Háttsettur lögreglumaður snýr aftur þrátt fyrir að hafa sýnt lögreglukonu ofbeldisfulla hegðun

Hátt­settur lög­reglu­maður hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu áreitti lög­reglu­konu mán­uðum saman og sýndi henni ofbeld­is­fulla hegðun. Hann var settur í tíma­bundið leyfi vegna máls­ins en er nú snú­inn aftur til vinnu og starfar á skrif­stofu lög­reglu­stjóra. Konan óskaði eftir flutn­ingi og er komin á aðra starfs­stöð. Hún hafi engan stuðn­ing fengið frá yfir­stjórn lög­regl­unnar.

Þegar lögreglumaðurinn og lögreglukonan unnu saman hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var sameignleg starfsstöð þeirra við Hverfisgötu í Reykjavík.
Þegar lög­reglu­mað­ur­inn og lög­reglu­konan unnu saman hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu var sam­eign­leg starfs­stöð þeirra við Hverf­is­götu í Reykja­vík. Mynd: Golli

Einn af æðstu emb­ætt­is­mönnum lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu var settur í tíma­bundið leyfi fyrr á þessu ári. Upp­lýs­inga­full­trúi lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu stað­festi við Heim­ild­ina í dag að mað­ur­inn væri kom­inn aftur til starfa. Eitt af því sem var til skoð­unar áður en hann fór í leyfi var ákvörðun hans um að taka kven­kyns und­ir­mann sinn úr fyr­ir­hug­aðri aðgerð hjá emb­ætt­inu án fag­legrar ástæðu.

„Stöðug skila­boð í gegn um sam­fé­lags­miðla, stundum marga tugi á einni helgi“

RUV greindi frá því í kvöld að mað­ur­inn hafi áreitt lög­reglu­kon­una og sýnt henni ofbeld­is­fulla hegðun. Hann hafi valdið henni mik­illi van­líðan og ótta, auk þess sem valda­ó­jafn­vægið hafi verið mikið en hann var ekki aðeins í valda­meiri stöðu en hún heldur er hann um þrjá­tíu árum eldri. Þá hafi hann þvingað hana til að taka á móti sér á heim­ili hennar seint að kvöldi, setið fyrir henni í vinn­unni og „sendi henni stöðug skila­boð í gegn um sam­fé­lags­miðla, stundum marga tugi á einni helgi,“ að því er kom fram í Kast­ljósi.

Engin stuðningur frá yfirstjórn

Sál­fræði­stofa var fengin til að skoða málið eftir að konan lagði fram kvörtun vegna hátt­semi manns­ins. Af tólf atvikum sem þar voru skoðuð þóttu tíu falla undir skil­grein­ingu á ofbeldi. Samkvæmt heim­ildum RUV hefur yfir­stjórn lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu ekki sýnt kon­unni neinn stuðn­ing vegna máls­ins, hvorki Halla Bergþóra Björns­dóttir lög­reglu­stjóri né und­ir­menn hennar. Konan óskaði eftir flutn­ingi í starfi og er nú kom­inn á aðra starfs­stöð.

Í umfjöll­un­inni kom enn­fremur fram að mikil óánægja væri hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu með hvernig tekið var á mál­inu. Halla Bergþóra neit­aði að veita Kast­ljósi við­tal vegna máls­ins.

Neitaði fyrir leyfi mannsins

Blaða­maður Heim­ild­ar­innar hafði sam­band við Höllu Bergþóru í haust með fyr­ir­spurn um hvort umræddur lög­reglu­maður væri kom­inn í leyfi en hún sagði það rangt. Nokkrum dögum síðar birt­ist frétt á öðrum miðli um að mað­ur­inn væri sann­ar­lega kom­inn í leyfi. Þegar blaða­maður Heim­ild­ar­innar spurði kynn­ing­ar­full­trúa emb­ætt­is­ins út í svörin sem höfðu feng­ist frá Höllu Bergþóru stuttu áður sagði hann að mað­ur­inn hafi sann­ar­lega verið í leyfi en lög­reglu­stjóri hafi verið að að vísa til þess að umræddum starfs­manni hafi ekki verið veitt lausn frá emb­ætti.

Þá var vísað til þess að þetta sé ekki eina málið sem mikil óánægja sé innan lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu með hvernig tekið hafi verið á, og rifjuð upp frétt Heim­ild­ar­innar frá því á föstu­dag um að þrjár starfs­konur emb­ætt­is­ins hafi pantað þjón­ustu stripp­ara í fræðslu­ferð til Auschwitz í síð­asta mán­uði.

Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár