Fimm ár verði hámarksrannsóknartími sakamála

Þingmenn fimm flokka hafa lagt til að lög­reglu verði gert að hætta rann­sókn saka­máls fylgi henni ekki ákæra að ári liðnu. Hægt verði þó að fram­lengja rann­sókn­ina um ár í senn að hámarki fimm sinnum. Hildi Sverr­is­dóttur, þing­flokks­for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fyrsta flutn­ings­manni, þykir þetta eðli­legt í öfl­ugu og sann­gjörnu rétt­ar­ríki. Hér­aðs­sak­sókn­ari seg­ist ekki kann­ast við slík lög í öðrum löndum.

Lögreglurannsóknir
Lög­reglu­rann­sóknir „Það er nú tölu­vert af rann­sóknum sem teygja sig yfir árið,“ segir hér­aðs­sak­sókn­ari. Mynd: Bára Huld Beck

Tólf þing­menn úr fimm flokkum hafa lagt fram frum­varp sem kveður á um hámarks­tíma á rann­sóknum saka­mála. Þær megi ekki standa lengur en eitt ár. Lögin eiga að gilda óháð teg­und brota. 

Fylgi rann­sókn ekki ákæra að ári liðnu verður lög­reglu gert að fella hana niður. Lögregla getur þó óskað eftir fram­leng­ingu hjá dóm­stólum til eins árs í senn, að hámarki fimm sinnum. Þarf hún þá að sýna fram á að nauð­syn­legt sé að halda rann­sókn­inni áfram.

Flutn­ings­menn frum­varps­ins koma úr Sjálf­stæð­is­flokki, Framsókn, Pírötum, Viðreisn og Flokki fólks­ins.  

Íþyngjandi að sæta stöðu sakbornings

Hildur Sverr­is­dóttir, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins, segir að henni þyki skjóta skökku við að í rétt­ar­ríki séu engin mörk á hve lengi lög­regla getur rann­sakað mál. Fólk þurfi þá að sæta íþyngj­andi stöðu sak­born­ings, jafn­vel svo árum skipti.  

Hildur Sverr­is­dóttirer fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins.
Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Fórnarlömb sakamála eru líka svift mannréttindum með hlerunum sem þjóna hagsmunum glæpamanna úr hruninu t.d í mínu tilfelli mínus 20 ár þetta er spilling og getur ekki hafa verið gert með dómsúrskurði heldur ólögleg aukabúgrein sem einhverjum er greitt fyrir með þýfi úr hruninu. Fann þetta á mér megnið af tímanum og er búin að sannreyna margoft og kvarta fyrst fyrir nokkrum árum hrokin og valdníðslan er slík að fátt er um svör en settur bara upp annar og fullkomnari hlerunarbúnaður lazer líklega sem beint er inn í íbúðina frá ljósastaur fyrir utan gluggan. Tæki sem finna slík rottuaugu og eyru staðfesta að þetta kemur frá ljósastaurnum sem skipt var um hausin á fyrir nokkrum árum. Þetta eru þeir búnir að gera síðan fyrir hrun í þessum þaulskipulagða glæp hérna í glæparíkinu sem ekki er með þrískipt ríkisvald og flestir í boltanum með Hemma. Fyndið að heira þessa froðusnakka tala um réttarríki þrískipt ríkisvald og þar fram eftir götunum eftir þennan bíltúr með Geirfinni Einarssyni um Efstasundið
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár