Leggja til að fleiri fari fyrr í frístund

Borg­ar­ráð sam­þykkti nýlega til­lögu um að leik­skóla­börnum sem eru á leið í 10 grunn­skóla borg­ar­innar muni bjóð­ast að byrja á frí­stunda­heim­ili í byrjun júní. Borg­ar­full­trúi Sós­í­alista telur erfitt að sjá hvernig verk­efnið eigi að ganga á meðan mönn­un­ar­vandi og biðlistar eru til staðar hjá frí­stunda­heim­il­unum.

Leggja til að fleiri fari fyrr í frístund
Ráðhúsið Borg­ar­ráð sam­þykkti að stækka verk­efni sem hleypir verð­andi grunn­skóla­börnum fyrr á frí­stunda­heim­ili. Mynd: Davíð Þór

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúi Sós­í­alista, lagð­ist gegn sam­þykkt til­lögu um fram­hald á til­rauna­verk­efn­inu „fyrr á frí­stunda­heim­ili“ fyrir börn sem eru að ljúka leik­skóla og hefja grunn­skóla­göngu í haust. 

Sanna telur að hug­myndin að baki verk­efn­inu, sem gengur út á það að verð­andi grunn­skóla­börn 10 skóla geti sótt frí­stunda­heim­ili frá byrjun júní, sé góð en að útfæra þurfi til­lög­una betur og að nauð­syn­lega þurfi að taka til­lit til athuga­semda þeirra sem hafa reynslu af starfi frí­stunda­heim­ila. 

„Aðstæður eru ólíkar milli frí­stunda­heim­ila og biðlistar og mönn­un­ar­vandi við­var­andi. Ekki verður séð hvernig á að bæta við börnum án þess að útkljá þann vanda fyrst,“ segir í bókun Sönnu. 

Kostar 59 til 77 milljónir

Full­trúar meiri­hlut­ans sögðu aftur á móti mik­il­vægt að halda áfram með verk­efnið. Með því gæf­ist börnum kostur á að „kynn­ast skóla­rým­inu, aðstæðum og hverju öðru áður en form­legt skóla­starf hefst“. Meiri­hlut­inn við­ur­kenndi þó að um viða­mikið …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár