Þorri útgjalda Sósíalistaflokksins vegna Samstöðvar og Vorstjörnu

Árangur Sós­í­alista­flokks Íslands í kosn­ing­unum 2021 tryggði flokknum stór­auknar tekjum þrátt fyrir að hann hafi ekki náð inn á Alþingi.

Þorri útgjalda Sósíalistaflokksins vegna Samstöðvar og Vorstjörnu
For­svars­maður Gunnar Smári Egilsson er helsta and­lit Sós­í­alista­flokks­ins út á við. Hann er for­maður fram­kvæmda­stjórnar flokks­ins, leiddi lista hans í öðru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu í síð­ustu kosn­ingum og stýrir Sam­stöð­inni. Mynd: Bára Huld Beck

Tekjur Sós­í­alista­flokks Íslands rúm­lega tvö­föld­uð­ust milli áranna 2021 og 2022, þegar þær fóru úr rúmum 18 millj­ónum króna í 37 millj­ónir króna. Þar mun­aði mestu um að flokk­ur­inn fékk fram­lag úr rík­is­sjóði eftir að hann náði yfir 2,5 pró­sent þrösk­uld­inn í kosn­ing­unum 2021 sem þarf til að fá slíkt fram­lag, þrátt fyrir að hafa ekki náð inn þing­manni. Framlög frá hinu opin­bera fóru úr því að vera 6,1 milljón króna 2021 í 27,8 millj­ónir króna 2022, en af þeirri upp­hæð komu 26 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði. Framlög ein­stak­linga og félags­gjöld lækk­uðu um 2,7 millj­ónir króna milli ára og voru 8,8 millj­ónir króna og fram­lög lög­að­ila voru ein­ungis 100 þús­und krónur, sem komu allar frá Strand­veiði­fé­lagi Íslands. 

Sós­í­alista­flokk­ur­inn var rek­inn í 3,5 millj­óna króna hagn­aði á árinu 2022. Stærstu útgjalda­liðir flokks­ins voru rekstur skrif­stofu og það sem er kallað „annar kynn­ingar- og bar­áttu­kostn­aður“, sem næstum þrjár af hverjum fjórum krónum …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár