„Yfirgnæfandi líkur“ á eldgosi á næstu þremur dögum

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir yfir­gnæf­andi líkur á að það byrji að gjósa á Reykja­nesskaga á næstu tveimur dögum. Hann segir að flest bendi til þess að „þakið muni rofna á svip­uðum slóðum og áður“. Hann telur því ekki hættu á að það byrji innan Grinda­víkur þó að hraun geti flætt þangað.

„Yfirgnæfandi líkur“ á eldgosi á næstu þremur dögum
Líkur á að eld­gos byrji eftir tvo til þrjá daga Þor­valdur Þórð­ar­son, eld­fjalla­fræð­ingur segir að magnið sem hefur safn­ast fyrir af kviku sé að nálg­ast það sem var fyrir síð­asta gos. Ef fram haldi sem horfi séu tveir til þrír dagar í að þakið opn­ist og eld­gos byrji. Mynd: Heimildin / Golli

Eftir þrjá daga, eða þann 10. ágúst, verður það magn sem hefur safn­ast fyrir af kviku orðið jafn mikið og síð­ast þegar gaus á Reykja­nesi. Þor­valdur Þórð­ar­son, eld­fjalla­fræð­ingur segir að nú séu því yfir­gnæf­andi líkur á að það byrji að gjósa á allra næstu dögum.  

„Magnið sem hefur safn­ast fyrir af kviku er að nálg­ast það sem var fyrir síð­asta gos. Ef fram heldur sem horfir eru tveir til þrír dagar í að það nái sömu mörkum og í síð­asta gosi. Þetta gæti þýtt að það byrji að gjósa 10. ágúst,“ segir Þor­valdur í sam­tali við Heim­ild­ina. 

Komið að þolmörkum

En svo gæti gosið fyrr, segir hann, eins og sér­fræð­ingar á Veð­ur­stof­unni hafi bent á. „Það er hægt að búast við gosi á hverri stundu, í raun og veru.“  Hins vegar sé það svo að ef það drag­ist meira á lang­inn auk­ist líkur á öfl­ugra gosi. „Því þá er búin að byggj­ast upp meiri þrýst­ingur í hólf­inu en verið hefur áður. Þá er hólfið að stækka líka en hingað til hefur það ekki getað tekið meira en 20 milljón rúmmetra og þegar það er komið á þann stað er það komið að þol­mörkum. Þá hefur þakið yfir­leitt rofnað og kvikan farið til yfir­borðs þannig að ef það fer eitt­hvað fram yfir þetta má búast við öfl­ugra gosi en við höfum séð, að minnsta kosti í byrjun,“ segir Þor­valdur.

„Að mínu viti eru engar líkur á að gos komi upp og byrji innan Grinda­víkur“
Þor­valdur Þórð­ar­son
eld­fjalla­fræð­ingur

Hann segir að ef ekki byrjar að gjósa fyrr en eftir eina til þrjár vikur gætum við verið að fá „eitt­hvað nýtt, aðra mynd sem gæti orðið erf­ið­ari fyrir okkur.“ Byrjun goss­ins yrði þá öfl­ugri, hraun­flæði myndi vera meira. „Þá er erfitt að segja hvað ger­ist. En ég ítreka að yfir­gnæf­andi líkur eru á að það gjósi á allra næstu dögum og þá verður þetta end­ur­tekið efni. Þá mun það byrja með látum í einn, tvo eða þrjá tíma og svo dettur það að mestu niður.“ 

Engar líkur séu á að gos komi upp innan Grindavíkur

Þor­valdur segir það muni að öllum lík­indum gjósa á sömu slóðum og und­an­farið. „Að mínu viti eru engar líkur á að gos komi upp og byrji innan Grinda­víkur. Hraun getur auð­vitað flætt þangað niður eftir. Hraun­kvika getur líka flætt eftir sprungum eða gömlum hraun­hellum í átt­ina að Grinda­vík og komið upp í grennd við bæinn eða inni í bænum eins og gerð­ist 14. jan­úar.

Af hverju ætti það að fara að breyta út af venju?Þor­valdur Þórð­ar­son, eld­fjalla­fræð­ingur segir að gosin hafi, með einni und­an­tekn­ingu, hagað sér með sama hætti og ekk­ert bendi til að breyt­ing verði þar á í þetta sinn.

Það gæti end­ur­tekið sig en ég held að það séu engar líkur á því að það komi upp kvika beint undir Grinda­vík,“ segir hann og bætir við að ef horft sé til fram­vindu eld­gosa á Reykja­nesi í þess­ari hrynu hafi öll gosin byrjað á svip­uðum slóðum  að gos­inu 14. jan­úar und­an­skildu.  „Veik­leik­inn í þak­inu á henni virð­ist vera að aust­an­verðu, það opn­ast og þá fer kvikan bara beint upp og í gíga sem byrja að gjósa. Síðan opn­ast þetta eins og blæ­vængur til norð­urs og suð­urs.“

„Það er búið að koma sér í ákveð­inn far­veg og vill halda sig í honum“
Þor­valdur Þórð­ar­son
eld­fjalla­fræð­ingur

Eina spurn­ingin sé hversu langt suður og norður hún muni ná. „Hún hefur auð­veld­lega farið að Sundhnúk sjálfum. Í stöku til­fellum hefur hún farið lengra, austan við Haga­fellið en hún virð­ist eiga erfitt með að kom­ast mikið sunnar. Það virð­ist vera ein­hver fyr­ir­staða þarna rétt sunnan við Haga­fellið sem veldur því að gossprungur eiga erfitt með að teygja sig mikið lengra en þangað. Ég veit ekki hvað það er en þannig hafa gosin hagað sér og meðan kerfið er að haga sér nákvæm­lega eins núna sé ég enga ástæðu til að þetta verði ekki eins og áður. Af hverju ætti það að fara að breyta út af venju? Það er búið að koma sér í ákveð­inn far­veg og vill halda sig í honum“ segir Þor­valdur.

 

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Reykjaneseldar

Hraunið gæti flætt yfir fjarskiptastöð Bandaríkjaflota
FréttirReykjaneseldar

Hraunið gæti flætt yfir fjar­skipta­stöð Banda­ríkja­flota

Benedikt G. Ófeigs­son, jarð­eðl­is­fræð­ingur og fag­stjóri aflög­un­ar­mæl­inga hjá Veð­ur­stofu Íslands, segir gríð­ar­legt magn hrauns flæða úr sprung­unni sem opn­að­ist nærri Sund­hnúkum norðan við Grinda­vík í dag. Dragi ekki úr flæð­inu gæti flaum­ur­inn flætt að varn­ar­görð­unum vestan við Grinda­vík og að fjar­skipta­stöð banda­ríska flot­ans sem stað­sett nálægt Grinda­vík.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár