Verðbólga lækkar um eitt prósentustig – Ekki lægri í næstum tvö ár

Tólf mán­aða verð­bólga mælist nú 6,7 pró­sent. Hún hefur ekki mælst lægri síðan í mars 2022.

Verðbólga lækkar um eitt prósentustig – Ekki lægri í næstum tvö ár

Vísi­tala neyslu­verðs lækk­aði um 0,16  pró­­sent milli mán­aða. Tólf mán­aða verð­­bólga mælist nú 6,7 pró­­sent en hún mæld­ist 7,7 pró­­sent í síð­­asta mán­uði. Hún hefur ekki mælst minni síðan í mars 2022 en hæst fór verð­bólgan í tveggja stafa tölu í febr­úar í fyrra. 

Staðan er því þannig að þrátt fyrir að verð­bólga sé að hækka milli mán­aða er tólf mán­aða verð­bólgan að lækka skarpt. Ástæða þess liggur í því að verð­bólga mæld­ist mjög há í lok árs 2022 og byrjun árs 2023 og þeir mán­uðir eru nú að detta út úr tólf mán­aða verð­bólgu­töl­unum.

Í til­kynn­ingu á vef Hag­stof­unnar segir að kostn­aður vegna búsetu í eigin hús­næði hafi hækkað um 0,9 pró­sent milli mán­aða og að sú hækkun hafi haft mest áhrif á aukna verð­bólgu milli mán­aða. Kostn­aður vegna raf­magns og hita hækk­aði um 3,7 pró­sent milli mán­aða en á móti tog­uðu vetr­ar­út­sölur þar sem föt og skór lækk­uðu um 9,2 pró­sent frá því í fyrri mán­uði. Húsgögn og heim­il­is­bún­aður lækk­uðu sömu­leiðis um fimm pró­sent og flug­far­gjöld til útlanda um heil 11,4 pró­sent. „Athygli skal vakin á þeirri breyt­ingu að í stað þess að taka inn verð­breyt­ingar á „044 Annað vegna hús­næðis“ nú í jan­úar verður það gert í febr­úar þegar fyrsta greiðsla skv. nýjum gjald­skrám fer yfir­leitt fram. Undir þennan lið fellur sorp­hreinsun, hol­ræsi og kalt vatn.“

Nið­ur­fell­ing á virð­is­auka­skatt­sí­vilnun af raf­bílum hafði áhrif til hækk­unar á verði þeirra en tekið var til­lit til raf­bíla­styrkja Orku­sjóðs við útreikn­inga.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár