Hafa lokað klósettum á Keflavíkurflugvelli

Veru­legur skortur er á bæði köldu og heitu vatni í flug­stöð­inni á Kefla­vík­ur­flug­velli. Loka hefur þurft hluta sal­ern­is­að­stöðu og kalt er að verða inn­an­dyra.

Hafa lokað klósettum á Keflavíkurflugvelli
Kalt Það er tekið að kólna inni í Leifs­stöð. Hluta kló­sett­að­stöð­unnar hefur verið lokað til að spara kalt vatn. Mynd: Bára Huld Beck

Fyrst fór heita vatnið. Svo það kalda. Þannig var staðan í Leifs­stöð á Kefla­vík­ur­flug­velli í morgun. „Þetta hefur ekki áhrif á starf­sem­ina eins og stendur, hvorki á flug né það sem fram fer inni í flug­stöð­inni,” segir Guðjón Helgason, upp­lýs­inga­full­trúi ISAVIA. Hann stað­festir að köldu vatni sé ekki til að dreifa en að ein­hverjar vara­birgðir séu þó til taks. 

Vissu­lega hafi kólnað inn­an­dyra og stað­festir hann að búið sé að loka hluta af sal­ern­is­að­stöðu flug­stöðv­ar­innar til að spara kalt vatn. Hann vonar að ein­hverjar dreggjar af heitu vatni séu enn í til taks en ann­ars hafi nú þegar verið gripið til ýmissa mót­væg­is­að­gerða. „Ég veit ekki hvort eitt­hvað sé eftir af heita vatn­inu, það var hægt og bít­andi að klár­ast í gær inni á kerf­unum okkar.”

Búið er að slökkva á loft­ræsti­kerfum flug­stöðv­ar­innar til að lág­marka hita­tap og hita­blás­arar hafa verið settir upp á far­þega­svæð­unum. „Við erum með teppi til­búin fyrir fólk og annað slíkt,” bætir hann við um við­bún­að­inn.

Heita vatnið hefur ekki áhrif á flug

Skortur á heitu vatni hefur ekki áhrif á flug en Guðjón sagð­ist ekki hafa upp­lýs­ingar um hvort að skortur á því kalda til langs tíma myndi gera það.

Hann seg­ist vona að við­gerðum á bæði kalda- og heita­vatns­lögn­unum ljúki sem fyrst.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá HS Veitum kom leki að stofnæð fyrir kalt vatn í gær­kvöldi og var­aði fyr­ir­tækið við því að kalda­vatns­laust gæti orðið á Ásbrú og við flug­vall­ar­svæðið. Þessa bilun segir fyr­ir­tækið þó ekki tengj­ast eld­gos­inu sem hófst í gær. 

Heita­vatns­leysið gerir það þó. Hraun rann yfir lagnir þær sem flytja heitt vatn til allra stærstu byggð­ar­lag­anna á Reykja­nesskaga.

HS Veitur sögðu í gær að von­andi yrði hægt að koma heitu vatni á vara­lögn síð­degis í dag eða kvöld. Það gæti þó tekið 1-2 sól­ar­hringa eftir þá aðgerð að hlýna í húsum. Fyr­ir­tækið reyndi að koma kalda vatn­inu á fyrir kl. 6 í morgun en það heppn­að­ist ekki og nú er von­ast til að það tak­ist um kl. 10.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
Tímabært að verja Reykjanesbraut
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.
Í Grindavík er enn 10. nóvember
VettvangurJarðhræringar við Grindavík

Í Grinda­vík er enn 10. nóv­em­ber

Það er nógu leið­in­legt að flytja, þegar maður velur sér það sjálfur, hvað þá þegar maður neyð­ist til þess. Og hvernig velur maður hvað eigi að taka með sér og hvað ekki, þegar maður yfir­gefur stórt ein­býl­is­hús með tvö­földum bíl­skúr fyrir litla íbúð með lít­illi geymslu? Fjöl­skyldan á Blómst­ur­völlum 10 í Grinda­vík stóð frammi fyrir þeirri spurn­ingu síð­ast­lið­inn sunnu­dag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár