Varð vitni að handtöku í leigubílstjóramálinu

Í febr­úar var leigu­bíl­stjóri hand­tek­inn, en hann var grun­aður um alvar­legt kyn­ferð­is­brot gegn konu sem hafði verið far­þegi í bíl hans. Blaða­mað­ur­inn Jóhannes Kr. Krist­jáns­son fékk að fylgja lög­reglu eftir við rann­sókn máls­ins. En hann varð meðal ann­ars vitni að hand­töku ann­ars sak­born­ings­ins og fékk að sjá mein­tan vett­vang glæps­ins.

Varð vitni að handtöku í leigubílstjóramálinu
Það tók sex sól­ar­hringa frá því að rann­sókn máls­ins hófst þangað til að báðir sak­born­ingar höfðu verið úrskurð­aðir í far­bann. Mynd: Jóhannes Kr.

Í febr­úar voru tveir menn hand­teknir vegna rann­sóknar á grófu kyn­ferð­is­broti á konu. Annar sak­born­ing­anna er leigu­bíl­stjóri. Brota­þoli hafði verið mjög ölvuð og tekið leigu­bíl þar sem hún taldi sig vera örugga. Hún rank­aði hins vegar við sér á ókunn­ugum stað úti í bæ og taldi að brotið hefði verið á sér. 

Blaða­mað­ur­inn Jóhannes Kr. Krist­jáns­son fékk að fylgj­ast með störfum kyn­ferð­is­brota­deildar lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu við rann­sókn máls­ins. Afrakst­ur­inn er fyrsti þáttur nýrrar hlað­varpss­eríu á Heim­ild­inni, Á vett­vangi. 

Hægt er að hlusta á þátt­inn með því að smella á tengil hér til hliðar.

Litlar upplýsingar í upphafi

Í þætt­inum kynn­ist Jóhannes störfum deild­ar­innar og fylgir henni allt frá því að hún fer að leita að þeim sem grun­aðir voru um aðild að kyn­ferð­is­brot­inu. Í upp­hafi hafði lög­reglan úr mjög litlu að moða vegna þess að ekki var vitað hver vett­vangur glæps­ins var eða um hvaða leigu­bíl væri að ræða.

„Það voru í raun­inni engar upp­lýs­ingar, þannig að við þurfum að fikra okkur svo­lítið áfram og skoða mynda­vélar eða reyna að kom­ast að því hvernig hún borg­aði. Og það er svo­lítið erfitt að elta þetta og tekur mik­inn tíma,“ sagði einn rann­sókn­ar­lög­reglu­mað­ur­inn við Jóhannes þegar byrjað var að rann­saka málið. 

Leigubílstjórinn samvinnuþýður en lyginn

Upp­lýs­ing­arnar um leigu­bíl­inn feng­ust með dóms­úr­skurði frá posa­fyr­ir­tækjum en þannig var hægt að kom­ast að því hvaða nafn væri að baki greiðsl­unni.

Eftir þó nokkra leit að umræddum bíl fannst hann og eig­andi hans í leigu­bíla­röð­inni við Keflavík. Hann var þar hand­tek­inn, tveimur dögum eftir meint brot. Leigu­bíl­stjór­inn reynd­ist mjög sam­vinnu­þýður og var til­bú­inn að gefa DNA. Eftir fyrstu skýrslu­töku varð þó ljóst að ræða þurfti við hann aftur.

„Hann er ekki að segja okkur satt – mögu­lega hefur hann ekki viljað skipta sér af þessu eða hlífa vini sínum,“ sagði lög­reglan við Jóhannes að fyrri skýrslu­töku lok­inni.

Sá hand­tekni hafði nýlega eytt síma­núm­eri sem hann hafði verið í miklum sam­skiptum við. Taldi lög­reglan að það væri hinn mað­ur­inn sem hún leit­aði að. 

Seinni sakborningurinn virtist ætla að flýja handtöku

Fékk Jóhannes að koma með í ómerktum lög­reglu­bíl með tveimur rann­sókn­ar­lög­reglu­mönnum sem leit­uðu að seinni grun­aða mann­inum.

Maðurinn fannst eftir nokkra leit á mögu­legum vett­vangi glæps­ins, en Jóhannes varð vitni að hand­tök­unni sitj­andi inni í lög­reglu­bíl. Sá grun­aði var í kjöl­far hand­tök­unnar færður á lög­reglu­stöð­ina á Hverf­is­götu ásamt vitni.

Vitnið, félagi þess grun­aða, virt­ist hafa verið að taka saman dót með hinum grun­aða. Voru þeir að þessu þegar þeir voru hand­teknir. Af sam­tölum Jóhann­esar við lög­regl­una má greina að lög­reglan taldi að hinn grun­aði hafi verið að reyna að koma sér burt þegar hann náð­ist. 

Stuttu síðar var farið fram á far­bann yfir báðum sak­born­ingum – bæði leigu­bíl­stjór­anum og seinni mann­inum.

Eftir seinni hand­tök­una fékk Jóhannes að sjá þegar meintur vett­vangur glæps­ins var rann­sak­aður. Þar var ferða­taska á rúmi þar sem greini­lega hafði verið að pakka ein­hverju saman. Vett­vangur er pínu­lítið her­bergi og eitt kló­sett, en aðstæður virt­ust stemma alveg við lýs­ingu þol­anda. 

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Á vettvangi

Vont að senda varnarlausar konur aftur í sömu stöðu
Á vettvangi

Vont að senda varn­ar­lausar konur aftur í sömu stöðu

Jóhanna Erla Guð­jóns­dóttir er félags­ráð­gjafi á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans. Þar tekst hún á við myrk­ustu hliðar mann­lífs­ins, en seg­ist helst reið­ast yfir því að rekast á sömu vegg­ina aftur og aftur, þegar úrræðin eru engin. Til dæmis varð­andi konur sem búa á göt­unni, verða fyrir ofbeldi og eiga sér hvergi skjól. Þrátt fyrir áskor­anir segir hún starfið það besta í heimi.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár