Riftu samningi og greiddu átta milljónir í sáttagreiðslu

Stúd­enta­ráð Háskóla Íslands rifti fimm mán­aða gömlum samn­ingi við rekstr­ar­að­ila Októ­ber­fest, mán­uði áður en hátíðin átti að fara fram. Samn­ing­ur­inn átti að gilda til fimm ára. Til að koma í veg fyrir dóms­mál þurfti SHÍ að greiða 8 millj­ónir í sátta­greiðslu.

Riftu samningi og greiddu átta milljónir í sáttagreiðslu
Djörf ákvörðun Skömmu áður en Októ­ber­fest átti fara fram rifti stjórn SHÍ samn­ingi sínum við við­burð­ar­hald­ara og greiddi átta milljón króna sátt til að koma í veg fyrir hugs­an­legt dóms­mál. Forseti stúd­ent­ráðs segir þessa ákvörðun hafa borgað sig. Mynd: SHÍ

Í mars und­ir­rit­uðu for­seti Stúd­enta­ráðs Háskóla Íslands, umboðs- og við­burða­skrif­stofan Paxal og fyr­ir­tækið Vinir Hall­ar­innar ehf. sam­starfs­samn­ing til fimm ára. Í honum var kveðið á um að Paxal og Vinir Hall­ar­innar skyldu halda áfram að sjá um rekstur Októ­ber­fest SHÍ næstu fimm árin, en fyr­ir­tækin hafa séð um rekstur hátíð­ar­innar síð­ast­lið­inn ára­tug.

Fyrr í sumar tók stjórn Stúd­enta­ráðs ákvörðun um að rifta samn­ingnum. Þann 6. ágúst sam­þykkti eins manns meiri­hluti Vöku á lok­uðum fundi Stúd­enta­ráðs að reiða fram átta millj­ónir í sátta­greiðslu til fyr­ir­tækj­anna til að koma í veg fyrir mögu­legt dóms­mál. Þetta var fimm mán­uðum eftir að samn­ing­ur­inn hafði verið und­ir­rit­aður og aðeins mán­uði áður en hátíðin átti að fara fram.

Vannýtt tækifæri í hátíðinni

„Það voru aðrar áherslur í því hvernig við vildum nálg­ast rekst­ur­inn á hátíð­inni,“ segir Júlíus Viggó Ólafsson, lána­sjóðs­full­trúi SHÍ og odd­viti Vöku, í sam­tali við Heim­ild­ina. Und­an­far­inn ára­tug hafði SHÍ útvi­stað …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár