Andriy flug­maður og Ihor liðs­for­ingi, ásamt áhöfn­inni á Mil Mi 8 þyrl­unni fluttu þeir vistir inn til Azovstal-verk­smiðj­unnar í Mariupol

„Þetta er stanslaus leikur kattarins að músinni“

Í upp­hafi stríðs­ins í Úkraínu var Azovstal-verk­smiðjan í Mariupol umsetin og undir stans­lausum árásum Rússa svo mán­uðum skipti. Þá flugu þyrlu­á­hafnir með vistir til þeirra sem sátu fastir í verk­smiðj­unni. Óskar Hall­gríms­son, ljós­mynd­ari Heim­ild­ar­innar, hitti þær á stærð­ar­innar túni, umkringdur hestum.

Í febr­úar 2022 varði fáliðað her­lið Úkraínu hafn­ar­borg­ina Mariupol, sem liggur með­fram strönd Azovhafs gegn marg­falt stærra her­liði Rússa, í 80 daga. Heim­ur­inn fylgd­ist agn­dofa með frétta­flutn­ingi frá borg­inni þegar rúss­neskar her­sveitir, allt að átta sinnum fleiri en varn­ar­liðið, mölv­uðu borg­ina með hrylli­legri sprengju­her­ferð sem á sér fáar hlið­stæður úr mann­kyns­sög­unni.

John Spencer, for­seti Urban warfare institute og sér­fræð­ingur í borg­ara­stríði, segir á heima­síðu sinni að vörnin um borg­ina hafi komið í veg fyrir að Rússar gætu flutt her­lið og víga­gögn til ann­arra hluta lands­ins. Þannig græddu her­sveitir Úkraínu dýr­mætan tíma sem hægt var að nýta í að verja önnur lyk­il­svæði og almennt er talið að vörnin um Mariupol hafi átt stóran hluta í að sókn Rússa í land­inu hafi fjarað út.

Vörnin var væg­ast sagt ekki án kostn­aðar. Stjórn­völd í Úkraínu telja að um 25 þús­und almennir borg­arar hafi legið í valnum og upp undir 50 þús­und …

Kjósa
33
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Steingrimur Steingrimsson skrifaði
    Eg taldi mig vera i askrift Latid mig vita ef svo er ekki kv SS
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Á vettvangi í Úkraínu

„Hermaðurinn í mér var alltaf til staðar“
ErlentÁ vettvangi í Úkraínu

„Her­mað­ur­inn í mér var alltaf til staðar“

Lista­maður sem varð lið­þjálfi útskýrir hvernig það kom til að hann gekk til liðs við Azov-her­deild­ina í Úkraínu. Hann og fleiri veita inn­sýn í störf þess­arar umdeild­ustu her­deildar lands­ins og hafna ásök­unum um tengsl við hægri öfga­flokka. Það sé af sem áður var að allir sem gátu lyft byssu væru sam­þykktir í deild­ina. Um leið og her­deildin hafi verið tekin inn í þjóð­varn­ar­liðið hafi póli­tískar hug­sjónir þurft að víkja.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár