Þyrluflug í vinnuna: „Skrítin upplifun að horfa á bæinn sinn brenna“

Hafn­ar­vörður Grinda­víkur fór nokkuð óvenju­lega leið í vinn­una á sunnu­dags­morg­un­inn. Hann var sóttur af þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar og lát­inn síga niður í varð­skipið Þór. Horfði hann yfir bæinn frá skip­inu stjarfur. „Þetta virk­aði á mann sem miklu meiri eldar heldur en maður sér í sjón­varp­inu.“

Þyrluflug í vinnuna: „Skrítin upplifun að horfa á bæinn sinn brenna“
Þyrlu­flug í vinn­una Þröstur seig úr þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar í varð­skipið Þór. Var þetta fyrsta þyrlu­flug Þrastar. Mynd: Golli
Grinda­vík í ljósum logumMynd tekin frá varð­skip­inu Þór af Grinda­vík á sunnu­dag­inn.

„Þetta var heil­mikil upp­lifun, bæði að horfa upp í þyrl­una og að horfa svo yfir bæinn á leið­inni niður í varð­skipið,“ sagði Þröstur Magn­ús­son, Grind­vík­ingur og einn hafn­ar­vörður Grinda­vík­ur­hafnar. Þröstur fór með þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar til vinnu á sunnu­dag­inn þegar gosið í og við Grinda­vík hófst. „Skrítin upp­lifun að horfa á bæinn sinn brenna. Ég tók ekki einu sinni myndir, ég var svo dof­inn yfir þessu.“

Þröstur Magn­ús­son

Þyrla Land­helg­is­gæsl­unnar sótti Þröst á Grind­ar­vík­ur­veg. Þröstur hafði ekki áður farið í þyrlu­flug, hvað þá sigið eða verið hífður upp í eina slíka. Fóru starf­menn Grinda­vík­ur­hafnar um borð í björg­un­ar­skipið Þór til að hægt væri að flytja hafn­ar­bát bæj­ar­ins til Þor­láks­hafnar.

Sjónin frá skip­inu sagði Þröstur vera skelfi­lega. „Þetta virk­aði á mann sem miklu meiri eldar heldur en maður sér í sjón­varp­inu. Svo sá maður þegar það var að kvikna í hús­unum. Hvernig það fuðr­aði og hvernig það komu upp svartir bólstrar. Það var súr­r­eal­ískt að verða vitni að þessu.“

Skjálfta- og gosfrí

Fjöl­skylda Þrastar hefur komið sér fyrir í Vogum á Vatns­leysu­strönd en þau eiga hús í Grinda­vík. Býr hann þar með kon­unni sinni og yngsta syni. Hann segir fjöl­skyld­una hafa það ágætt þar. „Dætur okkar þrjár bjuggu allar í Grinda­vík, ein var að leigja og er búin að segja upp leig­unni sinni og er með búslóð­ina sína í hús­inu okkar í Grinda­vík.“

„Við höfum bara verið hérna í Vogunum í skjálfta- og gos­fríi.“

Þröstur segir að hiti sé kom­inn aftur á húsið hans í Grinda­vík. „Maður bjóst við því að allt yrði ónýtt ef að hit­inn kæm­ist ekki á. Þá væri þetta hrein­lega bara búið og óþarfi að reyna eitt­hvað að eiga við þetta hús meir.“

„Eins og að fá kjaftshögg“

Upplifun Þrastar af gos­hrin­unni lýsir hann „eins og að fá kjafts­högg ofan á kjafts­högg, lausa tönn og svo losnar tönnin.“ Gos hófst að nýju á sunnu­dags­morgun og hafði bær­inn verið rýmdur um nótt­ina. 

„Ég held að það væri far­sæl­ast að við Grind­vík­ingar fengum ein­hverja lang­tíma lausn og fólk sem er ekki til­búið að fara til baka fái þá lausn að geta farið. Ég held að það sé raun­hæf­ast. Það er ekki gott að fjötra fólk við stað sem það vill ekki vera á.“

Fyrsta myndin er af Þresti áður en hann seig um borð í björg­un­ar­skipið Þór.

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár