IKEA festir vöruverð til ársloka 2024

IKEA til­kynnir vöru­lækk­anir á sex þús­und vörum og segir að vöru­verð myndi hald­ast það sama út árið 2024. Í árs­lok 2023 sendu breið­fylk­ing lands­sam­banda og stærstu stétt­ar­fé­laga á almennum vinnu­mark­aði og Samtök atvinnu­lífs­ins frá sér sam­eig­in­lega til­kynn­ingu þar sem fyr­ir­tæki voru hvött til þess að halda aftur að verð­hækk­unum.

IKEA lækkar í dag verð á sex þús­und vörum og boðar á sama tíma að engar vörur verði hækk­aðar í verði til árs­loka 2024. Um er að ræða tæp­lega 6% lækkun að með­al­tali. 

Í til­kynn­ingu frá IKEA segir að nýlegir samn­ingar við birgja þeirra um lægra verð geri þeim kleift að lækka verðið. „Á sama tíma tökum við ákvörðun um að festa verð til árs­loka og gilda þessar breyt­ingar nú frá 1. febr­úar,“ segir Stefán Dagsson, fram­kvæmda­stjóri IKEA.

Hann segir að aðstæður hafi skap­ast í rekstri IKEA til að lækka verð aftur eftir umtals­verðar áskor­anir síð­ustu ára. „Erf­ið­leikar í aðfanga­keðj­unni hafa jafnað sig að mestu leyti, hrá­efn­is­verð hefur farið lækk­andi og tek­ist hefur að hag­ræða í fram­leiðslu. Það er virki­lega ánægju­legt að hafa svig­rúm til að leggja okkar af mörkum í bar­átt­unni við verð­bólg­una. Með þessu viljum við leggja okkar lóð á vog­ar­skál­arnar við að greiða fyrir því að SA og verka­lýðs­hreyf­ingin klári skyn­sam­lega samn­inga sem allra fyrst.“

Ná niður verðbólgu og háu vaxtastigi

Á milli jóla og nýárs, nánar til­tekið 28. des­em­ber, urðu þau tíð­indi að breið­fylk­ing lands­sam­banda og stærstu stétt­ar­fé­laga á almenna vinnu­mark­aðnum, sem er með samn­ings­um­boð fyrir 93 pró­sent alls launa­fólks innan Alþýðu­sam­bands Íslands, og Samtök atvinnu­lífs­ins sendu frá sér sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu. Í henni kom fram að þessir aðilar vinnu­mark­að­ar­ins, sem hafa deilt hart og opin­ber­lega á und­an­förnum árum, ætl­uðu að taka „höndum saman um gerð lang­tíma­kjara­samn­inga sem auka fyr­ir­sjá­an­leika og stöð­ug­leika í efna­hags­líf­inu.“

Var sam­eig­in­legt mark­mið þeirra í kom­andi kjara­við­ræðum að ná niður mik­illi verð­bólgu og háu vaxta­stigi. Til að það mark­mið náist yrðu allir aðilar vinnu­mark­að­ar­ins, fyr­ir­tæki lands­ins, ríki og sveit­ar­fé­lög að leggj­ast á eitt og getur eng­inn skor­ast undan ábyrgð. Breið­fylk­ingin sendi frá sér til­kynn­ingu í lok jan­úar þar sem hún til­kynnti að við­ræðum hefði verið slitið og að deil­unni hefði verið vísað til rík­is­sátta­semj­ara. 

Fleiri fyr­ir­tæki hafa brugð­ist við kall­inu en fyrr í jan­úar til­kynnti meðal ann­ars Byko að verð­listar myndu ekki hækka næstu sex mán­uði hið minsta. Í til­kynn­ingu Byko sagði að „BYKO lítur á það sem sitt hlut­verk að axla ábyrgð í bar­átt­unni gegn verð­bólgu, í ljósi stærðar sinnar og áhrifa í bygg­ing­ar­iðn­aði.“

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár