Gerir grín að fánaræðu Miðflokksins: „Ætlum að hlæja að hatrinu“

Sindri Sparkle stígur á svið um helg­ina og ætlar að gera grín að fána­upp­hlaupi Mið­flokks­ins en vara­for­mað­ur­inn kveink­aði sér undan sýni­leika hinseg­in­fán­ans í grunn­skólum Reykja­vík­ur­borgar.

Gerir grín að fánaræðu Miðflokksins: „Ætlum að hlæja að hatrinu“
Sindri Sparkle Segir að ef það er hægt að fá fólk til þess að hlæja, þá sé hægt að fá fólk til þess að læra.

Uppi­stand­ar­inn og fána­á­huga­kvá­rið Sindri Sparkle Freyja verður með uppi­stand á laug­ar­dag­inn næst­kom­andi, 25. apríl, um þar sem hún ætlar að fara yfir sögu hinseg­in­fán­ans. Uppi­standið fer um víðan völl og afrakstur loka­verk­efnis Sindra í graf­ískri hönnun tengt fánum auk þess sem hán hyggst gefa út bók um efnið sam­hliða sem hefur verið í þróun í þrjú ár. 

„Bókin fjallar um sögu hinsegin fólks á meiri svona akademískan hátt, en það er vel hægt að gera uppi­stand upp úr þessu,“ segir Sindri. Hán seg­ist hafa orðið að stökkva á augna­blikið en stefndi á að sýna uppi­standið í júní sam­hliða útgáfu bók­ar­innar, en Snorri Másson kemur óneit­an­legan við sögu, þar sem hann hefur nú fléttað sig inn í sögu fán­ans.

„Svo fer þessi umræða í gang, ein­hver náungi sem var ein­hvern tím­ann lélegur frétta­maður og er núna slappur stjórn­mála­maður er eitt­hvað að reyna að trig­gera libbana,“ segir Sindri hlæj­andi. Þarna …

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár