Dofri dæmdur fyrir tálmun

Dofri Her­manns­son, stjórn­ar­maður í Félagi um for­eldra­jafn­rétti, hefur verið dæmdur í 10 mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir að hafa haldið dóttur sinni frá móður hennar.

Dofri dæmdur fyrir tálmun
Dofri Her­manns­son Félag um for­eldra­jafn­rétti berst fyrir umgengni beggja for­eldra við börn sín. Dofri situr þar í stjórn en var áður for­maður félags­ins. Mynd: Kristinn Magnússon

Dofri Her­manns­son, stjórn­ar­maður í Félagi um for­eldra­jafn­rétti, var á dög­unum dæmdur í tíu mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir sif­skap­ar­brot í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur. Þá á hann að greiða barns­móður sinni 1,5 millj­ónir króna í skaða- og miska­bætur.

Það sem Dofri vann sér til saka var að svipta fyrr­ver­andi konu sína valdi og umsjón yfir dóttur þeirra. Tálmunin stóð yfir á tíma­bil­inu 15. maí 2020 til 29. nóv­em­ber 2021. Stúlkan sinnti ekki reglu­legri skóla­sókn á meðan.

Vorið 2020 neit­aði Dofri að afhenda fyrr­ver­andi eig­in­konu sinni dóttur þeirra eftir að hún hafði dvalið á heim­ili hans sam­kvæmt sam­komu­lagi, en þau deildu for­sjá. Dóttirin var þá tíu ára. Hún umgekkst móður sína nán­ast ekk­ert þá 18 mán­uði sem fylgdu.

Fjallað var um brott­nám stúlkunnar í fjöl­miðlum á sínum tíma. Þá hafði …

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingimundur Stefánsson skrifaði
    Heimildin, hvað kemur stjórnarseta í Jafnréttisráði þessu tálmunarmáli við? Þið hafið áður tilgreint stjórnarsetuna, en aldrei útskýrt hvað stjórnarmaðurinn á að hafa gert rangt í setu sinni í Jafnréttisráði. Er ekki kominn tími á að þið útskýrið tenginguna fyrir okkur lesendum?

    Getur Heimildin upplýst okkur lesendur frekar? Því dómurinn virðist ekki finnast á vef dómsstólanna og við getum því ekki lesið sjálf. Út frá umfjöllun Vísis vaknar spurningin hvort meint ofbeldi móður hafi aldrei verið rannsakað af hálfu lögreglu. Er það rétt? Ef svo hefur Heimildin spurt af hverju? Og af hverju trúðu matsmenn dóms að ásakanir gagnvart móður væru talsvert litilvægar en að faðir gæti réttlætt framgöngu sína?

    Vísir: "Fram kemur að margir þeirra sem hittu dótturina á ákveðnu tímabili hefðu borið um frásagnir hennar af meintu ofbeldi móðurinnar. Þetta væru... sem og sérfræðingar sem voru kvaddir til af hálfu Barnaverndar og dómstóla."

    "Í dómi héraðsdóms er vísað til fjölda sérfræðinga sem hafi ekki tekið undir afstöðu föðurins um að stúlkan gæti ekki umgengist móðurina. Þvert á móti væri það á ábyrgð föðurins að samband móðurinnar og dótturinnar hefði rofnað."

    "Dómkvaddir matsmenn...skoðað málið mjög ítarlega...niðurstöðu að faðirinn hefði brugðist uppeldishlutverki sínu með því að hindra að hún færi aftur til föðurins. Þess í stað hefði hann numið hana á brott til að einangra hana enn frekar gagnvart móðurinni og móðurfjölskyldu.

    Þessir matsmenn mátu ásakanirnar gagnvart móðurinni talsvert lítilvægari en svo að hægt væri að réttlæta framgöngu föðurins. Dómurinn sagðist ekki hafa neina ástæðu til að draga þetta í efa."
    -9
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár