía fólgin í því að sjá bíó­mynd eftir Dag Kára. Hverfa inn í lág­stemmdan húmor og til tíma­bils­ins þegar fyrsta myndin hans var frum­sýnd og áhorf­andi skynj­aði óvenju sjálfsör­ugga mynd­rænu fyrir íslenska mynd; hanter­ing hans á sögum sínum lifir með nostal­gískum fingraförum í vit­und jafn­aldra.

Segja má að hann hafi sem leik­stjóri jafnt sem hand­rits­höf­undur komið fram með nokkrum trukki. Að minnsta kosti lúrir það þannig í minni áhorf­anda sem var upp­num­inn eftir Nóa albínóa og horfði á tíma­bili á myndir hans sem komu út um tíma hver á fætur annarri. Þessar Dags-legu myndir.

Fæðing hans sem leik­stjóra var nýr dagur í íslenskri kvik­mynda­gerð, fæð­ing sem hófst með Nóa albinóa, en áður hafði hann reyndar gert tvær stutt­myndir. Áhrif­anna gætti lengi vel, rétt eins og koma hans í heim­inn hafði áhrif þegar pabbi hans, rit­höf­und­ur­inn Pétur Gunn­ars­son, skrif­aði um hann í ljóða­bók­inni Splunku­nýr dagur.

…

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár