Undanfarið hafa sumir íbúar í Grindavík virt bann við því að gista heima hjá sér að vettugi og haft næturdvöl í bænum. Í Kastljósi í kvöld var meðal annars rætt við veitingamann í bænum sem hafði dvalið þar síðustu nætur ásamt eiginkonu sinni og vildi fá að opna veitingastað sinn fyrir gestum. Lögreglan hafði afskipti af fólkinu í gær og fékk það til að yfirgefa Grindavík.
Til stóð að Veðurstofan myndi gefa út uppfært hættumat næsta miðvikudag vegna landriss við Grindavík. Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, sagði við RÚV í dag að ef það yrði lítil breyting frá stöðunni eins og hún var í morgun þá yrði „skoðað að aflétta rýmingu.“ Af því verður ekki úr þessu, enda hófst eldgos í námunda við bæinn í kvöld.
Í Grindavík bjuggu 3.720 manns í lok september og í sveitarfélaginu eru yfir eitt þúsund heimili. Bærinn var rýmdur 10. nóvember síðastliðinn eftir miklar jarðhræringar sem opnuðu kvikugang undir Grindavík.
Síðan þá hafa íbúar Grindavíkur þurft að finna sér nýjan samastað. Fannar Jónsson, bæjarstjóri í Grindavík, sagði í viðtali á Bylgjunni í dag að margir íbúar væru í erfiðri stöðu, þar sem þeir væru að borga af tveimur húsnæðum. „Og það má ekki gleyma því að margir hafa misst vinnuna sína og þó það sé verið að bæta upp tekjutap með launaviðbótum þá eiga ýmsir mjög erfitt. Húsnæðismálin eru alls ekki á góðum stað. Það er það sem við höfum mestar áhyggjur af. Allt of margar fjölskyldur eru í bráðabirgðar- eða óhentugu húsnæði.“
Skiptar skoðanir á meðal íbúa
Í Facebook-hópnum „Íbúar í Grindavík“ hafa átt sér stað miklar umræður um hvort og hvenær það ætti að hleypa íbúum heim til sín. Í innleggi sem birt var fyrr í dag sagði íbúi að hann væri algjörlega orðlaus yfir stöðunni, og vísaði þar í að mögulega stæði til að aflétta rýmingu í vikunni. „Hugsanlega er hættan lítil sem engin og við getum haldið jólin heima í Grindavík. Við erum að fá afhenta lykla af íbúð á eftir en það er algjörlega tilgangslaust ef við megum svo snúa aftur heim á miðvikudaginn. Þessi hringlandaháttur er að kosta mikla peninga svo ég tali ekki um hnútinn sem er búinn að vera í maganum síðustu vikurnar. Við viljum fara aftur heim og halda jólin í fallega húsinu okkar en erum núna búin að skuldbinda okkur fyrir húsnæði sem við hugsanlega höfum enga þörf fyrir.“
Annar íbúi skrifaði: „Við vorum að fá íbúð afhenta rétt áður ég sé þessa “frétt”. Ég veit varla í hvorn fótinn á að stíga í og þetta helvítis tilfinninga rúnk í boði yfirvalda er gjörsamlega bilað.“
Enn annar íbúi skrifaði: „Ég held að þeir sem eru á vergangi eða þeir sem hýrast enn í hjólhýsum verði mjög glaðir með að komast heim í hýbýlin sín.“
Bláa lónið opnaði á ný í gær
Í námunda við Grindavík, í Svartsengi skammt frá þar sem gosið stendur nú yfir, er Bláa lónið, vinsælasti ferðamannastaður landsins. Því var lokað degi áður en Grindavík var rýmd en ætlaði þá einungis að loka í eina viku.
Lokunin stóð yfir í mun lengri tíma. Í stað þess að opna 16. nóvember opnaði Bláa lónið að nýju í gær, þann 17. desember, en þó með takmörkunum. Lónið var opið gestum á milli ellefu að morgni til átta að kvöldi og því ætti enginn gestur að hafa verið í því þegar eldgosið hófst í kvöld. Auk baðlónsins voru Blue Café, Lava Restaurant, Retreat Spa, Spa Restaurant og verslun Bláa lónsins á svæðinu opnuð í gær.
Í Facebook-færslu Bláa lónsins sagði að fyrirtækið gæti ekki „beðið eftir að bjóða ykkur velkomin aftur og að búa til fleiri dásamlegar minningar saman!“
Athugasemdir