Í lausu lofti

Leik­hús­gagn­rýn­and­inn Sigríður Jóns­dóttir brá sér á leik­verkið X í Borg­ar­leik­hús­inu.

Í lausu lofti
Sólveig Arn­ars­dóttir fangar vax­andi örvænt­ingu. Mynd: Hordur Sveinsson
Leikhús

Í lausu lofti

Niðurstaða:

X

eftir Alistair McDowall

Borgaleikhúsið

Leikstjóri: Una Þorleifsdóttir

Leikarar: Bergur Þór Ingólfsson, Björn Stefánsson, Sólveig Arnarsdóttir, Sveinn Ólafur Gunnarsson, Þórunn Arna Kristjánsdóttir og Kría Valgerður Vignisdóttir

Leikmynd og búningar: Sigríður Sunna Reynisdóttir

Lýsing: Fjölnir Gíslason

Tónlist og hljóðmynd: Þorbjörn Steingrímsson

Leikgervi: Guðbjörg Ívarsdóttir

Þýðing: Jón Atli Jónasson

Gefðu umsögn

Nú fer að líða undir lok leik­árs­ins og frum­sýndi Borg­ar­leik­húsið síð­asta leik­ritið á þessu miss­eri, fyrir utan kom­andi gesta­sýn­ingu frá Akureyri. Leik­sýn­ingar síð­ast­liðna mán­uði hafa komið víða við, boðið áhorf­endum inn á íslenskt vísi­tölu­heim­ili, inn í Iðnó, í ferða­lag út í heim og nú er það him­in­geim­ur­inn sem bíður.

Áhöfn á geim­stöð við Plútó hefur tapað sam­bandi við jörð­ina og geim­skipið sem átti að ná í hóp­inn hefur ekki skilað sér. Þau eru strand í geimnum, algjör­lega hjálp­ar­laus. Eitthvað skelfi­legt virð­ist hafa átt sér stað á jörð­inni. Áratugir eru síðan síð­asta tréð féll, allt dýra­líf er horfið og mann­kynið á flótta undan nátt­úru­öfl­unum. En flótt­inn leysir þau ekki undan hryll­ingnum því eitt­hvað skelfi­legt er í þann mund að eiga sér stað á geim­stöð­inni.

Þýðing Jóns Atla einstaklega fín

Alistair McDowall er hluti kyn­slóðar ungra breskra karl­manna, Jack Thorne og Duncan Macmillan þar á meðal, sem skrifa ágætis texta og margir þeirra ratað á íslenskt leik­svið á nýliðnum leik­árum. Gallinn er sá að oftar en ekki virð­ast höf­und­ar­verk þeirra eiga betur heima á skjá eða hvíta tjald­inu fremur en leik­sviði. Hand­verkið er ágætt, sam­tölin stundum smellin og síð­asta senan lögð upp til að setja fram­vind­una í nýtt sam­hengi en þessi verk skortir slag­kraft leik­húss­ins, nánd­ina og ögrun­ina. Þýðing Jóns Atla Jón­as­sonar er ein­stak­lega fín, skörp og situr vel í munni leik­ar­anna. Nýtt leik­rit úr hans ranni má endi­lega rata á leik­svið fljót­lega.  

Hugarfóstur eða er eitthvað þarna úti?

McDowall er yngstur af þessum hóp en X vekur minn­ingar af eldri og betri verkum sem fjalla um hættur tækn­innar, eyði­legg­ingu nátt­úr­unnar, tíma­leysi og ótt­ann við okkur sjálf, frekar en að slá nýjan tón. Þar má helst nefna kvik­mynd­ina Event Horizon frá 1997 en líka leik­rit Caryl Churchill. Einnig má finna stef úr Solaris, Sunshine og Alien svo nokkur dæmi séu nefnd. Eftir að hafa eytt dágóðum tíma í að kynna áhöfn­ina til sög­unnar, áhyggju­efni þeirra og for­tíð, umbreyt­ist and­rúms­loftið þegar kemur í ljós að skips­klukkan sýnir ekki réttan tíma. Tíminn verður afstæður, ein­angrun áhafn­ar­innar áþreif­an­legri, raun­veru­leik­inn byrjar að molna undan þeim og hryll­ing­ur­inn tekur við. En er ógnin hug­ar­fóstur áhafn­ar­innar eða er eitt­hvað þarna úti? Óræðni litar X en í stað þess að vekja áleitnar spurn­ingar er verkið þoku­kennt og óljóst.  

„Óræðni litar X en í stað þess að vekja áleitnar spurn­ingar er verkið þoku­kennt og óljóst“

Vaxandi örvænting og sprengikraftur

Leik­hóp­ur­inn leysir verk­efnið ágæt­lega undir leik­stjórn Unu Þor­leifs­dóttur. Mest mæðir á Sólveigu Arn­ars­dóttur í hlut­verki Gildu sem virð­ist hafa harm að geyma. Sólveig fangar lag­lega vax­andi örvænt­ingu Gildu en líka hver­dags­legu hlið­arnar, til­finn­inga­legum hápunkti nær hún þegar mann­leg tengsl raun­ger­ast undir lok verks­ins. Björn Stef­áns­son kemur með bráð­nauð­syn­legan sprengi­kraft og orku inn í X í hlut­verki ólík­inda­t­óls­ins Clark. Hann kjamsar á hlut­verk­inu en gætir þess að detta ekki í klisjur. Andstæða Clarks er kafteinn­inn Ray, leik­inn af Bergi Þór Ing­ólfs­syni, sem hverfur æ meira inn í sjálfan sig eftir því sem dvölin leng­ist. Hlut­verk­inu skilar Bergur Þór af næmni en við kynn­umst Ray lítið. Sveinn Ólafur Gunn­ars­son hefur enn þá minna að gera sem Cole, karakter sem höf­undur virð­ist hafa potað inn eftir bak­þanka. Svo er það óskrif­aða blað áhafn­ar­innar, Mattie, leikin af Þórunni Örnu Krist­jáns­dóttur með kímni og hið ósagða að leið­ar­ljósi. Einhver hætta fylgir henni sem Þórunn Arna kemur vel til skila en í heild­ina er Mattie óskil­merkur karakter. Kría Val­gerður Vign­is­dóttir stígur sín fyrstu skref á leik­sviði í dul­mögn­uðu og eft­ir­minni­legu hlut­verki sem betra er að tala sem minnst um til að spilla ekki fyrir.

Þarf að eiga við leikrit sem er ekki upp á marga fiska

Listræn nálgun er fremur köflótt. Eins og áður kom fram stýrir Una leik­hópnum af festu en þarf að eiga við leik­rit sem er ekki upp á marga fiska. Heild­ar­mynd sýn­ing­ar­innar tak­markast af þeirri ákvörðun að negla fram­vind­una niður á einn stað, nán­ast eins og geim­sápu­óp­eru. Sigríður Sunna Reyn­is­dóttir er hæfi­leik­a­ríkur hönn­uður en nær tak­mörk­uðu flugi hér. Fyrir utan glugg­ann inn í svart­nættið, sem er ein­tak­lega sterk tákn­mynd, þá svipar leik­mynd­inni og bún­ing­unum til eldri Star Trek-sjón­varps­þátta, ekki á góðan hátt. Lýsing Fjölnis Gísla­sonar er aftur á móti með afbrigðum góð, lif­andi og lit­rík en með drunga­legu yfir­bragði á vel völdum stöðum. Þorbjörn Stein­gríms­son semur tón­list­ina og hljóð­mynd­ina af kost­gæfni, þá eru það helst grugg­ugu umhverf­is­hljóðin sem láta kalt vatn renna milli skinns og hör­unds frekar en þegar öllu er skellt í botn. Ónotin eru áhrifa­mest þegar eitt­hvað er gefið í skyn, ekki þegar þau eru kreist fram með látum.

Þegar öllu er á botn­inn hvolft er X um allt og ekki neitt. McDowall reiðir sig á höf­und­ar­brögð sem eima stundum af brellum frekar en raun­veru­legri per­sónu­sköpun. Hug­mynda­vinnan er áhuga­verð á köflum en hvorki höf­undur né list­ræna teymið kemur með eitt­hvað nýtt að borð­inu.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár