Framlengdur húsnæðisstuðningur við Grindvíkinga kostar næstum milljarð

Sértækur hús­næð­is­stuðn­ingur við Grind­vík­inga verður fram­lengdur úr júní og stuðn­ing­ur­inn verður hækk­aður. Grinda­vík­ur­bær fær heim­ild í lögum til að rukka ekki fast­eigna­gjöld.

Framlengdur húsnæðisstuðningur við Grindvíkinga kostar næstum milljarð
Aðgerðir Rík­is­stjórnin boð­aði nýverið aðgerðir til að styðja við Grind­vík­inga. Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra hefur nú lagt fram tvö frum­vörp vegna þeirra. Mynd: Golli


Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra hefur lagt fram frum­varp um að fram­lengja sér­tækan hús­næð­is­stuðn­ing vegna nátt­úru­ham­fara í Grinda­vík. Helstu breyt­ing­arnar eru þær að þak á veittum stuðn­ingi er hækkað úr 75 í 90 pró­sent af áætl­uðum hús­næð­is­kostn­aði og gild­is­tími úrræð­is­ins er lengdur út júní­mánuð, en áður stóð til að það myndi renna út í lok febr­úar. Því leng­ist líf­tími úrræð­is­ins um fjóra mán­uði. 

Að end­ingu er gerð sú breyt­ing á hámarki sér­tæks hús­næð­is­stuðn­ings miðað við fjölda heim­il­is­manna að í stað þess að efsti flokkur verði fjórir heim­il­is­menn eða fleiri verði hann sex heim­il­is­menn eða fleiri og hámarks­fjár­hæð í efstu flokk­unum hækkuð því til sam­ræmis. Þannig er hámarks­fjár­hæð sér­tæks hús­næð­is­stuðn­ings fyrir þann sem er einn í heim­ili 150 þús­und krónur á mán­uði. Hún fer svo stig­hækk­andi eftir því sem heim­il­is­fólki fjölgar og er 294 þús­und krónur fyrir þá sem eru með heim­ili sem telur sex eða fleiri. 

Í frum­varp­inu kemur fram að gert sé ráð fyrir að 85 til 95 pró­sent heim­ila í Grinda­vík komi til með að nýta úrræðið. Miðað við það er áætl­aður kostn­aður á mán­uði á bil­inu 212 til 237 millj­ónir króna. Á fjög­urra mán­aða tíma­bil­inu sem frum­varpið bætir við líf­tíma aðgerð­anna má því gera ráð fyrir að heild­ar­kostn­aður rík­is­sjóðs nemi á bil­inu 850 til 950 millj­ónum króna.

Mega sleppa því að rukka fasteignagjöld

Sigurður Ingi hefur líka lagt fram annað frum­varp sem hefur það mark­mið að styðja við Grinda­vík, í þetta sinn sveit­ar­fé­lagið sjálft. 

Í fjár­hags­á­ætlun Grinda­víkur vegna árs­ins 2024 var áætlað að sveit­ar­fé­lagið myndi hafa umtals­verðar tekjur, rúm­lega þrjá millj­arða króna, af útsvari íbúa og fast­eigna­gjöldum á yfir­stand­andi ári. Þar af áttu fast­eigna­gjöldin að skila 694 millj­ónum króna í tekjur í ár.

Áætlunin var sam­þykkt 9. jan­úar, áður en maður sem var við vinnu í bænum féll ofan í sprungu og áður en eld­gos hófst með þeim afleið­ingum að hraun flæddi inn í Grinda­vík. Allar for­sendur áætl­un­ar­innar eru því brostnar og fyr­ir­séð að íbúar Grinda­víkur eru ekki að fara að snúa aftur í heim­ili sín í fyr­ir­sjá­an­legri fram­tíð hið minnsta. 

Ljóst má vera að íbúar Grinda­víkur munu greiða útsvar ann­ars staðar í ljósi þess­arar stöðu og ófor­svar­an­legt þykir að inn­heimta fast­eigna­gjöld af hús­næði sem íbú­arnir geta ekki nýtt sér, á sama tíma og þeir eru í þeirri stöðu að þurfa að greiða að öðru hús­næði ann­ars staðar. 

Frum­varpið gengur út á að veita bæj­ar­stjórn Grinda­víkur heim­ild til að falla frá álagn­ingu fast­eigna­gjalda vegna óvissu af völdum nátt­úru­ham­far­anna sem ógni íbúa sveit­ar­fé­lags­ins. Þrátt fyrir það munu til­tekin fram­lög Jöfn­un­ar­sjóðs sveit­ar­fé­laga, sem reikn­ast út frá fast­eigna­gjöldum ann­ars vegar og grunn­skóla­starf­semi hins vegar, til Grinda­víkur ekki taka breyt­ingum. Um er að ræða 108 millj­ónir króna fast­eigna­skatts­fram­lag miðað við óbreytta búsetu og 287 millj­óna króna grunn­skóla­fram­lag.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár