Reynslumikill og varkár fagmaður – faðir, vinur og útivistarmaður

„Missir fjöl­skyldu, vina, vinnu­fé­laga og allra ann­arra sem líf Lúlla snerti er ólýs­an­legur og sökn­uður okkar allra óend­an­legur,“ segir í kveðju­orðum Elíasar Pét­urs­sonar um bróður sinn Lúðvík, sem féll ofan í djúpa sprungu í Grinda­vík, við vinnu sína fyrir Nátt­úru­ham­fara­trygg­ingu Íslands.

Reynslumikill og varkár fagmaður – faðir, vinur og útivistarmaður
Þaul­vanur véla­maður Lúðvík Pét­urs­son hafði unnið við jarð­vinnu sem véla­maður í tvo ára­tugi þegar hann varð fyrir því að stór sprunga opn­að­ist undir fótum hans í húsa­garði í Grinda­vík. Nokkurra sól­ar­hringa erfið og hættu­leg leit að honum skil­aði ekki árangri.

Lúðvík Pét­urs­son var rétt fimm­tugur, faðir fjög­urra barna, afi tveggja og stjúp­faðir tveggja barna Unnar Árna­dóttur, unn­ustu sinnar til nokk­urra ára. Lúðvík, sem alltaf var kall­aður Lúlli af fjöl­skyldu og vinum, er sagður hafa verið reynslu­mik­ill og eft­ir­sóttur gröfu­maður. Hann hafði í rúm­lega tvo ára­tugi starfað við jarð­vinnu­fram­kvæmdir sem vinnu­véla­stjóri.

Lúlli og UnnurParið á ferð­lagi um Ísland. Hér við Svarta­foss í Skafta­felli. Mynd­irnar eru birtar með leyfi Unnar.

Lúðvík var næstyngstur í hópi sex systk­ina sem ólust upp á heim­ili for­eldra sinna á Kjal­ar­nesi fram á ung­lingsár.

Lúðvík lærði vél­stjórn og stund­aði sjó­mennsku, meðal ann­ars í Vest­manna­eyjum, þar sem hann bjó um tíma, áður en hann flutt­ist til Reykja­víkur þar sem hann bjó lengstum.

Sam­starfs­menn Lúðvíks lýsa honum sem lunknum …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár