Hafnarfjörður hækkar leikskólagjöld eftir að hafa tilkynnt um lækkun

Hafn­ar­fjarð­ar­bær boð­aði í des­em­ber breyt­ingar á leik­skóla­starfi sveita­fé­lags­ins. Meðal þeirra eru hærri leik­skóla­gjöld og styttri vist­un­ar­tími. „Ég held að sveit­ar­fé­lagið sé að þrýsta á fyr­ir­tæki og atvinnu­lífið að minnka vinnu­tíma fólks,“ segir móðir leik­skóla­barns í Hafn­ar­firði og starfs­maður leik­skóla í sveita­fé­lag­inu.

Hafnarfjörður hækkar leikskólagjöld eftir að hafa tilkynnt um lækkun
Boða breyt­ingar Leik­skóla­starf­semi Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar verður með öðrum hætti frá og með næsta hausti. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Atvinnu­lífið er ekki að fara að byrja á því að hafa vinn­una til tvö á dag­inn, en það er svo­lítið það sem þarf til þess að þetta gangi upp hjá leik­skól­unum,“ segir móðir barns á leik­skóla í Hafn­ar­firði. Hún er einnig starfs­maður á leik­skóla í sveit­ar­fé­lag­inu. „Ég held að sveit­ar­fé­lagið sé að þrýsta á fyr­ir­tæki og atvinnu­lífið að minnka vinnu­tíma fólks,“ segir hún. 

Breyt­ing­arnar sem Hafn­ar­fjarða­bær boð­aði á leik­skóla­starfi í byrjun des­em­ber eru m.a. skipt­ing leik­skóla­dags­ins upp í kennslu- og frí­stunda­starf og lækkun leik­skóla­gjalda fyrir sex tíma vistun. Enn fremur verður leik­skóla­daga­talið og daga­tal grunn­skól­anna sam­ræmt og inn­leiddur sveigj­an­legri dval­ar­tíma fyrir börn.

Þær aðgerðir sem Hafn­ar­fjarð­ar­bær hefur nú þegar hrint í fram­kvæmd eru 36 stunda vinnu­vika fyrir allt starfs­fólk leik­skól­anna, aukið sam­ræmi milli fyrstu skóla­stig­anna, heim­greiðslur til for­eldra og greiðsla stofn- og aðstöðu­styrkja til dag­for­eldra.

Verandi starfs­maður segir móð­irin breyt­ing­arnar leggj­ast vel í sig. Henni þykir þetta vera í takt við þá þróun sem sé að eiga sér stað í sam­fé­lag­inu, það er að auka sam­veru­stundir fjöl­skyldna. Spurð hvort hún fengi sjálf sex tíma vinnu­dag sagði hún það eitt­hvað sem ekki væri búið að ræða.  

Bærinn segir litla eftirspurn eftir lengri vistun

Leik­skólar Hafn­ar­fjarðar munu loka klukkan hálf fimm, þar sem ekki mun standa for­eldrum til boða að skrá börnin sín í vist til klukkan fimm síð­degis. Í svari við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar til Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar segir að fá börn séu skráð til fimm á dag­inn. Þessi breyt­ing ætti því ekki að hafa áhrif á marga for­eldra.

Faðir leik­skóla­barns í Hafn­ar­firði segir þó í sam­tali við Heim­ild­ina að þegar hann hafi reynt að nýta sér þann mögu­leika að vera með barn til fimm á leik­skól­anum hafi honum verið tjáð að það væru svo fá börn skráð til fimm að barnið hans yrði nán­ast það eina. Að hans sögn fengu for­eldrar ann­arra barna sömu svör.

Heim­ildin sendi Hafn­ar­fjarðabæ fyr­ir­spurn um hve mörg börn væru í dag vistuð til fimm. Hafn­ar­fjarð­ar­bær segir þau aðeins vera fjögur sem eru vistuð lengur en til hálf fimm. Þau eru öll vistuð á sama leik­skól­anum og verða stjórn­endur þar í góðu sam­ráði við þá for­eldra.

Leikskólagjöld hækka stuttu eftir tilkynningu um lækkun

Í des­em­ber barst for­eldrum tölvu­póstur þar sem til­kynnt var um 9,9% hækkun á dval­ar­gjöldum í leik­skólum Hafn­ar­fjarðar. Fæð­is­gjaldið ætti að hald­ast óbreytt en leik­skóla­gjaldið fyrir átta tíma vistun að hækka um 7,2%. Hækkunin á leik­skóla­gjöldum var ákveðin í bæj­ar­stjórn í byrjun des­em­ber.

Fyrr í des­em­ber­mán­uði hafði þó borist frétta­til­kynn­ing sem boð­aði umtals­verða lækkun á leik­skóla­gjöldum fyrir sex tíma vistun og enga breyt­ingu á gjöldum fyrir 8 tíma vistun. 

Í til­kynn­ing­unni sagði: „Leik­skóla­gjöld fyrir 8 klukku­stundir á dag hald­ast óbreytt. Leik­skóla­gjöld fyrir 6 klukku­stunda vistun á dag lækka umtals­vert eða sem jafn­gildir 30% af heild­ar­kostn­aði af 40 klukku­stunda vistun.“ Upp­lýs­ing­arnar frá Hafn­ar­fjarð­arbæ eru því nokkuð mót­sagna­kenndar. Áður­nefnd frétta­til­kynn­ing er nú horfin af vef bæj­ar­ins.

Faglærðu starfsfólki fjölgar

Fag­lærðum starfs­mönnum á leik­skólum Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar hefur fjölgað um 2,9% frá því í apríl 2022. Starfs­fólk leik­skól­anna með aðra háskóla­menntun hefur fjölgað um 3%. Í svari Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar til Heim­ild­ar­innar um hvernig bær­inn ætli að fjölga fag­mennt­uðu fólki segir að allar stöður séu aug­lýstar. „Svo trúum við því að ánægt starfs­fólk láti vini og félaga í fag­inu vita og þannig er það kannski ekki síður upp­lifun af umbreyt­ingum og breyttu starfs­um­hverfi og leik­skóla­starfi sem er að skila sér.“

Í frétta­til­kynn­ingu Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar segir að mark­mið aðgerð­anna sé að „auka sveigj­an­leika innan skóla­dags­ins allt árið um kring og fjölga fag­fólki í leik­skólum bæj­ar­ins.“ 

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár