Spánn—England: Spánverjar virtust ósigrandi, en seigla Englendinga bjargaði þeim

Spánn og England munu leika til úrslita á Evr­ópu­meist­ara­móti karla í fót­bolta í kvöld. Flestir spá Spán­verjum sigri. En munu Eng­lend­ingar geta sótt sér eld­móð og styrk í sög­una um fyrstu eig­in­legu stríðs­á­tök þjóð­anna þegar heims­veldið Spánn beið öllum að óvörum lægri hlut?

Spánn—England: Spánverjar virtust ósigrandi, en seigla Englendinga bjargaði þeim
Flotar Spán­verja og Eng­lend­inga kljást í Ermar­sundi. Spán­verjar höfðu þá rauða fána með hvítum krossi, rétt eins og fáni Dana.

Íkvöld, 14. júlí 2024, fer fram úrslita­leikur Spánar og Englands á Evr­ópu­móti lands­liða í fót­bolta karla. Einmitt um þetta leyti árs fyrir 436 árum voru hins vegar að hefj­ast þau átök milli land­anna sem áttu eftir að standa með hléum í rúm 200 ár og voru á sinn hátt hluti af Evr­ópu­keppni stór­velda um völd, auð­æfi og áhrif.

Munu fót­boltaliðin í kvöld geta dregið ein­hvern lær­dóm af gangi mála árið 1588?

Gáum að því.

Á fyrri hluta 16. aldar varð Spánn með fremur skjótum hætti rík­asta og vold­ug­asta stór­veldi Evrópu. Þar kom tvennt til.

Í fyrsta lagi sigl­ingar og landa­fundir. Frá nýlendum Spán­verja í Ameríku og víðar tók að ber­ast gíf­ur­legt her­fang svo Spán­verjar vissu stundum varla aura sinna tal.

Í öðru lagi komst Spánn undir veldi hinna mið­evr­ópsku Habs­borg­ar­ara og á veldi Karls 5. frá 1516 til 1556 var gríð­ar­legt. Hann réði Spáni og öllum nýlendum lands­ins, Nið­ur­löndum, stórum hlutum Þýska­lands, Mið-Evrópu og Aust­ur­ríkis og miklum löndum á Ítalíu.

Og þá rann upp það sem kallað hefur verið „gullöld Spánar“.

Þótt Karl skipti svo veldi sínu milli sona sinna þannig að Ferdin­and varð keis­ari Germ­anska veld­is­ins í Mið-Evrópu en Filippus 2. kóngur yfir öðrum hlutum rík­is­ins voru áfram mikil og náin tengsl milli þeirra landa sem Habs­borg­ar­arnir réðu.

Um mið­bik 16. aldar voru siða­skiptin í Evrópu svo mjög á döf­inni og kost­uðu ill­deilur og erjur og stundum stríð á stórum svæðum en þjóð­höfð­ingjar Habs­borg­ara voru jafnan tryggi­lega fremstir í flokki þeirra sem verja vildu kaþ­ólsku kirkj­una.

England skríður saman

Í byrjun 16. aldar var England fremur lít­ils meg­andi en þó enn í hópi stór­velda. Eng­lend­ingar höfðu tapað hund­rað ára stríð­inu gegn Frökkum á 15. öld og síðan hafði orka lands­manna farið í ill­vígt borg­ara­stríð, Rósa­stríðin.

Undir stjórn Hinriks 8. hófst upp­gangur Englands að nýju. Eftir að hann sagði skilið við Róm­ar­kirkju fremur af prí­vats­á­stæðum en trú­ar­legum varð hins vegar ljóst að England hlyti fyrr eða síðar að lenda upp á kant við stór­veldin á meg­in­landi Evrópu.

Elísabet dóttir hans sett­ist í hásætið 1558. Hún átt­aði sig á því að England hafði í bili litla burði og of lít­inn her­styrk til að láta að ráði að sér kveða á meg­in­land­inu og beindi því athygl­inni að haf­inu og sigl­ingum, verslun og við­skiptum.

Góð tengsl framan af 16. öld

Langt fram eftir öld­inni voru tengsl Spánar og Englands heldur góð þrátt fyrir mis­mun­andi áherslur í trú­ar­brögðum og sam­keppni á haf­inu.

Karl 5. hafði reynt að ná Englandi undir sinn ægis­hjálm með því að láta Filippus son sinn kvæn­ast Maríu, eldri dóttur Hinriks 8. en hún var kaþ­ólsk eða alt­ént mjög veik fyrir pápism­anum. Meðan hún var drottn­ing 1554-1558 tald­ist Filippus því form­lega vera kon­ungur Englands þó hjóna­bandið væri varla nema nafnið tómt. 

Eftir lát Maríu bað Filippus Elísa­betar, því hann vildi við­halda tengsl­unum við England. Hún lét lík­lega við hann um skeið en brátt kom á dag­inn að hún vildi engum gef­ast. Þrátt fyrir höfn­un­ina reyndi Filippus lengi að halda góðu sam­bandi við Eng­lend­inga en 1588 braust hins vegar út alls­herjar stríð milli land­anna.

Trúardeilur og sjórán

Ástæð­urnar voru ýmsar, en nokkrar helstar.

Filippus Spán­ar­kóngur

Í fyrsta lagi að Elísabet var þá farin að aðstoða með ráðum, dáð og her­styrk þá Hol­lend­inga, mót­mæl­endur auk­in­heldur, sem gert höfðu upp­reisn gegn yfir­ráðum Fil­ippusar í Nið­ur­löndum.

Í öðru lagi voru gæð­ingar Elísa­betar með vit­und og vilja hennar farnir að ástunda mark­viss sjó­rán og árásir gegn „silf­ur­flotum“ þeim sem fluttu ráns­feng Spán­verja frá Ameríku yfir Atl­ants­hafið.

Og svo í þriðja lagi hafði Elísabet látið háls­höggva frænku sína, Maríu Stúart fyrrum Skota­drottn­ingu 1587.

Hún var kaþ­ólsk og kaþ­ólikkar höfðu lengi gert sér vonir um að hún kæm­ist til valda á Englandi og myndi hefja fána páfans á loft þar á ný.

Flotinn ósigrandi leggur úr höfn

Stríðs­á­tök milli Spán­verja og Eng­lend­inga höfðu raunar haf­ist í smáum stíl 1585 en nú ákvað Filippus að láta ærlega til skarar skríða.

Seint í júlí 1588 lagði mik­ill floti upp frá höfnum á Spáni og Portúgal, sem Spán­verjar réðu þá um skeið, og stefndi í norður yfir Biscaya-fló­ann. Skipin voru tölu­vert á annað hund­rað, þar af 24 her­skip af stærstu gerð og auk þess fjöldi vopn­aðra kaup­fara.

Um borð voru um 10 þús­und sjóliðar og tæp­lega 20 þús­und her­menn sem setja átti í land á Englandi. Einnig átti flot­inn að flytja um 32 þús­und her­menn frá Flandri (núver­andi Belgíu) yfir til Englandi.

Rúmlega 52 þús­und manna her Spán­verja átti svo að stefna til London, sigra lið Elísa­betar og setja hana af.

Mistök Spánverja

Ef tek­ist hefði að setja her­inn á land er lít­ill vafi á að svo öfl­ugur her hefði átt alls­kostar við það her­lið sem Elísabet hefði getað smalað saman.

Elísabet 1.

En Spán­verjar gerðu hins vegar hver mis­tökin á fætur öðrum enda var yfir­for­ingi liðs­ins, her­tog­inn af Sidonia, alls óreyndur flota­for­ingi. Honum tókst ekki að knýja fram alls­herjar orr­ustu við enska flot­ann og ryðja honum þannig úr vegi heldur héldu ensku skipin uppi lát­lausum árásum á „flot­ann ósigr­andi“ eftir að komið var í Ermar­sundið.

Tjón Spán­verja varð lítið en smátt og smátt fór skipu­lag flot­ans að riðl­ast og Sidonia náði ekki að lenda við Flandur og taka þar upp her­inn sem beið.

Mikill stormur við eystra mynni Ermar­sunds dreifði svo spænska flot­anum. Sá stormur gerði gæfumun­inn fyrir Elísa­betu.

Innrás Spán­verjar var blásin af.

Og þá fóru í hönd verstu hörm­ungar Spán­verja. Skip þeirra urðu að sigla norður fyrir Bret­lands og svo vestur fyrir Írland og á þess­ari leið strönd­uðu eða sukku tugir skipa.

Lærdómur fyrir enska þjálfarann?

Elísabet hrós­aði happi en gamli von­bið­ill­inn hennar (og mágur) sat sneyptur eftir í Madrid.

Alls er talið að Spán­verjar hafi misst 44 skip á þessu flani Fil­ippusar kon­ungs og vel rúm­lega 15 þús­und her­menn og sjó­menn hafi látið lífið.

Þetta voru fyrstu veru­legu átök Spán­verja og Eng­lend­inga og lauk með afger­andi sigri þeirra síð­ar­nefndu.

Vel er hægt að segja að það hafi ekki verið hreysti Eng­lend­inga sem vann sigur á flot­anum ósigr­andi.

Spán­verjar koll­keyrðu sig sjálfir með van­hæfni á örlaga­stundu, auk þess sem veðrið hafði mjög mikið að segja. En Eng­lend­ingar sýndu þó þol­gæði og þá hern­að­ar­visku að bíða síns tíma.

Kannski enska lands­liðið muni í dag geta dregið lær­dóm af því?

Athugið að kon­ungur Spánar, sem verður við­staddur leik­inn í kvöld, hann heitir einmitt Filippus!

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

2
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár