Aðgerðin 200.000 krónum dýrari, ekki 500.000

Um 200.000 krónum munar á kostn­aði rík­is­ins fyrir aðgerðir vegna endó­metríósu á Land­spít­ala ann­ars vegar og Klíník­inni hins vegar, ekki ríf­lega hálfri milljón eins og svar heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn á Alþingi nýverið gaf til kynna.

Aðgerðin 200.000 krónum dýrari, ekki 500.000
Skurð­stofa á Land­spít­ala „Oftast er konum beint til okkar eftir að önnur með­ferð hefur brugð­ist og þá þarf stundum skurð­að­gerð en ekki alltaf,“ segir Kolbrún. Mynd: Landspítali/Þorkell Þorkellsson

„Mér finnst mik­il­vægt að það sé verið að tala um réttar tölur. Talan sem fór út og er verið að bera saman er heild­ar­með­al­talstala,“ segir Kolbrún Páls­dóttir, yfir­læknir kven­lækn­ingateymis Land­spít­ala.  

Svar heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Diljár Mistar Ein­ars­dóttur, þing­konu Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem birt­ist í nóv­em­ber­mán­uði, varð grunn­ur­inn að greinum sem skrif­aðar voru í Morg­un­blaðið og Við­skipta­blaðið og greindu frá því að ríkið spar­aði mörg hund­ruð þús­und á hverri aðgerð vegna endó­metríósu sem það útvi­staði. 

Í svari ráðu­neyt­is­ins kemur fram að með­al­kostn­aður við aðgerð á Land­spít­ala sé um 1,7 millj­ónir með útlögum og um 1,4 millj­ónir án þeirra en að með­al­kostn­að­ur­inn hjá einka­að­il­anum – Klíník­inni – fyrir hverja aðgerð sé tæp­lega 890.000 krónur.

Það er rétt, en Kolbrún telur að skoða þurfi málið í sam­hengi við umfang og ábend­ingar aðgerð­anna. 

Yfir­læknirKolbrún Páls­dóttir.

Erfitt að setja nákvæman verðmiða á aðgerðirnar

…

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár