Spyr hvort fyrirtæki og almenningur eigi að kaupa rándýra orku af stóriðjunni

For­stjóri stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækis Íslands gagn­rýnir harð­lega hug­myndir um að leysa eigi skort á umframorku til fiski­mjöls­verk­smiðja, með því að neyða fyr­ir­tækin og neyt­endur í við­skipti við stór­iðjur lands­ins, fyrir upp­sprengt verð. Tillaga um að stór­iðjan fái að selja frá sér ónýtta orku, sem hún fær í gegnum lang­tíma­samn­inga, liggur nú fyrir Alþingi.

Spyr hvort fyrirtæki og almenningur eigi að kaupa rándýra orku af stóriðjunni
Óttast upp­sprengt stór­iðju­verð Guð­mundur Krist­jáns­son, for­stjóri Brims hf, er veru­lega ósáttur við aðgengi að raf­magni til rekst­urs fiski­mjöls­verk­smiðju félags­ins á Vopna­firði. Fjár­fest­ing í raf­væð­ingu nýt­ist ekki þar sem brenna þurfi olíu til að halda bræðsl­unni í drift.

„Eða kemur að því á næst­unni að Brim og önnur fyr­ir­tæki á Íslandi þurfi að kaupa raf­magn af stór­iðj­unni á upp­sprengdu verði þar sem stór­iðjan hefur gert lang­tíma raf­orku­samn­inga við Lands­virkjun en íslenskt atvinnu­líf og almenn­ingur ekki?“

Að þessu spyr Guð­mundur Krist­jáns­son, for­stjóri Brims, í til­kynn­ingu til fjár­festa vegna upp­gjörs fyr­ir­tæk­is­ins á fyrsta árs­fjórð­ungi þessa árs. Afkoma Brims var undir vænt­ingum, enda dróst vöru­sala saman á milli ára og hagn­aður á tíma­bil­inu var rétt um þriðj­ungur þess sem hann var fyrir ári, tæpar 19 millj­ónir evra þá en 4,5 millj­ónir evra. 

Veiðar og verð á bol­fiski voru upp og niður; minna veidd­ist af þorski í Barents­haf­inu, ufs­inn gaf sig einnig treg­lega en á móti hækk­aði afurða­verð á því sem veidd­ist og unnið var og fryst um borð í skipum Brims, en lækk­aði að sama skapi þegar afli var unnin í landi.

Einna mest mun­aði þó um að …

Kjósa
51
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (9)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    Það eru LANDRAÐ ef ALRISARNIR fa leifi að selja umfram orku. Þeir fa raforku a TOMBOLUVERÐI 80% af orku Islands fer i Storyðju. Island farf að visa þessum Afætum ur landi og nyta orkuna til eigin þarfa. 1971 er Olafur Johanesson tok við með sitt Raðuneyti, voru mal ALO SWISS ljot ja ljot. Viðreysnarstjornin hafði feltt Gengi kronunar TREKK i TREKK Lan Landsvirkjunar vegna Burfellsvirkjunar höfðu snarhækkað. Orkusala til ISAL vog ekki upp i lanin sem voru i $$$, mismuninum var velt yfir a Heimilin i landinu.
    11 kronur kostsði 1 MIL i Burfelli. Landsvirkjun seldi i Straumsvik 1 MIL a 7 kronur.
    Mogganum þotti þetta sjalfsagt. Heimilin i landinu Greiddu mismunin. Rirnun var i hafi a Surali. ÞJOFNAÐUR. Hjörleifur Guttormsson eiddi miklum tima i að kljast við GLÆPAMENN. Til stoð að Rjufa raforku til ISAL.
    Alverið a Reyðarfirði Borgaði ekki Tekjuskatt fyr en 2023 SVIK
    Sama er með Alverið i Hvalfirði, Mutur og svik i Massa vis, og Mikill MENGUN
    Sagt er að þessi storyðja se GLOPAGULL. Þvi þarf að LOKA með öllum Hugsanlegum Raðum. Við þurfum ORKUNA SJALF.
    0
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Þessi hugmynd að leyfa stóriðjunni að selja rafmagn áfram inn á netið er galin. Las fyrir margt löngu um, að mig minnir, Alcoa, sem náði svo góðum rafmagnskaupasamningi í Brasilíu, að þeir hættu við að reisa verksmiðjuna en seldu í staðinn rafmagnið inn á netið, og græddu vel.
    1
  • Arnar Guðmundsson skrifaði
    Ónotaður “kvóti” í rafmagni og í öðrum auðlindum landsins ætti að vera miðlað afram af eigendum. Íslenskri þjóð. Einnig ætti að stöðva útþenslu erlendra fyrirtækja í orkuframleiðslu við nýtingu íslenkra auðlinda.
    1
  • GEJ
    Gudmundur Eyjólfur Jóelsson skrifaði
    Maður spyr sig að því hvernig alþingis mönnum dettur í hug þessi foráttu heimskri hugmynd, í hvaða veröld eru þessir menn eða konur sem leggja slíkt fram? Er þetta sem koma skal rándýrt rafmagn til allra ?
    1
  • Grétar Reynisson skrifaði
    Alveg eins og að kvótinn erfist má þá ekki stóriðjan ráðskast með rafmagnið að vild ?
    1
  • Gunnlaugur H. Jónsson skrifaði
    Vandann má skrifa á vanmiðlað raforkukerfi. Nær árlega stefnir í að miðlunarlón Landsvirkjunar tæmist og því þarf að skammta rafmagn til að tryggja afhendingu til almennings til vors. Miðlunarlón á Íslandi geta geymt 5 TWh eða sem samsvarar 25% af ársframleiðslu. Lón í Noregi geta geymt 17 sinnum meira, 87 TWh sem samsvarar 58% af ársframleiðslu og hafa vinninginn þó miðað sé við hina frægu höfðatölu.
    3
  • G
    gs3 skrifaði
    Ekki gott að þurfa að brenna olíu en ekki hægt að reikna með að alltaf bíði orka á útsölu þegar hentar. Hverjir eru það aftur sem geta selt fiskveiðiheimildir í dag? Auðvitað ætti að vera til fiskveiðikvóti sem almenningur og íslenskt atvinnulíf gætu gengið að fyrir lækkað verð þegar þeim hentar eins og Brim vill hafa varðandi raforkuna.
    6
  • Anna Á. skrifaði
    Spurningin er einfaldlega þessi: Má stóriðjan annarsvegar, skila vöru til raforkunetsins á sama verði og þeir borguðu fyrir hana, eða verður hinsvegar stóriðjan að raforkusala, sem er milliliður með álagningu á raforkuverðið.
    4
  • Jóhann Þór Magnússon skrifaði
    Í dag er almenningur að niðurgreiða rekstur fiskimjölsverksmiðja - algjört rugl. Auðvitað eiga fiskimjölsverksmiðjurnar að borga raunverð/markaðsverð fyrir rafmagnið. Þannig er það allstaðar í samanburðarlöndum okkar. Löggjöf raforkumála hér er 20-30 árum á eftir samanburðarlöndum og við því algjörlega ósamkeppnisfær í raforkumálum. Kaup á umframorku af stóriðjunni er gott fyrsta skref í að koma okkur inn í nútímann í raforkumálum.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár