Taugakerfi alheimsins og við

Líkt og með önnur verk Rósu Ómars­dóttur þá er ekki allt sem það sýn­ist í Sér­stæð­unni.

Taugakerfi alheimsins og við
Leikhús

Sér­stæðan

Höfundur Rósa Ómarsdóttir
Leikarar Inga Huld Hákonardóttir

Höfundur, listrænn stjórnandi & danshöfundur: Rósa Ómarsdóttir Flytjandi & söngvari: Inga Huld Hákonardóttir Tónskáld: Sveinbjörn Thorarensen Sviðsmyndahönnun: Rósa Ómarsdóttir, Sean Patrick O’Brian, Valdimar Jóhannsson, Katarina Blahutova & Owen Hindley Ljósahönnun: Katerina Blahutova Búningahöfundur: Karen Briem Dramatúrg: Anna María Tómasdóttir

Tjarnarbíó
Niðurstaða:

Óvenjulegt og eftirminnilegt sviðsverk sem mun lifa lengi í taugakerfinu.

Gefðu umsögn

Á síð­ast­liðnum árum hefur Rósa Ómars­dóttir skapað sér sér­stöðu í íslensku sviðs­lista­sen­unni. Hún vinnur á mörkum list­forma en dans­inn er frum­efnið. Síðasta stóra verk­efni hennar var Molta sem sýnd var í Gerð­ar­safni fyrir tveimur árum. Sýningin var til­nefnd til Grímu­verð­launa árið 2024 sem sýn­ing árs­ins og Rósa hreppti verð­launin sem dans­höf­undur árs­ins. Í Moltu beindi hún augum sínum að nátt­úr­unni, mold­inni og rót­inni. Í Sér­stæð­unni leysir hún upp öll form­föst efni og leiðir áhorf­endur inn í óra­víddir alheims­ins og kjarna mann­eskj­unnar.

En líkt og með önnur verk Rósu þá er ekki allt sem það sýn­ist. Samkvæmt lýs­ingu á Sér­stæð­unni stígur Inga Huld Hákon­ar­dóttir inn í hlut­verk Veru sem syngur „um til­vist sína eftir að hafa yfir­gefið lík­amann og hlaðið sér upp á alnetið.“ Þar lifir Vera ein­ungis sem raf­slóði af hugs­unum, minn­ingum og til­finn­ingum. Inga Huld hefur sterka nær­veru á leik­svið­inu, sem þakið er vatni og umkringt myrkri, og …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár