Hundruð Grindvíkinga skora á ríkið til að kaupa sig út

Söfnun und­ir­skrifta er hafin þar sem skorað er á ríkið að beita sér fyrir því að borga út eignir Grind­vík­inga sem ætla sér ekki að flytja aftur í bæinn. Alls hafa 333 skrifað undir list­ann þegar þessi frétt er skrifuð. Fast­eigna­mat eigna í Grinda­vík var 92,4 millj­arðar króna á síð­asta ári.

Hundruð Grindvíkinga skora á ríkið til að kaupa sig út
Hús í hættu Hraun­flæðið hefur þegar náð til húsa í Grinda­vík og mun sýni­lega ná til fleiri. Mynd: Golli

Und­ir­skrifta­listi hefur verið stofn­aður þar sem skorað er á stjórn­völd til þess að borga út eignir þeirra Grind­vík­inga sem óvissir með að flytja aftur í bæinn. Gossprunga opn­að­ist í hádeg­inu í dag skammt frá nyrstu hverfum Grinda­víkur, og hraunið hefur þegar flætt og gjör­eyði­lagt tvö hús í hverf­inu Efrahóp.

Ábyrgða­maður und­ir­skrift­ar­list­ans, Birgir Örn Harð­ar­son, segir í sam­tali við Heim­ild­ina að fólk sem vilji kom­ast frá Grinda­vík vilji láta borga sig út úr fast­eignum sínum. „Ég ákvað bara að búa til þennan lista uppá það að fá tölu á þá sem vilja fá borgað út. Og ég bara inni­lega vona að þetta gangi upp útaf því hvernig ástandið er núna.“ Alls hafa 333 skrifað undir listan þegar þessi frétt er skrifuð.

Hraun hefur flætt in í nyrstu hverfi Grinda­víkurVef­mynda­vél RÚV

Hraunið er, enn sem komið er, ekki komið nálægt húsi Birgis, sem seg­ist hafa ætlað að fara til Grinda­víkur í morgun til þess að taka myndir af húsi sínu til að senda á nátt­úru­ham­fara­trygg­ing­arnar. „Það er komin skekkja á húsið og ég ætl­aði að fara í dag að taka myndir.“

Samkvæmt tölum sem Heim­ildin fékk frá Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun í nóv­em­ber nam heild­ar­fast­eigna­mat eigna í Grinda­vík 92,4 millj­örðum króna á árinu 2023, á meðan að bruna­bóta­mat sömu fast­eigna stóð í 141,2 millj­örðum króna.

Grinda­vík brennurHraun úr síð­ari gossprung­unni flæðir ný yfir byggð í Grinda­vík og hraun og þeirri fyrri gæti gert það sömu­leiðis.

Þegar ein­ungis er horft til ein­býl­is­húsa, sem eru hlut­falls­lega stór hluti eigna í Grinda­vík, var sam­an­lagt fast­eigna­mat þeirra rúmir 34 millj­arðar króna en bruna­bóta­matið nam rúmum 39,9 millj­örðum króna. 

Sumir vilja fara og aðrir vilja vera eftir 

Í færslu sem Dagmar Vals­dóttir, við­skipta­fræð­ingur, birti á Facebook-síð­unni Íbúar í Grinda­vík í gær, veltir Dagmar fyrir sér hversu margir Grind­vík­ingar vilja flytja á brott og fá heim­ili sín greidd út af rík­inu og stofnar til óform­legar könn­unar. Alls tóku 346 manns þátt í könn­un­inni. Samkvæmt nið­ur­stöðum vill meiri­hluti, 69 pró­sent, fá eignir sínar greiddar út. Hins vegar vilja 25 pró­sent þáttak­enda könn­un­ar­innar búa áfram í Grinda­vík. 

Könnun meðal íbúa Grinda­víkurFlestir vilja fá eignir sínar greiddar út af rík­inu

Í sam­tali við Heim­ild­ina segir Dagmar að hún telji, eftir atburði dags­ins, að þeim hafi senni­lega fjölgað sem vilja fá hús sín greidd út. Sjálf á Dagmar tvö hús í Grinda­vík og getur ekki hugsað sé að flytja þangað aftur. 

Umræðan um að fá hús­næðin bætt hefur átt sér stað um nokk­urt skeið, en áður en gosið hefur umræðan ein­kennst af tals­verðri óvissu. Færslan hafi verið til­raun þess að fá skýr­ari mynd á það hvað fólkið í Grinda­vík vill.

„Fólk hefur verið að tala um að ekk­ert verði gert og það muni standa upp með kostn­að­inn. Fyrst vil ég bara sjá hversu margir eru til í ef við þurfum að mót­mæla því að við séum með verð­lausa eign. Og við getum ekki sagt að það var ekki gert neitt ef við höfum ekki einu sinni ákveðið sinni hverjir vilja og hverjir vilja ekki fá aðstoð. Og hvernig aðstoð. Við getum ekki ætl­ast til þess að rík­is­valdið viti hvað eigi að gera nema við séum með ein­hvers­konar könnun yfir því.“  

Þá seg­ist Dagmar hafa skrifað undir und­ir­skrifta­list­ann sem Birgir Örn Harð­ar­son birti á Ísland.is. 

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Steinþór Grímsson skrifaði
    Skrítið hvað er til mikið af peningum þegar er talað um „Þjóðarhöll“ fyrir íþróttir en enginn peningur fyrir fólk!
    -1
  • Thorunn Ravn skrifaði
    auðvitað á ríkið að borga fólk út úr þessum aðstæðum! Allt annað er fráleitt!
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár