Strætisvagnastjóri sem keyrði á konu sakfelldur fyrir manndráp af gáleysi

Dómur í máli stræt­is­vagna­stjór­ans Kristins Eiðs­sonar liggur fyrir. Hann keyrði á gang­andi veg­far­anda með þeim afleið­ingum að hann lést.

Strætisvagnastjóri sem keyrði á konu sakfelldur fyrir manndráp af gáleysi
Stræt­is­vagnar Kristinn taldi sig hafa gætt fyllsta öryggis og kannað umhverfið sitt áður en hann ók af stað. Mynd: Heiða Helgadóttir

Fimmtu­dags­morg­un­inn 25. nóv­em­ber 2021 barst lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til­kynn­ing um að keyrt hefði verið á gang­andi veg­far­anda af stræt­is­vagni. Atvikið átti sér stað á gatna­mótum Skeið­ar­vogs og Gnoð­ar­vogs í Reykja­vík, við hlið Mennta­skól­ans við Sund. Hafði öku­maður stræt­is­vagns­ins, Kristinn Eiðsson, keyrt á sjö­tuga konu með þeim afleið­ingum að hún lést. 

Samkvæmt skýrslu­gjöf Kristins hjá lög­reglu eftir atvikið og lýs­ingu fyrir dómi keyrði hann Skeið­ar­vog til suð­urs þar sem hann stöðv­aði vagn­inn við bið­skýli. Þar hleypti hann far­þegum úr vagn­inum við Mennta­skól­ann við Sund og ók svo var­lega að rauðu ljósi á gatna­mótum Skeið­ar­vogs og Gnoð­ar­vogs. Hann kvaðst hafa ekið af stað en hægt á sér þegar drengur gekk í veg fyrir vagn­inn en síðan tekið beygju til hægri. Þá fyrst horfði hann á gang­braut­ina þar sem var grænt ljós fyrir gang­andi veg­far­endur. Taldi hann engan þar hafa verið og hefði því ekið rólega af stað, horfði beint áfram og síðan gjóað aug­unum til vinstri og haldið áfram. Fann hann þá högg og taldi að aft­ur­endi vagns­ins hefði rek­ist utan í bif­reið. Taldi hann sig síðan hafa séð barn undir vagn­inum og brotn­aði niður við það. Hann man því ekki eftir allri atburða­rásinni vegna áfalls­ins. 

Það var þó ekki barn sem stræt­is­vagn­inn hafði keyrt á, heldur eldri kona. 

Taldi sig gæta fyllsta öryggis

Kristinn taldi ekk­ert í umhverf­inu hafa truflað sig við akst­ur­inn en hafði ekki séð kon­una í aðdrag­anda atviks­ins. Vegurinn var blautur, úti var myrkur og glamp­aði ljós af veg­inum. Hann taldi sig hafa gætt fyllsta öryggis og kannað umhverfið sitt áður en hann ók af stað. Einn far­þegi stræt­is­vagns­ins hafði gengið fram fyrir vagn­inn á þessum gatna­mótum og hann því þurft að hægja á sér en utan þess taldi hann engar aðrar trufl­anir vera á sínum vegi. 

Í sam­an­tekt­ar­skýrslu tækni­deildar Lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu kemur fram að það hafi verið mat skýrslu­höf­undar að fjöl­menni hafi verið á gang­stétt­inni hægra megin við vagn­inn sem tak­mark­aði útsýni öku­manns­ins til hægri. 

Í mynd­bands­upp­töku úr vagn­inum sést konan ganga af stað yfir Gnoð­ar­vog í sömu mund og stræt­is­vagn­inn beygir úr Skeið­ar­vogi. Vagninum var ekið óhikað inn í beygj­una, í veg fyrir og síðan á kon­una. Vitni sögðu vagn­inn ekki hafa keyrt hratt í beygj­una enda beygjan verið kröpp. Á upp­tök­unni sést hún lyfta upp hönd­unum og reyna að koma sér undan vagn­inum sem skellur svo á henni. Þar með féll hún í göt­una og sást ekki lengur á upp­tök­unni. Samkvæmt krufn­ing­ar­skýrslu hlaut konan áverka á kvið­ar­holi, brjóst­holi og hálsi.  

Hún var flutt á bráða­mót­tök­una í Fossvogi þar sem hún var úrskurðuð látin. 

„Ég mun aldrei gleyma gall­anum sem hún var í konan, blessuð sé minn­ing hennar, og hvernig hún lá við aft­ur­dekkið. Ég vissi um leið að konan var dáin,“ segir Kristinn í við­tali við Vísi í des­em­ber 2022.  

Röð áfalla

Tæpum tveimur mán­uðum eftir slysið missti Kristinn eig­in­konu sína. Í jan­úar 2022 fylgdi hann henni til læknis þar sem hún var send áfram í frek­ari rann­sóknir. Hún lést í febr­úar 2022 úr krabba­meini. Í áður­nefndu við­tali við Vísi sagði Kristinn að yfir­heyrslur vegna slyss­ins hafi staðið yfir á svip­uðum tíma. Áföllin dundu á Kristni en um þetta leyti komst hann að því að dóttir kon­unnar sem hann hafði ekið á hefði kært slysið til lög­reglu. „Þó svo að ég geti ekki tekið þetta slys til baka þá held ég að ég hafi hlotið refs­ingu sem mun fylgja mér það sem ég á eftir ólifað,“ sagði Kristinn við Vísi.

Fyrir dómi sagð­ist Kristinn aldrei hafa séð kon­una. Það hefði verið myrkur og úða­rign­ing úti. Göturnar voru blautar og mikil speglun á veg­inum. Að sgön Kristins spegl­að­ist ljós af örygg­is­gleri sem hafði verið við öku­manns­sætið en honum hafði alltaf þótt glerið óþægi­legt. Þetta gler var sett upp á tímum heims­far­ald­urs til að minka lík­urnar á að vagn­stjór­arnir smit­uð­ust af Covid. Lög­reglu­maður sem fram­kvæmdi rann­sókn á vagn­inum sagði að stoð örygg­is­glers­ins hefði getað haft áhrif á sjón­svið bíl­stjór­ans, og hversu vel hann sæi hlið­ar­spegla.

Dómsniðurstaða

Nið­ur­staða dóms­ins var að Kristinn hefði átt að sýna aukna varúð á gatna­mót­unum vegna aðstæðna. Taldi dóm­ur­inn einnig að hann hefði átt að taka til­lit til örygg­is­glers­ins þar sem það gæti haft áhrif á útsýni hans. Dómurinn taldi, með vísan til mynd­bands­upp­taka, að Kristinn hefði ekið ógæti­lega miðað við aðstæður og að hann hafi ekki hafa gengið úr skugga um að eng­inn gang­andi veg­far­andi væri að ganga yfir gang­braut­ina á grænu ljósi. Hér­aðs­dómur komst því að þeirri nið­ur­stöðu að um stór­fellt gáleysi af hálfu Kristins hefði verið að leiða og að það hafi leitt til þess að hann ók stræt­is­vagn­inum á kon­una með þeim afleið­ingum að hún lést. 

Kristinn var dæmdur til tveggja mán­aða fang­els­is­vistar en fulln­ustu refs­ingar var frestað og hún fellur niður tveimur árum eftir upp­kvaðn­ingu dóms ef ákærði heldur almennt skil­orð. Var hann einnig sviptur öku­rétt­indum í sex mán­uði frá birt­ingu dóms­ins og gert að greiða dóttur og eig­in­manni kon­unar miska­bætur. Fá þau hvor um sig tvær millj­ónir króna ásamt áföllnum vöxtum. 

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár