Hafnað af Íslandi í miðju stríði – Sefur í tjaldi fyrir utan Alþingi

„Í miðju stríði fékk ég höfnun,“ segir 22 ára palest­ínskur maður sem Útlend­inga­stofnun hefur skorað á að yfir­gefa Ísland án tafar. Hann hefur í sex nætur sofið í tjaldi fyrir utan Alþingi í mót­mæla­skyni.

Hafnað af Íslandi í miðju stríði – Sefur í tjaldi fyrir utan Alþingi
Von „Ég sé ekk­ert sem getur glatt mig. Ég bíð og vona að eitt­hvað breyt­ist,“ segir Mohammed sem hefur áfrýjað nið­ur­stöðu Útlend­inga­stofn­unar til kæru­nefndar útlend­inga­mála. Mynd: Golli

Í sept­em­ber kom hinn 22 ára gamli palest­ínski Mohammed Alhaw til Íslands, fullur vonar. Tæpum mán­uði síðar voru sprengjur Ísra­els­hers farnar að falla á landi hans af tíðni sem aldrei hafði sést áður. Svo fékk hann höfnun frá Útlend­inga­stofnun. Umsókn hans yrði ekki tekin til efn­is­með­ferðar þar sem hann er þegar með stöðu flótta­manns í Grikk­landi og var honum gert að fara úr landi innan 30 daga.

Mohammed hefur sofið fyrir utan Alþingi í sex nætur í litlu app­el­sínu­gulu tjaldi. Skammt frá er stærra tjald, hvítt og áþekkt tjöld­unum sem rísa í Herj­ólfs­dal á þjóð­há­tíð. Þar hafa Palest­ínu­menn og stuðn­ings­fólk þess safn­ast saman í mót­mæla­skyni dag­lega frá 27. des­em­ber síð­ast­liðnum. Þeir kalla eftir því að fjöl­skyldu­með­limum þeirra, sem þegar hafa fengið sam­þykkt dval­ar­leyfi á Íslandi á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­ingar, sé komið af Gasa­svæð­inu hið snarasta. 

Flestir þess­ara Palest­ínu­manna hafa þegar fengið sam­þykkta hæl­is­um­sókn hér á landi, enda er ekki hægt að óska eftir fjöl­skyldu­sam­ein­ingu nema vernd hafi þegar verið veitt. 

„Ég verð að hjálpa sjálfum mér fyrst ef ég vil hjálpa fjöl­skyldu minni,“ útskýrir Mohammed sem flúði Gasa­svæðið tví­tugur að aldri árið 2021. Þar býr móðir hans enn ásamt systur hans og bróður. Heimili þeirra var gjör­eyði­lagt í sprengju­árás Ísra­els­hers, segir Mohammed. 

Hann  vildi betra líf, en þó að hann hafi losnað við stríðið þá hefur draumur hans um „venju­legt líf“ – líf þar sem hann getur unnið fyrir sér, borgað skatta og stundað nám – ekki ræst. 

Líkamlegt ofbeldi í Grikklandi

Mohammed fékk alþjóð­lega vernd í Grikk­landi í byrjun árs 2022 en sú vernd segir hann að hafi gert lítið sem ekk­ert til þess að bæta lífs­kjör hans. 

„Þar get ég ekki hjálpað sjálfum mér því launin eru svo lág og það aðstoðar mig eng­inn. Hér hjálpar fólk þér, annað en í Grikk­landi,“ segir Mohammed. 

„Mér leið ekki eins og ég væri öruggur“

Hann sagði full­trúum Útlend­inga­stofn­unar frá mjög alvar­legu ofbeldi sem hann varð fyrir þar af hálfu nokk­urra karl­manna, enda­lauss óör­yggis, bar­smíða af hálfu lög­regl­unnar og búsetu á göt­unni innan um fíkni­efna­neyt­endur og glæpa­menn. 

„Mér leið ekki eins og ég væri öruggur,“ segir Mohammed.  

Í nið­ur­stöðu Útlend­inga­stofn­unar í máli Mohammeds segir að alþjóð­leg vernd ein­stak­linga í Grikk­landi upp­fylli „þær kröfur sem flótta­manna­samn­ingur Sam­ein­uðu þjóð­anna setur.“ Það er þó ekki reynsla Mohammeds og hið sama má segja um fjöl­marga aðra flótta­menn sem Heim­ildin hefur rætt við og vilja alls ekki snúa aftur til Grikk­lands. 

Um 120.000 hæl­is­leit­endur eru í Grikk­landi og þar búa 50.000 flótta­menn. Landið er eitt af þeim sem taka hvað mestan þunga af flótta­manna­krís­unni og eru 3% þjóð­ar­innar flótta­menn, sam­kvæmt Flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna (UNCHR). 

„Flestir flótta­menn sem búa í þétt­býli [í Grikk­landi] geta ekki fundið vinnu til að fram­fleyta fjöl­skyldum sínum þar sem Grikk­land glímir enn við efna­hags­lega erf­ið­leika í kjöl­far fjár­málakrepp­unnar árið 2015,“ segir í sam­an­tekt Alþjóða björg­un­ar­nefnd­ar­innar (IRC) um stöð­una í Grikk­landi. 

Í við­tali við Heim­ild­ina í nóv­em­ber sagði Annika Sandlund, full­trúi Flótta­manna­stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna (UNCHR) á Norð­ur­lönd­unum og í Eystra­salts­ríkj­unum, galla á því fyr­ir­komu­lagi að hæl­is­leit­endur væru aftur og aftur sendir til landa eins og Grikk­lands þar sem þeir hefðu þegar fengið hæli. Fyr­ir­komu­lagið gerði ráð fyrir því að mót­taka flótta­manna væri jafn góð á öllum stöðum í Evrópu.

„En það er ekki staðan,“ sagði Annika. „Auðvitað eru Evr­ópu­ríkin mis­vel stödd efna­hags­lega og það mun líka hafa áhrif á það hvort fólki líður eins og það geti raun­veru­lega fengið vinnu og gefið af sér til sam­fé­lags­ins.“

SvefnTjaldið sem Mohammed sefur í. Aust­ur­völlur er ekki góður næt­ur­staður en þar sefur hann, og í það minnsta einn annar palest­ínskur flótta­maður, og krefst þess að fólki sem hefur fengið hér dval­ar­leyfi verði komið af Gasa­svæð­inu hið snarasta.

Getur ekki horft til framtíðar þegar nútíðin er ótrygg

Það er einmitt það sem Mohammed seg­ist vilja, að vinna, greiða sína skatta, mennta sig. 

„Ég bið bara um venju­legt líf. Mig langar að byrja lífið, kom­ast í nám og horfa til fram­tíðar. Þegar ég bjó á Gasa, í Grikk­landi og í Þýska­landi gat ég ekki hugsað um fram­tíð­ina,“ segir Mohammed sem sótti einnig um vernd í Þýska­landi en fékk þar neitun í þrí­gang. 

„Á öllu þessu ferða­lagi var líf mitt sett á pásu. Ég get ekki tryggt nútíð­ina til þess að hugsa um fram­tíð­ina. Ég er hér sem stendur en kannski verð ég far­inn í annað land á morgun.“

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár