Björgólfur greiðir 840 milljóna skaðabætur um áramótin

Björgólfur Thor Björg­ólfs­son fjár­festir mun greiða Hval hf. og Fisk­veiði­hluta­fé­lag­inu Venusi umsamdar greiðslur vegna rekstrar meintra óeðli­legra við­skjpta­hátta í rekstri Lands­banka Íslands um næstu ára­mót. Greint var frá millj­arðs króna upp­gjöri fjár­fest­is­ins vegna hóp­mál­sókna nú í maí.

Björgólfur greiðir 840 milljóna skaðabætur um áramótin
Frestun á stærstum hlut­anna skaða­bót­anna Björgólfur Thor Björg­ólfs­son fær frest til ára­móta til að greiða stærstan hluta skaða­bót­anna í hóp­mál­sókn fyrr­ver­andi hlut­hafa Lands­banka Íslands gegn honum. Félög Krist­jáns Lofts­sonar munu fá rúm­lega 300 millj­ónir króna frá honum um ára­mótin. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Kristján Loftsson, for­stjóri Hvals hf. og stærsti hlut­hafi, greindi frá því á aðal­fundi félags­ins laug­ar­dag­inn 25. maí að fjár­festir­inn Björgólfur Thor Björg­ólfs­son myndi greiða félög­unum Hval hf. og Fisk­veiði­hluta­fé­lag­inu Venusi 320 millj­ónir króna í skaða­bætur um næstu ára­mót. Skulda­bréf þar að lút­andi lægi fyrir og að upp­hæðin væri því ekki komin til félag­anna. Þetta herma upp­lýs­ingar Heim­ild­ar­innar. 

Um er að ræða upp­gjör Björg­ólfs Thors við Hval og Venus vegna hóp­mál­sóknar fyrr­ver­andi hlut­hafa Lands­banka Íslands sem velkst hefur um í dóms­kerf­inu í fjölda­mörg ár. For­sendur hóp­mál­sókn­anna gegn Björgólfi Thor er að fyrr­ver­andi hlut­hafar Lands­banka Íslands töldu sig hafa orðið fyrir fjár­hags­legu tjóni þegar banka­hrunið reið yfir haustið 2008.

„3.539.232 evrur greið­ast með skulda­bréfi sem verður með Euribor vöxtum og gjald­daga þann 31.12.2024.“
Af heima­síðu lög­manns hóp­mál­sókn­ar­fé­lag­anna

Þrettán ára saga á enda

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár