Hvað kostar að borga Grindvíkinga út?

Á íbúarfundi Grind­víkinga sem haldinn var síðdegis í gær voru ráðherrar endur­tekið spurðir hvort þeir ætli sér að borga íbúa bæjarins út úr fasteignum sínum. Þessu gat fjármála- og efnahags­ráðherra ekki svarað og sagði málið þyrfti að skoða gaum­gæfilega áður en ákvörðun yrði tekin. Þá nefndi ráðherra að kostnaður við slíka aðgerð væri á milli 120 til 140 milljarðar króna.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra Sagði að óábyrgt væri að svara því að svo stöddu hvort að ríkið munu borga út eignir íbúa Grinda­víkur. Í svari hennar koma fram að áætl­aður kostn­aður við slíka aðgerð hlaupi á hundrum millj­örðum króna. Mynd: Golli

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa­dóttir, fjármála- og efnahags­ráðherra, sagði á íbúafundi fyrir Grind­víkingar í Laugar­dalshöll í gær að áætlaður kostnaður við að kaupa út eignir allra bæjarbúa væri um 120-140 milljarðar króna.

Í svörum sínum við spurningum úr sal benti fjármála­ráðherra á að vátrygginga­virði fasteigna til íbúðar væri um 109 milljarðar króna. Þá væri bruna­tryggt inbú metið á 13 milljarða. Samanlagt væri kostnaðurinn að því að kaupa út íbúa Grinda­víkur því um 122 milljarðar, útfrá þessum gögnum.

Til saman­burðar er gert ráð fyrir því að kostnaður við byggingu nýs Land­spítala sé um 210 milljarðar króna. Nýr Land­spítali stærsta er fjár­festingar­verkefni ríkisins frá upphafi. 

140 eða 40 milljarðar?

Samkvæmt frétt Vísis sem óskaði eftir gögnum frá Húsnæðis- og mannvirkja­stofnun er heildar­fasteignamat á íbúðar­eignum um 73,1 milljarðar króna. Þá er bruna­bótamat íbúðar­eigna samtal um 78,5 milljarðar króna. Alls eru um 1201 íbúðar­eignir í Grindavík. 

Heildar fasteignamat …

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þorsteinn V. Sigurðsson skrifaði
    Ríkið borgar ekkert þetta er til í náttúruhamfarasjóði og frá baktryggingum erlendis, var upplýst á RÚV í síðdegisutvarpinu í dag.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja nætur­langt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því

Frá og með morgun­deginum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyrir­tækjum í Grindavík heimilt að fara í bæinn og dvelja þar nætur­langt. Í nýlegri frétta­tilkynningu lögreglu­stjórans á Suðurnesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að innviðir bæjarins séu í lamasessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjósanlegur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár