Ruglað saman við Höllu T. og drakk frítt allt kvöldið

Anna Þóra Björns­dóttir vissi ekki hvaðan á sig stæði veðrið þegar fólk fór að vinda sér upp að henni fyrr í maí og tjá henni að það ætl­aði að kjósa hana til for­seta Íslands. Svo átt­aði hún sig á því hvað væri í gangi, kjós­end­urnir héldu að þeir væru að tala við Höllu Tóm­as­dóttur for­seta­fram­bjóð­anda, ekki Önnu Þóru, eig­anda Sjáðu.

Ruglað saman við Höllu T. og drakk frítt allt kvöldið
Ekki í fram­boði Anna Þóra skellti sér í ein­kenn­is­bún­ing Höllu Tóm­as­dóttur fyrir mynda­tök­una: bleikan jakka með háls­klút í stíl. Mynd: Golli

Mér finnst þú æðis­leg, ég ætla að kjósa þig,“ sagði karl­maður við Önnu Þóru Björns­dóttur, eig­anda gler­augna­versl­un­ar­innar Sjáðu, þar sem hún var í góðu yfir­læti á djamm­inu á Kjarval 8. maí síð­ast­lið­inn. Anna Þóra hváði, skaust á kló­settið og kom svo aftur á bar­inn. Fleiri menn komu upp að henni: „Þú ert algjört æði, við ætlum að kjósa þig.“

En Anna Þóra var ekki í neins konar fram­boði á þessum tíma og því nán­ast ómögu­legt að kjósa hana í nokkuð. „Þessir menn komu upp að mér alveg 100 pró­sent öruggir og þuldu upp fyrir hvað ég stæði.“

Það voru gildi Höllu Tóm­as­dóttur sem um ræddi. „Ég fatt­aði strax að þeir væru að rugla okkur saman en svona lag­legar ljós­hærðar konur vekja alltaf svo mikla lukku á bör­unum,“ segir Anna Þóra og hlær. „Ég var að hugsa um að hringja í hana Höllu og segja: „Viltu að ég sé heima eða sé á djamm­inu? Hvort held­urðu að komi betur út fyrir þig?““

Leið­réttir þú þennan mis­skiln­ing? 

„Nei, alls ekki. Ég þakk­aði bara kær­lega fyrir og drakk frítt allt kvöldið.“

Halla Tóm­as­dóttirÖnnu Þóru finnst rugl­ing­ur­inn bara skemmti­legur. „Hún er brosmild og hress og klár,“ segir hún um Höllu.

Hvorki líkt við Guðna né Ólaf Ragnar

Á næstu vikum lenti Anna Þóra aftur og aftur í því að þeim stöllum var ruglað saman. 

„Kannski er það líka af því að við erum á sömu hár­greiðslu­stofu,“ segir Anna Þóra sem er í smá klemmu. „Ég er búin að selja Katrínu [Jak­obs­dóttur for­seta­fram­bjóð­anda] gler­augu í mörg ár og fíla hana vel svo þetta er svo­lítið flókin staða en mitt atkvæði fer á réttan stað. Það er alveg á hreinu.“

Þetta er ný reynsla fyrir Önnu Þóru, sem lenti ekki í því að vera ruglað saman við Höllu árið 2016, þegar Halla bauð sig líka fram. „Mér var alla­vega ekki líkt við Guðna og ekki við Ólaf Ragnar svo þetta er bara algjör­lega ný reynsla,“ segir Anna Þóra. 

„Ef Halla þarf ein­hvern stað­gengil þá getur hún bjallað“

Leika sér að því að máta gleraugu á frambjóðendur

Sjálf hefur hún nokkuð stúd­erað and­lit for­seta­fram­bjóð­end­anna.

„Við eigum svona fjöl­skyldu­leik heima: hvaða gler­augu mynd­irðu setja á þennan og hvaða gler­augu á hinn?“ segir Anna Þóra. „Það er alltaf það fyrsta sem við hugsum; hvað sé langt á milli augn­anna hjá fólk­inu.“ 

Talandi um fjöl­skyld­una, hvernig finnst sonum hennar og eig­in­manni að Önnu Þóru sé líkt við for­seta­fram­bjóð­and­ann Höllu Tóm­as­dóttur? 

„Ég held að þeim finn­ist ég ekk­ert lík öðrum af því að ég held að þeim finn­ist mamma sín mjög ólík öllu öðru fólki. Hvort það er gott eða slæmt veit ég ekki,“ segir Anna Þóra. 

Tilbúin að hlaupa í skarðið ef þess þarf

Flækir þetta stöð­una í kjör­klef­anum?

„Nei, nei. Við fáum frá­bæran for­seta, ég efast ekki um það. Ég bara vona að mér verði boðið á Bessa­staði og ef Halla þarf ein­hvern stað­gengil þá getur hún bjallað. Hún veit alveg hvar ég er.“

Hún gæti í raun skot­ist í frí án þess að nokkur tæki eftir því? 

„Já, já, já, já, já. Ég sýni bara góðu hlið­ina.“

Og eftir allan með­byr­inn kemur bara eitt til greina fyrir Önnu Þóru í næstu for­seta­kosn­ingum: „Ég fer fram næst, það er engin spurn­ing. Fyrst þetta er komið í loftið.“

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HK
    Hlaðveig Krumla skrifaði
    afhveru var ekki goggi með þetta innsla cveit ha@n ekki hvernin beikon er a litin?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Allt af létta

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár