Samfylkingin tapaði 110 milljónum króna á tveimur árum

Skuldir Sam­fylk­ing­ar­innar juk­ust veru­lega á árinu 2022 þegar þær fóru úr 40 í 193 millj­ónir króna.

Samfylkingin tapaði 110 milljónum króna á tveimur árum
Formaður Kristrún Frosta­dóttir tók við sem for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar á haust­dögum 2022. Mynd: Sindri Swan

Sam­fylk­ingin tap­aði 52 millj­ónum króna á árinu 2022 og 58 millj­ónum króna árið 2021. Sam­an­lagt tap hennar á tveimur árum var því 110 millj­ónir króna. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi flokks­ins vegna árs­ins 2022 sem birtur var á vef Rík­is­end­ur­skoð­unar nýverið. 

Bæði umrædd ár fóru fram kosn­ingar. Síðustu alþing­is­kosn­ingar kost­uðu Sam­fylk­ing­una 89 millj­ónir króna og sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar ári síðar kost­uðu 71 milljón króna. Flokk­ur­inn tap­aði fylgi og einum þing­manni í þing­kosn­ing­unum 2021 og tap­aði sam­tals þremur sveit­ar­stjórn­ar­full­trúum í kosn­ing­unum 2022. 

„Lítill hluti lána Sam­fylk­ing­ar­innar er hjá bönkum“

Vegna verra gengis í kosn­ingum dróg­ust tekjur Sam­fylk­ing­ar­innar saman, en opin­ber fram­lög eru langstærsti hluti tekna flokks­ins líkt og hjá öðrum flokkum í land­inu, að Sjálf­stæð­is­flokknum und­an­skildum sem hefur verið að selja bygg­inga­rétti og haft af því mörg hund­ruð millj­óna tekjur á und­an­förnum árum. Framlög úr opin­berum sjóðum dróg­ust saman um 19 millj­ónir króna milli …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár