Eftirlaun Ólafs og Vigdísar hafa á síðustu fimm árum kostað ríkissjóð 287 milljónir króna

Fyrr­ver­andi for­setar Íslands, Vigdís Finn­boga­dóttir og Ólafur Ragnar Grímsson eiga bæði rétt á 80 pró­sent af launum for­seta eins og þau eru hverju sinni. Laun for­seta eru nú tæpar fjórar millj­ónir á mán­uði en voru árið 2019 rétt undir þremur millj­ónum. Frá júní 2019 til febr­úar 2024 má áætla að Vigdís og Ólafur hafi sam­an­lagt fengið um 287 millj­ónir króna í eft­ir­laun.

Vigdís Finnbogadóttir og Ólafur Ragnar Grímsson
Vigdís Finn­boga­dóttir og Ólafur Ragnar Grímsson hafa sam­an­lagt fengið um 287 millj­ónir króna í eft­ir­laun Mynd: Heimildin / TDV

Vigdís Finn­boga­dóttir og Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrum for­setar Íslands, hafa síð­ast­liðin fimm ár, sam­an­lagt þegið um 287 millj­ónir króna í eft­ir­laun. Heim­ildin sendi fyr­ir­spurn á Fjár­sýslu rík­is­ins og fékk það stað­fest að Vigdís og Ólafur eiga bæði rétt á um 80 pró­sent af launum for­seta Íslands eins og þau eru hverju sinni. 

Laun for­seta eru í dag 3.957.185 krónur á mán­uði, en þau taka breyt­ingum 1. júlí ár hvert sam­kvæmt sér­á­kvæðum í lögum um laun emb­ætt­is­manna tóku gildi árið 2019. Sem þýðir að Vigdís og Ólafur munu fá um 3,1 millj­ónir króna á mán­uði í eft­ir­laun fram að júní þegar laun for­seta taka aftur breyt­ingum. Á þessu tólf mán­uðum munu Vigdís og Ólafur sam­an­lagt hafa fengið um 76 millj­ónir króna í eft­ir­laun.  

Til sam­an­burðar voru laun for­seta 2.985.000 í júní 2019 þegar ný lög um laun æðstu emb­ætt­is­manna lands­ins tóku gildi eftir að kjara­ráð var lagt niður. Á fimm árum hafa mán­að­ar­laun for­seta hækkað um rétt tæpa milljón krónur. Í júní á þessu ári munu Vigdís og Ólafur sam­an­lagt hafa fengið um 335 millj­ónir króna frá því að lög um laun for­seta Íslands tóku gildi árið 2019.  

Eldri lög gilda um Vigdísi og Ólaf

Skömmu eftir að Guðni Th. Jóhann­es­son til­kynnti að hann myndi ekki sækj­ast eftir end­ur­kjöri birti Heim­ildin frétt um að Guðni myndi ekki njóta sömu rétt­inda til eft­ir­launa og for­verar sínir í emb­ætti.

Bæði mun það vera vegna ald­urs Guðna, sem verður brátt yngsti fyrr­ver­andi for­seti í sögu lýð­veld­is­ins, 56 ára aldri. En líka vegna þess að önnur lög munu gilda um hann, sem sam­þykkt voru árið 2009.  

Vigdís lét af emb­ætti árið 1996 og á rétt af eft­ir­launum sam­kvæmt gild­andi lögum um laun for­seta sem sam­þykkt voru árið 1990. Eft­ir­launa­réttur Ólafs byggir hins vegar á umdeildum lögum um laun for­seta Íslands, ráð­herra, alþing­is­menn og hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku gildi árið 2003. 

Lögin voru afnumin skömmu eftir efna­hags­hrunið árið 2009. Aftur á móti voru for­seti Íslands og hæsta­rétt­ar­dóm­arar sem tekið höfðu við emb­ætti fyrir gild­is­töku lag­anna und­an­skildir laga­breyt­ing­unni og fengu að halda sínum rétt­indum.

Sérákvæði sem laun forseta byggja á í uppnámi

Í núver­andi lögum um laun for­seta Íslands, ann­ara þjóð­kjör­inna manna og ákveð­inna emb­ætt­is­manna kemur fram að árlegar launa­breyt­ingar þeirra skuli taka mið af hlut­falls­legri breyt­ingu á með­al­tali reglu­legra launa starfs­manna rík­is­ins.

Í júní 2022 kom hins vegar í ljós að útreikn­ing­ur­inn hafi allt frá setn­ingu lag­anna byggt á röngum tölum. Notast hafi verið við launa­vísi­tölu rík­is­starfs­manna í stað með­al­tals reglu­legra launa starfs­manna rík­is­ins. Nokkur munur er á þessu mæl­ingum sem gerði það að verkum að laun hækk­uðu umfram það sem til­greint var í lög­unum. 

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið brást við þessu með því skipa Fjár­sýsl­unni leið­rétta launa­taxt­anna og greiða fram­vegis laun sem væru í sam­ræmi við rétt við­mið. Þá krafði ráðu­neytið sömu­leiðis aðila sem höfðu fengið ofgreitt um end­ur­greiðslu. Óvíst er þó hvort Vigdís og Ólafur hafi verið beðin um að end­ur­greiða hluta af eft­ir­launum sínum. Heim­ildin hefur sent fyr­ir­spurn á Fjár­sýsl­una sem á enn eftir að svara. 

Málið var kært til hér­aðs­dóms af Ástríði Gríms­dóttur, dóm­ara við hér­aðs­dóm Reykja­ness, sem taldi upp­færsl­una á launa­út­reikn­ingi stjórn­valda, launa­lækk­un­ina sem í henni felst og end­ur­greiðslu­kröf­una ekki stand­ast lög. 

Hér­aðs­dómur féllst á allar aðal­kröfur Ástríðar. Íslenska ríkið áfrýjað mál­inu beint til Hæsta­réttar sem stað­festi nið­ur­stöðu Hér­aðs­dóms. Ríkinu hafi verið óheim­ilt að víkja frá þeirri fram­kvæmd sem fólst í launa­út­reikn­ing­unum og krefja dóm­ara um end­ur­greiðslu. 

Þörf á nýjum viðmiðum og lagasetningu

Lög um laun for­seta og ann­ara hátt­settra emb­ætt­is­manna eru því komin á laga­legt upp­nám. Í svörum við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar sagði Elva Björk Sverr­is­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins að breyta þurfi við­mið­unum með laga­breyt­ingu.

Vinna við að upp­færa lögin er nú þegar hafin. Þann 23. nóv­em­ber, mán­uði áður en dómur Hæsta­réttar féll, skip­aði fjár­mála- efna­hags­ráð­herra starfs­hóp um breyt­ingar á gild­andi fyr­ir­komu­lagi launa­á­kvarð­ana æðstu emb­ætt­is­manna.  

„Eitt af verk­efnum starfs­hóps­ins er að leggja mat á gild­andi við­mið þeirra sem fá laun ákvörðuð sam­kvæmt laga­á­kvæðum sem dómur Hæsta­réttar vísar í. Gert er ráð fyrir því að starfs­hóp­ur­inn skili áfanga­skýrslu fyrir lok febr­úar,“ sagði Elva. 

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár