Stjórnarkjör nálgast í Festi – „Við erum mótfallin því að Þórður Már taki aftur sæti“

Stjórn stærsta hlut­hafans í Festi, Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna rík­is­ins, lýsir yfir von­brigðum með störf til­nefn­inga­nefndar félags­ins. Nefndin leggur til að Þórður Már Jóhann­es­son verði kjör­inn í stjórn á ný. Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Brú leggst gegn því að hann taki aftur sæti í stjórn Festi. Þórður Már sagði sig úr stjórn­inni fyrir tveimur árum eftir að hann var sak­aður um kyn­ferð­is­brot gegn ungri konu.

Stjórnarkjör nálgast í Festi – „Við erum mótfallin því að Þórður Már taki aftur sæti“
Einn stærsti Þórður Már Jóhann­es­son er næst stærsti einka­fjár­festir­inn í Festi. Aðeins Hregg­viður Jónsson á stærri hlut.

Til­nefn­inga­nefnd almenn­ings­hluta­fé­lags­ins Festi leggur til að Þórður Már Jóhann­es­son, fjár­festir og fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður félags­ins, verði aftur kjör­inn í stjórn á aðal­fund­inum sem fer fram þann 6. mars. 

Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR) er stærsti hlut­haf­inn í Festi og jafn­framt einn umfangs­mesti fjár­festir á íslenska hluta­bréfa­mark­aðnum. Stjórn sjóðs­ins lýsir „yfir von­brigðum með störf til­nefn­ing­ar­nefndar Festis,“ sam­kvæmt svari til Heim­ild­ar­innar þar sem spurt var um afstöðu til þess að Þórður Már taki aftur sæti í stjórn. 

„Við kosn­ingu stjórn­ar­manna sé litið til þess að stjórn­ar­menn hafi ekki sýnt af sér hegðun sem kann að rýra traust þeirra og trú­verð­ug­leika“
Úr svari stjórnar LSR

Þar er vísar LSR í eig­enda­stefnu sjóðs­ins og segir enn­fremur: „Í stefn­unni er fjallað um helstu atriði sem líta ber til við beit­ingu hlut­hafarétt­inda í starf­semi sjóðs­ins. Í kafla 8.c. er fjallað um val á stjórn­ar­mönnum og kröfur til þeirra …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár