Lögreglan á Tenerife stöðvaði töskuflutning til Íslands

Farþegar Play og Icelandair gripu í tómt eftir lend­ingu á Kefla­vík­ur­flug­velli í gær­kvöldi eftir að lög­reglan á Tenerife stöðv­aði tösku­flutn­ing til Íslands. Farþegi Play er ósáttur með upp­lýs­inga­leysi og veit ekki hvenær er von á tösk­unum hans.

Lögreglan á Tenerife stöðvaði töskuflutning til Íslands
Farþegi í vél­inni segir „Tösk­urnar fóru um borð í vél­ina en voru teknar út aftur.“ Mynd: Golli

Lög­reglan á Tenerife stöðv­aði í gær­kvöldi tösku­flutn­ing með flug­vélum á leið til Íslands. Ekki liggur nákvæm ástæða fyrir hvers vegna tösk­urnar fengu ekki að koma með. Samkvæmt far­þega Play hafði tösk­unum verið ferjað um borð en síðan teknar út aftur.

Upp­lýs­inga­full­trúi Play, Birgir Olgeirs­son, stað­festir í sam­tali við Heim­ild­ina að lög­reglan á Tenerife hafi stöðvað tösku­flutn­ing hjá Play og Icelandair í gær­kvöldi. „Við höfum ekki fengið alveg full­kom­lega ástæð­una frá lög­regl­unni hvað þeir voru nákvæm­lega ósáttir við,“ segir Birgir. Hann segir að lög­reglan hafi stöðvað tösk­urnar hjá fjórum flug­vélum en málið liggi hjá flug­vell­inum sjálfum þar sem lög­reglan var ósátt við örygg­is­leit­ina á tösk­unum.

Ásdís Ýr Pét­urs­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi Icelandair, segir við Heim­ild­ina að tösk­unum hafi verið haldið eftir á Tenerife vegna bil­unar í örygg­is­leit­ar­vélum flug­vall­ar­ins. Það hafi orðið til þess að þær hafi ekki allar verið ski­maðar áður en þær fóru í vél­ina.

Sá töskurnar fara um borð

Þor­steinn Frímann Guð­munds­son, far­þegi með flug­vél Play, segir far­þeg­ana hafa beðið í flug­vél­inni í einn og hálfan tíma áður en hún lagði af stað til Íslands. Segist Þor­steinn hafa spurt áhöfn­ina hvers vegna vélin tafð­ist og fengið þær upp­lýs­ingar að þetta tengd­ist toll­inum eða ein­hverju ves­eni með papp­írana. 

„Flug­stjór­inn kom inn í flug­vél­ina eftir þennan einn og hálfa tíma og segir að það eigi að fara að loka lúg­unum og við séum von­andi bara að fara bráðum. Svo líða kannski tíu mín­útur, korter áður en við förum af stað,“ segir Þor­steinn. Hann segir að annar far­þegi hafi séð tösk­urnar ferjaðar inn í vél­ina. „Tösk­urnar fóru um borð í vél­ina en voru teknar út aftur,“ segir Þor­steinn. 

Vissi ekki að töskurnar hefðu orðið eftir

Þor­steinn segir að hann hafi ekki fengið neinar upp­lýs­ingar frá áhöfn­inni um að tösk­urnar yrðu skildar eftir á Tenerife. „Þegar við erum lent og erum komin út úr vél­inni fær mág­kona mín tölvu­póst um það að tösk­urnar hafi orðið eftir á Tenerife og ekk­ert nánar.“ Hann seg­ist enn fremur ekki vera búinn að fá neinar upp­lýs­ingar um hvenær hann fái tösk­urnar sínar aftur.

Upp­lýs­inga­full­trúi Play segir hins vegar við Heim­ild­ina að flug­stjór­inn hafi til­kynnt far­þegum í flug­inu að tösk­urnar yrðu skildar eftir. Hann segir tösk­urnar vera á leið­inni til Íslands í dag og verða keyrðar út á morgun. 

Þjófnaður úr töskum 

Í mars á þessu ári hand­tók lög­reglan á Tenerife tvo starfs­menn sem unnu í tösku­burði flug­vall­ar­ins fyrir að stela úr töskum. Canarian Weekly birti frétt um það fyrr á árinu. Virðist þjófn­aður úr ferða­töskum á þessum til­tekna flug­velli vera nokkuð umtal­aður hér á landi en flug­völl­ur­inn er fjöl­sóttur af Íslend­ingum.  

Fréttin hefur verið upp­færð með frek­ari upp­lýs­ingum frá almanna­tengli Play.

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    Það geta verið margar skyringar a, td Eiturlyf þaug flæða her inn i Massavis aldrei hefur verið meira magn Eiturlyfja a Islandi en nu og þeir sem þar standa að Græða a ta og fingri. Lögreglu ber ekki skilda til að tja sig um Astæðu. En farangurinn kemur Ekki er við Flugfelög að sakast. Flugvelum er skilt að lenda a næsta Flugvelli sem nota ma, ef Yfirvöld krefjast þess og sækja folk um borð ef þess er krafist af viðkomandi lögreglu. Islendingar streima til Tenerife og sumir hafa Vetursetu. Lika Grasserar Vændi a Islandi þar eru erlendar Konur sem skipt er ut Vikulega.
    1
  • Grétar Reynisson skrifaði
    „hafði töskunum verið ferjað“ 😣
    Eruð þið farin að keppa við DV og Mbl. ?
    0
    • SSS
      Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
      @Grétar Reynisson
      Er það ekki að ferja þegar lítill dráttarvagn með nokkra ferjunarvagna í togi flytur „ferjar“ töskur frá fluvallarbygginguni að flugvélinni ?
      6
    • SÍF
      Sveinn í Felli skrifaði
      @Sigurjón Smári Sverrisson
      Þarna mætti standa "höfðu töskurnar verið ferjaðar um borð".
      4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár