Arabinn sem varð Rómarkeisari

Á þriðju öld var allt bók­staf­lega í hers höndum í Róma­veldi. Keisarar komu og fóru, valda­rán voru tíð, upp­reisnir og laun­morð á þeim sem tóku sér keis­ara­nafn. Einn óvænt­asti mað­ur­inn sem þá náði æðstu völdum var Filippus Arabi.

Arabinn sem varð Rómarkeisari
Sá köflótti klútur sem hér hefur verið settur á styttu af Filippus Araba var reyndar ekki kom­inn í brúk á þriðju öld. Arabar not­uðu að vísu þá þegar höf­uð­klúta til að skýla sér fyrir sól og sandi eyði­merk­ur­innar, en rauð­köflótta mynstrið kom ekki til sög­unnar fyrr en á að giska á 18. öld í fyrsta lagi. Mynd: Samsett

Áút­mán­uðum árs­ins 244 var róm­verskur her á þvæl­ingi inni í miðri Mesópótamíu (Írak). Það er ekki ljóst hvað hann var að vilja þar, hvort þetta var mark­viss til­raun til að leggja undir höf­uð­borgir Persa á svæð­inu milli Tígris og Efrat eða hvort ætl­unin var fyrst og fremst að hrella Persa og koma þeim úr jafn­væg­is­svo þeir réð­ust ekki inn á róm­verskar lendur í heims­hlut­anum – Palest­ínu, Sýrland, Anatólíu (Tyrkland), Armeníu.

Eitthvað meira en lítið virð­ist hafa verið í húfi því ekki minni maður en sjálfur keis­ar­inn fór með stjórn hers­ins, Gordíanus 3. Hann var reyndar aðeins 19 ára og eng­inn sér­stakur bógur heldur voru það gam­al­reyndir her­for­ingjar sem stjórn­uðu hernum og í reynd – þótt öld­unga­ráðið gamla í Rómaborg hafði enn ein­hver áhrif, stundum, ef til vill, kannski.

Kornungur keisari

Þótt burð­ugar heim­ildir skorti um árið 244 virð­ist ljóst að til orr­ustu Rómverja og Persa kom þar …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið undanfarið ár