Rúmlega átta af hverjum tíu landsmönnum ánægð með störf Guðna

Guðni Th. Jóhann­es­son er vin­sælli nú, eftir að hann til­kynnti um að hann ætli ekki að sækj­ast eftir end­ur­kjöri, en hann var fyrir þremur árum síðan. Kjós­endur Mið­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks er síst ánægðir með for­set­ann.

Rúmlega átta af hverjum tíu landsmönnum ánægð með störf Guðna
For­set­inn Guðni Th. Jóhann­es­son hefur verið for­seti frá árinu 2016. Í byrjun kom­andi sum­ars verður nýr ein­stak­lingur kjör­inn til að gegna emb­ætt­inu. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Næstum 81 pró­sent lands­manna eru ánægð með störf Guðna Th. Jóhann­es­son sem for­seta Íslands, en Guðni til­kynnti um síð­ustu ára­mót að hann muni ekki sækj­ast eftir end­ur­kjöri í kom­andi for­seta­kosn­ingum sem fara fram 1. júní næst­kom­andi. 

Vin­sældir Guðna, sem var fyrst kjör­inn for­seti Íslands árið 2016, hafa aldrei mælst meiri í könn­unum Gallup. Síðast þegar ánægja með störf hans var mæld, fyrir þremur árum síðan, sögð­ust 73 pró­sent vera ánægð með sitj­andi for­seta. 

Ólafur Ragnar tók dýfur

Guðni tók við af Ólafi Ragnari Gríms­syni sem hafði setið sem for­seti í 20 ár. Ólafur Ragnar mæld­ist afar vin­sæll fyrstu ár sín í emb­ætti þegar 82 til 87 pró­sent sögð­ust ánægð með störf hans. Síðan fóru þær, tíma­bundið, að dala og árið 2004, sama ár og Ólafur Ragnar beitti neit­un­ar­valdi fyrstur allra for­seta til að stöðva fram­gang fjöl­miðla­frum­varps­ins svo­kall­aða, fóru þær niður í 66 pró­sent. Vin­sældir Ólafs Ragnars juk­ust hins vegar á ný og á banka­hrunsár­inu 2008 sögð­ust 87 pró­sent vera ánægð með störf hans. Ólafur Ragnar hafði farið mik­inn í því að tala upp kosti íslensku útrás­ar­innar árin á undan og ári síðar, eftir að banka­kerfið hafði hrunið nán­ast í heild sinni með miklum sam­fé­lags­legum afleið­ingum, hrundu vin­sældir hans. Einungis 31 pró­sent sögð­ust þá ánægð með for­seta lands­ins.

Ólafur Ragnar tók hins vegar harða afstöðu í Icesave-mál­inu svo­kall­aða og synj­aði lögum því tengdu tví­vegis um und­ir­ritun for­seta þannig að þau fóru í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Við það juk­ust vin­sældir hans á ný, mæld­ust 60 pró­sent árið 2012 og 56 pró­sent árið 2015, sið­asta heila ár hans í emb­ætti. 

Nokkuð almenn ánægja

Ánægja með störf Guðna er nokkuð almenn. Konur eru aðeins lík­legri til að vera ánægð með hann en karlar og hák­sóla­mennt­aðir eru það frekar en þeir sem eru með grunn­skóla- eða fram­halds­skóla­próf sem æðstu menntun. 

Kjós­endur Sam­fylk­ing­ar­innar og Fram­sókn­ar­flokks eru ánægð­astir allra með Guðna, en 90 til 92 pró­sent þeirra lýsa þeirri skoðun sinni í könnun Gallup. Píratar eru skammt undan þar sem 89 pró­sent þeirra eru ánægðir með for­set­ann og 84 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna eru saman sinnis. 

Minnst er ánægjan á meðal kjós­enda Mið­flokks­ins, þar sem hún mælist 67 pró­sent, og hjá kjós­endum Sjálf­stæð­is­flokks, en 73 pró­sent þeirra eru ánægðir með störf Guðna.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár