Sannleikurinn að baki bíómyndarinnar Gladiator II: Valdi móður keisaranna með stjörnuspeki

Kvikmynd Ridleys Scotts, Gladi­ator II, fjallar um tíð Róm­ar­keisar­anna Caracalla og Geta, bræðra sem höt­uðu hvor annan. Scott fer þó að ýmsu leyti á skjön við sagn­fræði­legan sann­leika.

Sannleikurinn að baki bíómyndarinnar Gladiator II: Valdi móður keisaranna með stjörnuspeki
Septimus Severus og fjöl­skylda hans: Julia Domna og Severus keis­ari ásamt sonum sínum, Geta og Caracalla. Búið er að skafa and­lit Geta af þess­ari fornu mynd. Ástæðan fyrir því kemur í ljós ef ég skrifa meira um þessa fjöl­skyldu í til­efni af bíó­mynd Ridleys Scotts um Gladi­ator II.

Árið 186 missti hinn róm­verski land­stjóri í einu skatt­land­anna í Gallíu (Frakk­landi) kon­una sína. Þau hjón höfðu eign­ast tvær dætur en báðar dóu í bernsku.

Land­stjór­inn, Septimus Severus, var orð­inn rúm­lega fer­tugur. Honum fannst hann ekki hafa mik­inn tíma ef hann ætl­aði sér að eign­ast afkom­endur. Því ákvað hann að kvæn­ast aftur sem allra fyrst.

En ekki hvaða konu sem var.

Severus var pún­verskur að ætt að stærstum hluta en Púnverja köll­uðu Róm­verjar hina fornu Karþagómenn. Þegar þarna var komið sögu voru rúm 300 ár síðan Róm­verjar brutu ríki Karþagómanna á bak aftur og Pún­verjar höfðu síðan tekið upp róm­verska menn­ingu. Þeir vissu þó enn af þjóð­erni sínu og for­tíð og mátu mik­ils.

Þegar Severus fór að svip­ast um eftir nýrri konu, þá var það þó ekki upp­runinn sem skipti hann mestu og þaðan af síður útlit hennar eða elsku­semi. Severus leit nefni­lega stórt á sig og vildi að hin vænt­an­lega eig­in­kona færði honum, auk hraustra afkom­enda, eitt­hvað það sem gæti orðið honum að liði í valda­bar­átt­unni í efstu lögum sam­fé­lags­ins í Róm­ar­rík­inu.

Septimus Severus

Hann tald­ist þrátt fyrir heil­mik­inn frama fram að þessu vera af heldur ómerki­legri stigum en allra fín­ustu öld­unga­ráðs­menn­irnir og emb­ætt­is­menn­irnir í Róm og gott kvon­fang gæti verið punkt­ur­inn yfir i-ið sem tryggði honum hið æðstu met­orð við hirð Commodusar, sem þá var orð­inn keis­ari.

Og Commodus var reyndar þegar far­inn að sýna af sér svo ein­kenni­lega og ofsa­fengna hegðun að það var ekki víst að hann yrði endi­lega mjög lang­lífur á keis­ara­stóli.

Severus sendi nú vinum sínum í efri lögum sam­fé­lags­ins skila­boð. Hann vant­aði eig­in­konu og hvort þeir vildu vera svo hjálp­legir að benda honum á ein­hverja huggu­lega sem kæmi til mála?

Seinni hluti boð­anna sem Severus sendi vinum sínum hljóta hins vegar að vekja athygli okkar. Þótt hann væri jarð­bund­inn emb­ætt­is­maður og yfir­leitt ekki gef­inn fyrir rugl, þá bað hann vini sína nefni­lega að senda sér stjörnu­kort þeirra kvenna sem kæmu til mála.

Hann hugð­ist sem sé lesa út úr því hvort um væn­lega og gagn­lega eig­in­konu gæti verið að ræða.

Ekki fer sögum af því hvort vinir Severusar sendu honum mörg stjörnu­kort hugs­an­legra eig­in­kvenna.

En ljóst er þó að ein­hver kunn­ingi hans austur í Sýrlandi sendi honum stjörnu­kort Juliu nokk­urrar Domnu, dóttur æðsta prests­ins í Emesa en sú borg heitir nú Homs.

Og úr stjörnu­korti Juliu Domnu mátti lesa stór tíð­indi.

Sem sé að eig­in­maður hennar yrði kon­ungur.

Það skal tekið fram að heim­ildum ber reyndar ekki alveg saman um þetta. Önnur saga hermir að Severus hafi sjálfur farið til Emesa vegna þess að út úr stjörnu­spá hans hafi mátt lesa að þar myndi hann finna sér heppi­lega eig­in­konu. Og þá hafi æðsti prest­ur­inn, Julius Bassi­anus, kynnt hann fyrir dóttur sinni og úr orðið hjóna­band.

Hvor heldur útgáfan er rétt, þá er þó ljóst að trú Severusar á stjörnu­spár og stjörnu­speki réð úrslitum um að hann kvænt­ist Juliu Domnu. Því það gerði hann í upp­hafi árs­ins 187.

Og urðu sam­farir þeirra góðar því á næstu tveim árum eign­uð­ust þau tvo syni, þá Caracalla og Geta, keis­ar­ana sem koma við sögu í kvik­mynd Ridleys Scotts, Gladi­ator II.

Um þá mynd eða öllu heldur sög­una að baki hennar byrj­aði ég að fjalla í gær.

Þar kom fram að eftir að Commodus var drep­inn árið 192 braust út stríð milli hátt­settra her­for­ingja og emb­ætt­is­manna um keis­aratign­ina. Sá sem stóð uppi sem sig­ur­veg­ari að lokum var eng­inn annar en Septimus Severus.

Julia Domna

Svo stjörnu­spek­ing­ur­inn sem hafði spáð því fyrir Juliu Domnu að eig­in­maður hennar yrði kon­ungur reynd­ist vissu­lega hafa haft rétt fyrir sér.

Það var þó fleira en bara stjörn­u­rnar á himn­inum sem Julia Domna hafði sér til ágætis. Öllum heim­ildum ber saman um að hún hafi verið ljón­gáfuð, vel að sér um heim­speki og marg­vís­lega hluti sem í Róm­ar­rík­inu voru yfir­leitt talin vera einka­mál karl­manna. Og hún var mik­il­vægur ráð­gjafi og sam­verka­kona Severusar bæði meðan hann var að brjót­ast til valda og síðan eftir að hann var orð­inn keis­ari.

Julia Domna og eldri systir hennar, Julia Maesa, sem kemur síðar við sögu, þær höfðu enda hlotið óvenju góða menntun hjá föður sínum, æðsta prest­inum í Emesa.

Geta má þess að fjöl­skyldan var arab­ísk að ætt og upp­runa og hið föl­bleika útlit bræðr­anna Caracalla og Geta í kvik­mynd­inni Galdi­ator II er því áreið­an­lega á skjön við raun­veru­legt útlit þeirra, þar eð þeir bræður voru arab­ískir í aðra ætt­ina en norð­ur­a­frískir (að mestu) í föð­ur­ætt.

En þótt Julia Domna væri ber­sýni­lega mjög klár kona, þá auðn­að­ist henni ekki að sporna gegn því að synir hennar Caracalla og Geta yxu úr grasi sem svarnir óvinir, já, hat­urs­menn.

Og þegar þeir urðu sam­eig­in­lega keis­arar við lát föður síns árið 211 þá dýpkaði hatur þeirra hvor á öðrum, þótt Julia Domna reyndi allt hvað hún gat til að bera klæði á vopnin.

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár