Skrifað undir samkomulag um uppbyggingu Þjóðarhallar í Laugardal

Þrír ráð­herrar og borg­ar­stjóri skrif­uðu í dag undir sam­komu­lag um stofnun félags um upp­bygg­ingu Þjóð­ar­hallar í Laug­ar­dal. Sam­komu­lagið er gert tveimur dögum áður en íslenska hand­boltalands­liðið hefur leik á EM.

Skrifað undir samkomulag um uppbyggingu Þjóðarhallar í Laugardal

„Þau risa­stóru tíma­mót í íþrótta­sög­unni urðu fyrr í dag að skrifað var undir sam­komu­lag um stofnun félags um upp­bygg­ingu Þjóð­ar­hallar í Laug­ar­dal. Jafn­framt var stað­fest sam­komu­lag um kostn­að­ar­skipt­ingu ríkis og Reykja­vík­ur­borgar, bæði um stofn­kostnað og rekstur. “ Þetta segir Dagur B. Egg­erts­son, sem er borg­ar­stjóri þangað til í næstu viku, í stöðu­upp­færslu á Facebook. 

Eign­ar­hlutur rík­is­ins við stofnun félags­ins er 55 pró­sent og eign­ar­hlutur Reykja­vík­ur­borgar er 45 pró­sent. Kostn­að­ar­skipt­ingin bygg­ist á úttekt á þörfum hvors aðila fyrir sig á notkun þjóð­ar­hall­ar­innar.

Í færsl­unni segir Dagur að til­koma Þjóð­ar­hall­ar­innar verði lang­þráð bylt­ing í aðstöðu barna og ung­linga til æfinga og keppni í Laug­ar­dal - og fyrir Þrótt og Ármann. „Þjóð­ar­höll verður bylt­ing í aðstöðu lands­liða og keppni í hand­bolta og körfu­bolta og mörgu fleiru. Þjóð­ar­höll eykur jafn­framt sam­keppn­is­hæfni Reykja­vík­ur­borgar og Íslands í breiðum skiln­ingi og verður glæsi­legt and­dyri inn í Laug­ar­dal­inn frá Borg­ar­línu­stöð við Suð­ur­lands­braut og ofan í dal.“

Dagur þakkar fram­kvæmda­nefnd, sem starfað hefur undir for­ystu Gunnars Ein­ars­sonar fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóra í Garðabæ, sér­stak­lega fyrir sína aðkomu að verk­inu. „Án öfl­ugs starfs hennar og sam­komu­lags við rík­is­stjórn­ina hefði ekki tek­ist að klára þetta áður en ég læt af starfi borg­ar­stjóra. Það þykir mér sér­stak­lega vænt um.“

Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar hafa við­ræður um kostn­aða­skipt­ingu við upp­bygg­ingu og rekstur Þjóð­ar­hallar milli ríkis og Reykja­vík­ur­borgar staðið yfir í lengri tíma, og til stóð að und­ir­rita sam­komu­lagið í októ­ber síð­ast­liðnum. Það frestað­ist en und­ir­rit­unin var fyr­ir­huguð í sömu viku og Bjarni Bene­dikts­son sagði af sér sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. 

Und­ir­ritun sam­komu­lags­ins í dag ger­ist tveimur dögum áður en íslenska hand­boltalands­liðið hefur leik á EM í hand­bolta og sex dögum áður en Dagur hættir sem borg­ar­stjóri og Einar Þor­steins­son tekur við því emb­ætti. 

Átti að vera tilbúin 2025

Vilja­yf­ir­lýs­ing um Þjóð­ar­höll í inn­an­hús­í­þróttum var und­ir­rituð í maí 2022, átta dögum fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­ar. Málið hafði verið hita­mál í Reykja­vík í aðdrag­anda þeirra, sér­stak­lega þar sem það var bein­tengt við inni­þrótta-að­stöðu Þróttar og Ármanns í Laug­ar­dal og skól­anna í hverf­inu, sem hefur verið í miklu ólestri árum sam­an.

­Sam­kvæmt áformunum áttu bæði félögin að geta nýtt nýju Þjóð­ar­höll­ina ásamt því að nota gömlu Laug­ar­dals­höll­ina undir starf­semi sína. 

Þrýsti­hópar innan beggja félaga höfðu kallað eftir því að lausn myndi finn­ast á aðstöðu­leysi félag­anna tveggja og að hún yrði form­fest. Þar kom helst tvennt til greina: annað hvort næð­ist saman um Þjóð­ar­höll sem ung­menni í Laug­ar­dalnum gætu nýtt eða að nýtt íþrótta­hús yrði byggt á bíla­stæð­inu við Þrótt­ar­völl­inn.

Dagur B. Egg­erts­son hafði gefið rík­­­­inu frest fram í byrjun maí 2022 til að leggja fram fé í þjóð­ar­hall­ar­verk­efn­ið. Næð­ist það ekki myndi borgin taka tvo millj­­­­arða króna sem hún hafði sett til hliðar fyrir það og nota þá til að byggja nýtt íþrótta­hús fyrir iðk­endur Þróttar og Ármanns í Laug­­­­ar­­­­dal. 

Samkvæmt vilja­yf­ir­lýs­ing­unni átti fram­kvæmdum við Þjóð­ar­höll­ina að ljúka árið 2025. Ljóst má vera að það mun ekki stand­ast, enda sam­komu­lag um kostn­að­ar­skipt­ingu fyrst und­ir­ritað nú, í jan­úar 2024. 

Mun taka 8.600 manns í sæti

Í til­kynn­ingu sem birt var á vef stjórn­ar­ráðs­ins í dag kemur fram að fyrsta verk félags­ins sem stofnað hefur verið um bygg­ing­una, sem kall­ast Þjóð­ar­höll ehf., verði að efna til for­vals og sam­keppni um hönnun og bygg­ingu hall­ar­innar.

Þar segir að Þjóð­ar­höllin muni stór­bæta aðstöðu fyrir alþjóð­lega keppn­is­við­burði, íþrótta­fé­lög og skóla­börn. „Í samn­ingnum er byggt á til­lögum starfs­hóps um und­ir­bún­ing upp­bygg­ingar þjóð­ar­leik­vanga í íþróttum. Höllin mun rísa sunnan við Laug­ar­dals­höll upp að Suð­ur­lands­braut og verður 19.000m2 að stærð. Samkvæmt frum­at­hugun fram­kvæmda­nefndar er miðað við að bygg­ingin muni taka 8.600 manns í sæti og allt að 12.000 á tón­leika. Til sam­an­burðar rúmar Laug­ar­dals­höll 5.500 gesti hið mesta.

Einhugur ríkir um að mann­virkið muni nýt­ast vel sem þjóð­ar­höll í íþróttum og upp­fylli allar kröfur sem gerðar eru til alþjóð­legra keppn­is­við­burða. Þjóð­ar­höllin mun stór­bæta aðstöðu fyrir íþrótta­fé­lög og skóla í nágrenni Laug­ar­dals fyrir kennslu, skóla­í­þróttir, æfingar og keppni. Þá verður þjóð­ar­höllin mik­il­væg mið­stöð fyrir afreks- og almenn­ings­í­þróttir og mun nýt­ast fyrir við­burði tengdum menn­ingu og atvinnu­lífi.“

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár