Ástarjátning í hlekkjum - BDSM 101

Petra seg­ist ekki skilja róm­an­tískar myndir þvi þar sé sífellt verið að fara yfir mörk fólks. Margrét upp­lifir BDSM sem eitt­hvað mun dýpra en það sem maður gerir í svefn­her­berg­inu. Nonni tjáir kon­unni sinni ást sína með því hvernig hann færir henni kaffi. Þau eru öll í BDSM sam­tök­unum, segja afar sárt hvernig hat­urs­orð­ræða í garð hóps­ins hefur grass­erað og vilja ein­fald­lega bara fá að vera til.

Ástarjátning í hlekkjum - BDSM 101
Djúpar rætur Jón, Petra og Margrét tengja BDSM við mun meira en bara kyn­líf. Það á sér djúpar rætur hjá hverju þeirra. Öll segja þau sárt að lesa hat­urs­full ummæli á net­inu, þau séu mann­eskjur eins og við hin. Mynd: Golli

„Ég hef alltaf dreg­ist að sam­skiptum þar sem er mjög skýr valdastrúktúr,“ segir Margrét Nils­dóttir, for­maður BDSM á Íslandi. „Mér finnst það sexí en það gefur mér líka mikla örygg­is­til­finn­ingu. Ég kann vel við mig í sam­skiptum sem byggj­ast á því að annar segir hvernig hlut­irnir eiga að vera og hinn gerir það sem honum er sagt. Það er svo­leiðis ást sem ég tengi við. Þetta er eig­in­lega eina ást­ar­formið sem ég hef alltaf tengt við. Og þetta getur þess vegna verið platónsk ást,“ segir hán.

Margrét hefur til­heyrt BDSM sam­tök­unum í um ára­tug og hefur verið for­maður þeirra í fimm. Hán skil­greinir sig kynsegin og notar bæði kven­kyns og kyn­hlut­laus fornöfn. Hán seg­ist hafa áhuga á nátt­úr­unni, bæði plöntum og dýrum, allt frá skor­dýrum til mann­fólks. Háni finnst einnig bæði gaman og gef­andi að búa eitt­hvað til, hvort sem það eru hlutir sem fá fólk til að segja …

Kjósa
36
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár