Sjávarútvegurinn myndi njóta góðs af upptöku evrunnar að mati hagfræðings og lífeyrissjóðir myndu fá mikið frelsi til þess að fjárfesta annars staðar en á Íslandi, þar sem hlutabréfaeign þeirra er um helmingur allra hlutabréfa á Íslandi. Neytendur myndu njóta góðs af myntsamstarfinu og samkeppni hér á landi myndi óhjákvæmilega aukast út af myntbandalaginu. Vextir myndu færast nær þeim sem eru í Evrópu og á því hagnast þjóðin öll. Það er þó ekkert einfalt við upptöku evrunnar, það getur tekið tíma og svartasta sviðsmyndin gæti birst í djúpri krísu, sem yrði þá á ábyrgð lélegrar hagstjórnar.
„Stutta svarið er að ef við göngum inn í ESB mun okkur án efa takast að taka upp evruna á einhverjum tímapunkti. En það er ekki auðvelt ferli,“ útskýrir Gylfi Magnússon, hagfræðingur og prófessor við Háskóla Íslands og fyrrverandi fjármálaráðherra í tíð ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur, þegar Ísland var í samningaviðræðum við ESB.
Gylfi …





























Athugasemdir