Myndband: Eldgosið sést skýrt frá Reykjavík

Hraun hefur farið yfir Njarð­vík­uræð sem færir heitt vatn frá Svarts­engi til Fitja. Enn berst heitt vatn um æðina. Eldgos hófst í Sund­hnúka­gíga­röð­inni upp úr klukkan ell­efu í gær­kvöldi. Skömmu áður hafði Veð­ur­stofan varað við kviku­hlaupi. Þetta er sjötta eld­gosið á árinu en það sést vel frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Eld­gos hófst á Sund­hnúka­gíga­röð­inni kl. 23:14 í gær­kvöld, fimmtán mín­út­um eft­ir að Veð­ur­stof­an var­aði við kviku­hlaupi, sem fyrst kom fram á mæl­um um kl. 22:30. Gossprung­an opn­að­ist á milli Stóra Skóg­fells og Sýl­inga­fells.

Heið­skýrt er á suð­vest­ur­horn­inu og á mynd­band­inu sem hér fylgir, sem Golli, ljós­mynd­ari Heim­ild­ar­innar, tók í morgun sést eld­gosið vel frá Reykja­vík.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá HS Veitum hefur hraun farið yfir Njarð­vík­uræð sem færir heitt vatn frá Svarts­engi til Fitja þar sem HS Veitur fá heitt vatn afhent til dreif­ingar frá HS Orku.

Njarð­vík­uræð fór síð­ast undir hraun í febr­úar síð­ast­liðin með þeim afleið­ingum að Suð­ur­nesin voru án heits vatns í nokkra daga. Talið er að lögnin sé vel varin þar sem hrauntungan fór nú yfir og til sam­an­burðar er Grinda­vík­ur­æðin undir um kíló­met­ers kafla af hrauni frá fyrra eld­gosi og heldur sú lögn enn.

Heitt vatn er enn að ber­ast um Njarð­vík­ur­æð­ina og vonir standa til að svo verði áfram, það er þó ekki á vísan að róa í þeim efnum. 

Svarts­eng­is­lína Lands­nets sem teng­ist orku­ver­inu í Svarts­engi er rofin vegna hraun­flæðis. Það olli raf­magns­truflun á öllum Suð­ur­nesjum en ætti ekki að hafa frek­ari áhrif á afhend­ingu raf­magns í Reykja­nesbæ, Suð­ur­nesjabæ og Vogum en raf­magns­laust er nú í Grinda­vík.

Virknin í eld­gos­inu virð­ist hafa náð hámarki í nótt. Gossprung­una er hætt að stækka og sam­kvæmt þeim merkjum sem sjást á mælum Veð­ur­stof­unnar virð­ist ekk­ert benda til þess að virknin muni aukast.

Lengd gossprung­unnar er metin vera um 3 km. Hraun­straum­ur­inn dreif­ist bæði til aust­urs og vest­urs. Ekkert hraun­flæði er í átt til Grinda­víkur. Á þessum tíma­punkti eru um 500 m frá hraunjaðr­inum í vestur að Grinda­vík­ur­vegi.

Veð­ur­stofan upp­færði hættu­mat í nótt, 20. nóv­em­ber. sem gildir til klukkan 15:00 þann 22. nóv­em­ber, að öllu óbreyttu. Hætta hefur verið aukin á öllum svæðum nema svæði 7, sam­an­ber mynd­ina hér að neðan. Mikil hætta (fjólu­blátt) er á svæði 3, þar sem upp­tök eld­goss­ins eru. Á svæðum 1, 4 og 6 hefur hætta verið aukin í mikla (rauð).

Það sem vekur athygli er að skjálfta­virknin var ekki tekin að vaxa vik­urnar fyrir gos líkt og hafði gerst í fyrri atburðum, segir í upp­lýs­ingum frá Veð­ur­stof­unni. Kviku­magnið sem safn­ast hafði undir Svarts­engi var svipað og fyrir síð­asta gos. Þróunin und­an­farið hefur hins vegar verið sú að sífellt meira magn af kviku hefur þurft að safn­ast fyrir til að koma af stað næsta atburði. Þetta er vís­bend­ing um að það munstur sem sést hefur hingað til í fyrri eld­gosum er mögu­lega að breyt­ast.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Reykjaneseldar

Hraunið gæti flætt yfir fjarskiptastöð Bandaríkjaflota
FréttirReykjaneseldar

Hraunið gæti flætt yfir fjar­skipta­stöð Banda­ríkja­flota

Benedikt G. Ófeigs­son, jarð­eðl­is­fræð­ingur og fag­stjóri aflög­un­ar­mæl­inga hjá Veð­ur­stofu Íslands, segir gríð­ar­legt magn hrauns flæða úr sprung­unni sem opn­að­ist nærri Sund­hnúkum norðan við Grinda­vík í dag. Dragi ekki úr flæð­inu gæti flaum­ur­inn flætt að varn­ar­görð­unum vestan við Grinda­vík og að fjar­skipta­stöð banda­ríska flot­ans sem stað­sett nálægt Grinda­vík.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár