Mynd: Lögreglan á Suðurnesjum

Tilgangsleysi og gáleysi lýst í rannsókn slyssins í Grindavík

Það svar­aði ekki kostn­aði að fara í fram­kvæmdir við að bjarga hús­inu við Vest­ur­hóp 29 í Grinda­vík, sam­kvæmt skýrslu tveggja mats­manna sem skoð­uðu húsið rúmum mán­uði áður en að verk­taki lést við sprungu­fyll­ingu við húsið. Nátt­úru­ham­fara­trygg­ing vísar ábyrgð á und­ir­verk­taka sinn, Eflu, sem segir engar kröfur hafa verið gerðar um áhættu­mat á verk­staðnum. Lögregla hafði lokið rann­sókn en hóf hana aftur, af ókunnum ástæðum.

„Þetta er bara stór­kost­legt gáleysi af fólk­inu sem stýrir verk­inu.“ 

Svona lýsir sam­starfs­maður Lúðvíks Pét­urs­sonar því í vitna­skýrslu hjá lög­reglu við hvaða aðstæður þeir unnu þegar Lúðvík lést við vinnu sína í Grinda­vík í byrjun árs.

Fram­burður hans og fleira fólks, auk efnis sem lög­reglan afl­aði við rann­sókn sína, eru meðal rann­sókn­ar­gagna sem Heim­ildin hefur undir höndum.

Sú stað­reynd að maður hefði að því er virt­ist horfið ofan í jörð­ina í húsa­garði í Grinda­vík, þann 10. jan­úar síð­ast­lið­inn, vakti eðli­lega óhug og um leið sorg fyrir ást­vini Lúðvíks Pét­urs­sonar, fjögur börn hans, barna­börn, unn­ustu og systk­ini.

Atburð­ur­inn varð líka til­efni ótal spurn­inga sem ætt­ingjar hans köll­uðu eftir að yrði svarað og fóru fram á að það yrði gert í sam­ræmi við lög sem kváðu á um sér­stakar rann­sóknir vegna atburða í tengslum við almanna­varnar­á­stand, eins og þá var …

Kjósa
90
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristbjörn Árnason skrifaði
    Þetta er bara mín tilfinning

    Mér hefur fundist alveg frá upphafi þessara hörmunga í Grindavík eftir fréttum að dæma að hagsmunir atvinnurekenda hafi nánast verið ráðandi í öllu atferli bæjarstjórnar Grindavíkur. Þetta er auðvitað bara mín tilfinning.

    Ef þetta er rétt, að þá hefur þessi hagsmunagæsla fyrirtækja-eigenda verið þjóðinni mjög dýrkeypt. En fyrirtækjaeigendur í Grindavík hafa ætíð ráðið miklu um málefni þessa byggðarlags
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Féll í sprungu í Grindavík

Ekkert skriflegt áhættumat og skipulag aðgerða „nokkuð óreiðukennt“
FréttirFéll í sprungu í Grindavík

Ekkert skrif­legt áhættu­mat og skipu­lag aðgerða „nokkuð óreiðu­kennt“

Vinnu­eft­ir­litið segir að velta megi fyrir sér hvort að fyll­ing í sprungu við íbúð­ar­hús í Grinda­vík hafi verið áhætt­unnar virði. Þegar áhætta sé metin ætti fyrsta spurn­ingin alltaf að vera hvort „algjör­lega nauð­syn­legt“ sé að fram­kvæma til­tekið verk. Eft­ir­litið hefur lokið rann­sókn sinni á hvarfi Lúðvíks Pét­urs­sonar.
Spurði ráðherra hvort til stæði að rannsaka aðdraganda slyssins í Grindavík
FréttirFéll í sprungu í Grindavík

Spurði ráð­herra hvort til stæði að rann­saka aðdrag­anda slyss­ins í Grinda­vík

Þór­hild­ur Sunna Æv­ars­dótt­ir spurði dóms­mála­ráð­herra á Alþingi í dag hvort til stæði að rann­saka að­drag­anda þess að Lúð­vík Pét­urs­son féll í sprungu í Grinda­vík. „Í kjöl­far slyss­ins hef­ur kom­ið fram ósk að­stand­enda um að far­ið verði í sjálf­stæða og óháða rann­sókn á til­drög­um slyss­ins.“
Leituðu svara en fengu símsvara
ViðtalFéll í sprungu í Grindavík

Leituðu svara en fengu sím­svara

Enginn af þeim sem kom að ákvörð­unum eða bar ábyrgð á málum í Grinda­vík, þegar Lúðvík Pét­urs­son hvarf ofan í sprungu, hefur sett sig í sam­band við börn hans eða systk­ini eftir að leit að honum var hætt. „Ósvöruðum spurn­ingum hefur bara fjölgað,“ segir Elías Pét­urs­son, bróðir hans. Það sé sorg­lega íslenskt að þurfa að stíga fram og berj­ast fyrir óháðri rann­sókn. Óboðlegt sé að yfir­völd rann­saki sig sjálf.
Sprungufyllingar búa til ný og hættulegri vandamál
Fréttir

Sprungu­fyll­ingar búa til ný og hættu­legri vanda­mál

Þrír af reynd­ustu jarð­vís­inda­mönnum lands­ins telja það hafa verið mis­ráðið að reyna að fylla upp í sprungur í Grinda­vík í kjöl­far ham­far­anna í nóv­em­ber. „Ég held að þar hafi menn valið ranga leið,“ segir Páll Ein­ars­son. Ármann Hösk­ulds­son telur hægt að fylla í sprungur en þeir sem taki slíkar ákvarð­anir verði að hafa í huga að ekki dugi að „sturta í gatið og vita ekk­ert hvað maður er að gera“.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár