„Ætlar þú ein lítil stelpa í alvöru að fara upp á móti manni með stjórnmálaflokk á bak við sig?“

Kona sem var nauðgað af þjóð­þekktum manni kom alls staðar að lok­uðum dyrum þegar hún lagði fram kæru, sér­stak­lega hjá lög­reglu og rétt­ar­gæslu­mönnum sem neit­uðu að taka málið að sér vegna þess hver hann var. Þetta var fyrir 25 árum. Yfir­maður kyn­ferð­is­brota­deildar lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu segir að frægir fái enga sér­með­ferð í dag hjá deild­inni.

„Ætlar þú ein lítil stelpa í alvöru að fara upp á móti manni með stjórnmálaflokk á bak við sig?“
Ævar Pálmi yfir­maður kyn­ferð­is­brota­deildar lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu seg­ist finna fyrir pressu úr sam­fé­lag­inu þegar kyn­ferð­is­brot frægra ein­stak­linga eru til rann­sóknar á deild­inni. Hann segir að þrátt fyrir press­una fái frægir enga sér­með­ferð í deild­inni. Mynd: Jóhannes Kr.

„Þegar ég ákvað loks­ins að kæra mörgum árum eftir að nauðg­unin átti sér stað, kom ég alls staðar að lok­uðum dyrum og þá sér­stak­lega hjá lög­reglu og rétt­ar­gæslu­mönnum sem neit­uðu að taka málið að sér vegna þess hver hann var,“ segir kona sem sak­aði þing­mann um kyn­ferð­is­brot fyrir 25 árum.

Jóhannes Kr. Krist­jáns­son fjallar um þetta í nýjasta þætti hlað­varps­ins Á vett­vangi, sem jafn­framt er loka­þáttur ser­í­unnar. Þar segir hann að fyrir um 15 árum, á þeim tíma sem hann fjall­aði tals­vert um kyn­ferð­is­brot og barn­a­níð­inga í frétta­skýr­inga­þætt­inum Kompási á Stöð 2 hafi fjöl­margir brota­þolar haft sam­band við hann. 

„Þegar þessi fyrsta þátta­röð af Á vett­vangi fór í loftið fékk ég bréf frá konu sem bað mig um aðstoð þegar ég var rit­stjóri Kompáss á Stöð 2.  Ég fékk leyfi hjá kon­unni að birta brot úr bréf­inu sem hún sendi mér og hún bað mig um að gefa ekki upp …

Kjósa
64
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Snorri Kristinsson skrifaði
    Er vitað um hvern ræðir? Eða er það vegna þess að hann er háttsettur að ekki megi deila nafni viðkomandi?
    4
  • Ingunn Björnsdóttir skrifaði
    Mál Alberts Guðmundssonar var fellt niður þar sem það þótti ekki líklegt til sakfellingar. Niðurfellingin var kærð og nú er Albert ákærður og málið á leið fyrir dómstóla. Kynferðisbrotadeildin má eflaust ekki tjá sig um málið, en þetta ferli vekur óneitanlega grun um að einhvers staðar á leiðinni kunni einhverskonar sleifarlag eða hroðvirkni að hafa ráðið för. Eða eitthvað annað.
    6
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    : En hvað með þjóðþekkta og valdamikla menn í samfélaginu - ef að þeir eru kærðir fyrir brot á hegningalögum,stjórnarskrá, stjórnsýslulögum,lögfræðingalögum,lögrerglulögum, persónuverndar lögum, lögum um bankaleynd,sakamállögum.auk brota á alþjóðalögum og mannréttindasáttmálum?
    11
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Á vettvangi

Vont að senda varnarlausar konur aftur í sömu stöðu
Á vettvangi

Vont að senda varn­ar­lausar konur aftur í sömu stöðu

Jóhanna Erla Guð­jóns­dóttir er félags­ráð­gjafi á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans. Þar tekst hún á við myrk­ustu hliðar mann­lífs­ins, en seg­ist helst reið­ast yfir því að rekast á sömu vegg­ina aftur og aftur, þegar úrræðin eru engin. Til dæmis varð­andi konur sem búa á göt­unni, verða fyrir ofbeldi og eiga sér hvergi skjól. Þrátt fyrir áskor­anir segir hún starfið það besta í heimi.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár