Mathöll hafnað

Tillögu Sjálf­stæð­is­flokks­ins um bygg­ingu undir mat­höll í Mjódd var hafnað á fundi umhverfis- og skipu­lags­ráðs Reykja­vík­ur­borgar í vik­unni. Fá dæmi, ef ein­hver, eru um að hug­mynd um mat­höll hafi verið hafnað á Íslandi til þessa.

Mathöll hafnað
Mat­hallir Hugmynd um mat­höll í Mjódd hlaut ekki hljóm­grunn hjá full­trúum borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­ans í skipu­lags­ráði. Mynd frá Hlemmi Mathöll. Mynd: Heiða Helgadóttir

Þau undur og stór­merki áttu sér stað í vik­unni að hug­mynd sem sett hafði verið fram um upp­bygg­ingu mat­hallar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu var hafnað. Ekki er vitað til þess að þetta hafi gerst áður, en atburð­ur­inn átti sér stað á fundi umhverfis- og skipu­lags­ráðs Reykja­vík­ur­borgar. Meiri­hluti ráðs­ins hafn­aði til­lögu full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks um að byggð yrði upp mat­höll í tengslum við skipti­stöð Strætó í Mjódd­inni. 

Embætti skipu­lags­full­trúa borg­ar­innar hafði tekið nei­kvætt í til­lög­una, sem fól í sér að tengi­bygg­ing yrði gerð frá göngu­göt­unni í Mjódd­inni að skipti­stöð Strætó. Þrátt fyrir að nei­kvætt hafi verið tekið í til­lög­una af hálfu skipu­lags­full­trúa þarf það ekki að þýða að emb­ætt­inu hafi lit­ist illa á hug­mynd­ina, heldur var bent á það að ekki væru enn áform um að ráð­ast í skipu­lags­vinnu á svæð­inu sem nær frá Álfa­bakka að Breið­holts­braut. 

Tillaga full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins var lögð fram 1. nóv­em­ber. Í henni sagði að skoð­aðir yrðu mögu­leikar …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár