„NATO verður að halda áfram að vera sameinað“

Giorgia Meloni, for­sæt­is­ráð­herra Ítalíu, segir að styrkja verði evr­ópska stoð NATO „sem verður aug­ljós­lega að vera við­bót við þá banda­rísku“. Pedro Sanchez, for­sæt­is­ráð­herra Spánar, sagð­ist „engar áhyggjur“ hafa eftir að nafn­laus heim­ild­ar­maður Reuters sagði Banda­ríkja­stjórn skoða leiðir til að víkja Spáni úr Atl­ants­hafs­banda­lag­inu.

„NATO verður að halda áfram að vera sameinað“
Styrkari stoðir Meloni full­yrti á leið­toga­fundi Evr­ópu­sam­bands­ins að NATO yrði áfram mið­lægt í vörnum Evrópu en ítrek­aði að styrkja þyrfti evr­ópska stoð banda­lags­ins. Mynd: Jewel SAMAD / AFP

Giorgia Meloni, for­sæt­is­ráð­herra Ítalíu, hvatti í dag banda­lags­ríki NATO til að standa saman, eftir fréttir um að Banda­ríkin íhug­uðu aðgerðir gegn Spáni vegna neit­unar þeirra um að styðja aðgerðir gegn Íran.

„NATO verður að halda áfram að vera sam­einað. Ég tel það vera styrk­leika­gjafa,“ sagði Meloni við frétta­menn þegar hún sótti leið­toga­fund ESB í Nikósíu á Kýpur.

Frétta­stofan Reuters vitn­aði í nafn­lausan banda­rískan emb­ætt­is­mann sem sagði að varn­ar­mála­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna hefði lagt drög að mögu­legum aðgerðum til að refsa banda­lags­ríkjum fyrir við­brögð þeirra við stríð­inu í Íran, þar á meðal að víkja Spáni úr banda­lag­inu.

Ekkert ákvæði er í NATO-sátt­mál­anum sem heim­ilar brott­vikn­ingu eða brott­rekstur eins af aðild­ar­ríkjum banda­lags­ins.

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, hefur ítrekað gagn­rýnt banda­lags­ríki NATO fyrir að neita að leggja meira af mörkum í stríð­inu í Íran og sagt að hann líti á það sem svik.

Sum þeirra – Frakk­land, Spánn …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár